Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 24
Inngangur
hæfnistjórnun getur orðið forsenda öflugrar starfsþróunar hjúkrunarfræðinga og meiri
gæða í hjúkrun (Cowin, hengstberger-Sims, Eagar, gregory, andrew og rolley, 2008).
rafræn hæfnistjórnun er stórt skref til að tryggja gæði hjúkrunar og öryggi sjúklinga.
Starfsumhverfi bráðamóttöku tekur eðli málsins samkvæmt stöðugum breytingum,
sem hefur áhrif á starfsþróun hjúkrunarfræðinga og hæfni, en einnig hafa samfélags-
legar breytingar áhrif á viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku.
um nokkurra ára skeið hafði verið kallað eftir skilgreiningum á hæfniviðmiðum
og formlegu mati á hæfni meðal hjúkr unarfræðinga á bráðamóttöku Landspítala. Þessi
þörf á markvissari starfsþróun og bættri aðlögun nýrra hjúkrunar fræðinga á bráðamót-
töku Landspítala í fossvogi varð til þess að fagráð bráðahjúkrunar hóf að skilgreina
hæfniviðmið haustið 2013. Verkefnið var unnið í þeim tilgangi að starfsþróun hjúkr-
unarfræðinga yrði markvissari frá hendi deildar og stofnunar en ekki síst til að efla fag-
lega markmiðasetningu hjúkrunarfræð inganna sjálfra og viðurkenna hæfni þeirra.
Markmið
Tilgangur verkefnisins var að skilgreind hæfniviðmið og mat á hæfni hjúkrunar -
fræðinga á bráðamóttöku Landspítala muni:
• auka gæði hjúkrunar
• Bæta aðlögun nýrra hjúkrunarfræðinga
• Efla starfsþróun hjúkrunarfræðinga
• hvetja hjúkrunarfræðinga til að setja sér markmið í starfi
• Veita viðurkenningu á hæfni hjúkrunarfræðinga
• auka yfirsýn yfir hæfni hjúkrunarfræðinga
• Varpa ljósi á þörf hjúkrunarfræðinga fyrir frekari menntun og þjálfun
• Vera hjálpartæki við markvissa endurgjöf á störf hjúkrunarfræðinga
• auka öryggi sjúklinga
Framkvæmd
fagráð bráðahjúkrunar kannaði fræði um hæfni og hæfnimat hjúkrunarfræðinga og
ákvað að byggja á vel þekktum hugmyndum Patriciu Benner (1984) um starfsþróun
þeirra. Í upphafi var starfsþróun hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku skilgreind í fjögur
þrep, auk þriggja sérhæfðra hlutverka. Í tvígang voru allir hjúkrunarfræðingar á
bráðamóttökunni boðaðir á vinnufund til að ræða og skilgreina æskilega hæfni stétt-
arinnar. fundirnir fóru fram í lok október 2013 og í maí 2014 og voru vel sóttir. Þátt-
takendum var skipt í sjö rýnihópa sem greindu hvaða hæfni væri æskileg innan
viðkomandi þrepa og sérhæfðra hlutverka. niðurstöður hópanna hafa síðan verið
greindar nánar og skilgreiningar og framsetning þróuð, auk viðeigandi mats á hæfni.
framsetningin hefur verið kynnt víða, meðal annars á deildarfundum bráðamót tök -
unnar, innan Landspítala og utan, sem og á ráðstefnum og fundum erlendis. Einnig
fóru fram skipulagðar forprófanir á innleiðingu á skilgreindum hæfniviðmiðum og
mati hjúkrunarfræðinga frá byrjun árs 2016 en slíkar forprófanir leiddu til þess að
framsetning viðmiðanna var endurmetin.
24 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Hæfniviðmið í bráðahjúkrun á Landspítala
— skilgreining og innleiðing
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, Gyða Halldórsdóttir, Dóra Björnsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir,
Helga Pálmadóttir, Ingibjörg Sigurþórsdóttir, Kristín Halla Marinósdóttir, Ragna Gústafsdóttir,
Sigurlaug A. Þorsteinsdóttir, Sólrún Rúnarsdóttir og Sólveig Wium
Framsetningin hefur verið
kynnt víða, meðal annars á
deildarfundum bráðamót-
tökunnar, innan Landspítala
og utan, sem og á ráðstefn -
um og fundum erlendis.
Starfsumhverfi bráðamót-
töku tekur stöðugum breyt-
ingum, sem hefur áhrif á
starfsþróun hjúkrunarfræð -
inga og hæfni, en einnig hafa
samfélagslegar breytingar
áhrif á viðfangsefni hjúkr-
unarfræðinga á bráðamót-
töku.