Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Side 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Side 12
Inngangur Í þessari grein er markmiðið að segja frá helstu niðurstöðum könnunarinnar. Skýrsla sem fíh fékk frá Maskínu var um 200 blaðsíður. Þar eru helstu niðurstöður settar fram á ýmsan hátt, meðal annars í súluritum til að bera saman niðurstöður, með áhrifagreiningum til að skoða hvaða spurningar skýrðu töl - fræði lega mest ánægju í starfi, fylgnigreiningum til að skoða fylgni á milli ánægju í starfi og annarra spurninga í könnuninni og dritritum til þess að skoða samband á milli ýmissa þátta eins og álags, ánægju í starfi, launa og þess að skipta um starfsvett- vang. helstu breytur sem notaðar voru til þess að greina niður - stöður einstakra spurninga betur og fjallað verður um í þessari grein voru aldur, starfsreynsla, vinnufyrirkomulag og aðal- vinnustaður. Í flestum breytum voru niðurstöður sýndar sem meðaltal á skalanum 0–5 eða 1–5. Það segir til um hvar þunga - miðja svara var í tiltekinni spurningu. formúla meðaltals í orðum er einfaldlega sú að tölugildi allra svara þátttakenda eru lögð saman og deilt í með fjölda svara. Meðaltöl einstakra spurninga eru ekki gefin upp í þessari grein heldur skoðað hvaða hópar innan einstakra breyta skora hátt og lágt í viðkom- andi spurningu. Einnig eru útlistaðar breytur þar sem töl - fræðileg marktækni er á milli hópa skv. anOVa prófi (p<0,05). Í þessari grein er því ekki um tæmandi umfjöllun um könn- unina að ræða. fíh mun vinna áfram með tilteknar niðurstöður könnun- arinnar og nýta sér þær í vinnu tengdri til dæmis kjörum og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. niðurstöðurnar í heild gefa góða mynd af starfsviðhorfi hjúkrunarfræðinga, líðan og ýmsum þáttum sem snerta starf þeirra. Við úrvinnslu gagna sem snerta breytuna „aðalvinnustaður“ voru nokkrir vinnustaðir hjúkrunarfræðinga flokkaðir saman, m.a. vegna smæðar, þannig að hægt væri að nota niður stöð - urnar í tölfræðiútreikninga. Til útskýringar má nefna að „al- mennur markaður“ eru t.d. lyfjafyrirtæki, sölufyrirtæki og tryggingafélög. „Annar vinnustaður“ eru ýmsar stofnanir ríkis - ins, eins og t.d. háskólinn á akureyri, háskóli Íslands, ráðu - neyti, Embætti landlæknis og reykjalundur. „Sveitafélög utan Reykjavíkur“ eru hjúkrunarheimili á landsbyggðinni og „SFV“ (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) eru hjúkrunarheimili og endurhæfingarstofnanir, flest staðsettar á höfuð borgarsvæðinu. Helstu niðurstöður Starfsánægja Starfsánægja skiptir miklu máli að mati hjúkrunarfræðinga þegar verið er að skoða líðan þeirra í starfi. Þegar spurt var um starfsánægju kom fram að tæp 76% hjúkrunarfræðinga töldu starfið standast væntingar mjög vel eða fremur vel og er það ánægjulegt. jafnframt eru 75% hjúkrunarfræðinga mjög eða fremur ánægðir í starfi. Þegar starfsánægja er síðan skoðuð út frá breytum (sjá töflu 2) kemur fram, og vekur vissar áhyggjur, að yngri hjúkrunar - fræðingar með stutta starfsreynslu eru óánægðastir. jafnframt má sjá í töflunni á hvaða vinnustöðum hjúkrunarfræðingarnir starfa sem eru hvað ánægðastir eða óánægðastir í starfi. athygli vekur að þeir sem starfa hjá stofnunum sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Landspítala, fjölmennasta vinnustað landsins, eru með lægstu meðaltals starfsánægju. aftur á móti mælist mest starfsánægja hjá þeim sem starfa á öðrum vinnustöðum (háskólar, ráðuneyti, landlæknir og reykja - lundur) og þeim sem starfa á almennum markaði. Ánægðastir Óánægðastir Aldur 60 ára og eldri 30–39 ára 50–59 ára Yngri en 30 ára Starfsreynsla 30 ár eða meiri 5–9,9 ár 20–29,9 ár Minni en 5 ár Vinnufyrirkomulag Dagvinna Vaktavinna Aðalvinnustaður annar vinnustaður Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu almennur markaður Landspítali reykjavíkurborg heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Tafla 2. Á heildina litið hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu í starfi þínu? Líkur á að skipta um starfsvettvang og hætta að vinna sem hjúkrunarfræðingur um 67% hjúkrunarfræðinga töldu skv. niðurstöðum könnun- arinnar mjög eða fremur ólíklegt að þeir myndu skipta um starfsvettvang á næstu 12 mánuðum. Við nánari skoðun á niðurstöðum (sjá töflu 3) má sjá að það er aftur yngri kynslóð hjúkrunarfræðinga, með minnstu starfs- reynsluna, sem telur í meðallagi eða fremur líklegt að þeir muni skipta um starfsvettvang á næstu 12 mánuðum og hætta að vinna sem hjúkrunarfræðingar, á meðan þeir eldri telja það mjög ólíklegt. Að hlakka til að mæta til vinnu Þegar kemur að niðurstöðum varðandi tilhlökkun eftir að mæta til vinnu segjast tæp 54% hjúkrunarfræðinganna hlakka mjög eða fremur mikið til þess. hjúkrunarfræðingar með meira en 20 ára starfsreynslu hlakka meira til að mæta til vinnu á meðan þeir sem eru með guðbjörg pálsdóttir, gunnar helgason, aðalbjörg finnbogadóttir 12 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Ánægja í starfi  Mjög ánægð(ur)  Fremur ánægð(ur) Í meðallagi Fremur óánægð(ur)  Mjög óánægð(ur) 0% 100% 22% 53% 19% 4% Líkur á að skipta um starfsvettvang  Mjög ólíklegt  Fremur ólíklegt Í meðallagi Fremur líklegt  Mjög líklegt 0% 100% 35% 32% 18% 8% 6%

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.