Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 16
Yngri hjúkrunarfræðingar og þeir sem eru með allt að 20 ára
starfsaldur töldu starfsumhverfi og aðbúnað óviðunandi á
meðan eldri hjúkrunarfræðingar með lengri starfsreynslu
sögðu þessa þætti viðunandi (sjá töflu 7). Sama á við um hjúkr-
unarfræðinga sem starfa á almennum markaði og öðrum
vinnustöðum, þeir telja starfsumhverfið betra (sjá töflu 8).
Betri Lakari
Aldur 60 ára og eldri Yngri en 30 ára
50–59 ára 30–39 ára
Starfsreynsla 30 ár eða meira Minna en 5 ár
20–29,9 ár 10–19,9 ár
Vinnufyrirkomulag Dagvinna Vaktavinna
Tafla 7. Er tölvubúnaður/annar búnaður viðunandi eða óviðun-
andi til þess að þú getir sinnt starfi þínu eins og best verður á kosið?
Enn eru það yngri hjúkrunarfræðingarnir með minni starfs-
reynslu sem eru óánægðari og einnig þeir sem vinna vakta-
vinnu. Þegar skoðað er hvaða hópar hjúkrunarfræðinga telja
starfsumhverfi og þá sérstaklega húsnæði óviðunandi kemur
fátt á óvart þar sem það eru þeir sem starfa á Landspítala og
Sjúkrahúsinu á akureyri. Tafla 8 sýnir helstu vinnustaðina, en
vert er að geta þess að tæp 73% hjúkrunarfræðinga sem þátt
tóku í könnuninni vinna hjá þeim stofnunum sem síst koma út
úr henni. Enn og aftur er þetta staðfesting á því að starfsum-
hverfi hjúkrunarfræðinga er mjög ábótavant og það getur haft
mikil áhrif á störf þeirra og líðan í starfi. hér er því enn eitt
tækifærið fyrir stjórnendur og yfirvöld að bæta úr málum. Í
fjölmörgum rannsóknum hefur verið sýnt fram á mikilvægi
heilbrigðs vinnuumhverfis í hjúkrun fyrir vellíðan starfsfólks og
afdrif sjúklinga. heilbrigt vinnuumhverfi styður við betri nýt -
ingu á þekkingu starfsfólks, ánægðari starfsmenn og góða hjúkr -
un sem aftur eykur öryggi sjúklinga og dregur úr dánartíðni.
Ánægð(ur) 42,6% Óánægð(ur) 26,8%
Starfsumhverfi annar vinnustaður Landspítali
almennur markaður Sjúkrahúsið á akureyri
Sveitarfélög utan rvík. heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Tafla 8. Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu
með núverandi starfsumhverfi?
Fjöldi starfsmanna,
álag í starfi og starfsþróun
Í könnuninni var jafnframt spurt um atriði sem snerta fjölda
starfsmanna og samsetningu starfshópsins miðað við þörf, álag
í starfi og starfsþróun.
Álag í starfi
Mjög stór hluti hjúkrunarfræðinga telur álag í starfi vera of
mikið, eða 83%. Þetta telja greinarhöfundar mikið áhyggjuefni
en kemur ekki á óvart.
Þar sem innan við 1% svarenda sögðu að álag í starfi væri
alltof lítið eða mjög lítið koma þau svör ekki fram á myndinni.
Tafla 9 sýnir frekar niðurstöðurnar um álag í starfi út frá þeim
hóp sem telur það of mikið. hópurinn sem um ræðir eru
yngstu hjúkrunarfræðingarnir, þeir sem eru með stuttan starfs-
aldur, þeir sem vinna vaktavinnu og starfa á stærstu vinnu -
stöðum hjúkrunarfræðinga hjá hinu opinbera. greinilegt er að
skortur á hjúkrunarfræðingum hefur áhrif á álagið.
Of mikið
Aldur Yngri en 30 ára
30–39 ára
Starfsreynsla < 5 ár
5–9,9 ár
Vinnufyrirkomulag Vaktavinna
Aðalvinnustaður Landspítali
Sjúkrahúsið á akureyri
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Tafla 9. Myndir þú segja að álag þitt í starfi sé mikið eða lítið?
Þegar kemur að því að skoða álag vegna veikinda samstarfs-
manna meta 93% hjúkrunarfræðinga það aukaálag nokkuð eða
mikið og því er ljóst að lítið má út af bera á vinnustöðum hjúkr-
unarfræðinga til þess að breytingar verði á álagi.
Hæfilegur fjöldi hjúkrunarfræðinga á vinnustað
Þegar niðurstöður eru skoðaðar sérstaklega út frá því hvort
hjúkrunarfræðingar telja nægilega marga hjúkrunarfræðinga
á vinnustað kemur í ljós að um 70% telja þá of fáa eða alltof fáa
(sjá töflu 10). Sérstaklega eru það yngri hjúkrunarfræðingar
með styttri starfsreynslu sem telja þá of fáa. aftur á móti er at-
hyglisvert að það eru ekki einungis þeir yngri heldur einnig
elstu hjúkrunarfræðingarnir með mestu starfsreynsluna sem
telja að hjúkrunarfræðinga vanti. Einnig er umhugsunarvert
að á þeim þremur vinnustöðum þar sem hjúkrunarfræðing-
arnir töldu of fáa hjúkrunarfræðinga að störfum starfa tæp 64%
þeirra sem þátt tóku í könnuninni.
Þetta telja greinarhöfundar vera einn af stóru þáttunum sem
gera það að verkum að yngri hjúkrunarfræðingar leita í önnur
störf. Of fáir hjúkrunarfræðingar eru til staðar til að sinna mikil -
vægum hjúkrunarstörfum. Þessar niðurstöður eru í samræmi
við það sem kom fram í útgefinni skýrslu fíh um vinnumarkað
hjúkrunarfræðinga 2017. niðurstöður þeirrar könnunar byggðu
á mati framkvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkrunarforstjóra á
heilbrigðisstofnunum á því hversu marga hjúkrunarfræðinga
guðbjörg pálsdóttir, gunnar helgason, aðalbjörg finnbogadóttir
16 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Álag í starfi
Aðeins of lítið Hæfilegt Aðeins of mikið
Mjög mikið Allt of mikið
0% 100%
16% 19% 41% 23%
Álag vegna veikinda
Breytir engu um álag Eykur álag nokkuð Eykur álag mikið
0% 100%
7% 36% 57%