Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Qupperneq 25
Við skilgreiningu og framsetningu hæfniviðmiðanna var
sérstaklega haft í huga að þau væru:
• athafnamiðuð — lýstu einhverju sem hægt er að gera
eða framkvæma.
• aðlaðandi — hæfni sem hjúkrunarfræðingar vilja ná
tökum á.
• auðskilin — hjúkrunarfræðingar skilji hvaða hæfni átt
er við.
• Viðeigandi — í samræmi við raunverulegt starf/hæfni.
• raunhæf — flestir muni ná tökum á hæfni leggi þeir sig
fram.
• Metanleg — megi mæla eða meta hvort hæfnin sé til
staðar og að hve miklu leyti.
• Sýnileg — skilgreind og skráð hæfni er sýnileg hér og
nú og í framtíðinni.
• Samhæfð — hægt að bera hæfni saman við aðrar/er-
lendar bráðamóttökur og deildir LSh.
Skilgreind voru tíu hæfniviðmið innan hvers starfsþróunarstigs
hjúkrunarfræðinga, með mismarga undirflokka sem lýsa ólíkri
hæfni á mismunandi þrepum. hæfniviðmiðin voru sett fram
út frá sjónarhorni hjúkrunarfræðingsins, þau eru sérhæfð fyrir
bráðahjúkrun á Landspítala hvað varðar hæfni, námskeið og
þróun, óháð launatengdri starfslýsingu, en þó þannig að þau
geti nýst við starfsmannasamtöl og framgangsmat.
hæfniviðmiðum hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku er
ætlað að nýtast við að meta starfsþróun einstaklingsins. Við -
miðin liggja til grundvallar þess að meta gæði og framþróun
starfa hvers og eins og hæfni viðkomandi til að færast milli þrepa
í starfsþróun eða til að taka að sér ný hlutverk. hæfnistjórnun
sem er byggð á vel skilgreindum, viðeigandi, raunhæfum og
mælanlegum hæfniviðmiðum er talin auka gæði þeirrar endur -
gjafar sem hjúkrunarfræðingar fá um störf sín og hæfni. auk
þess auðveldar slík hæfnistjórnun hjúkrunar fræð ingum að setja
sér markmið um eigin störf og starfsþróun.
hæfniviðmið í bráðahjúkrun á landspítala — skilgreining og innleiðing
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 25
forgangs-
röðun
Triage
Vaktstjóri
Triage klíniskur
sérfræðingur
framhalds-
menntun; lítil
starfsreynsla
umsjónar-
hjúkrunar-
fræðingur
nýliði — novice
Þjálfun og athugun
hæfur — kominn vel á veg
advanced Beginner
Öðlast skilning og innsæi
reyndur — Competent
hæfni til að kenna öðrum
Sérfræðiþekking
Expert-Master
framhaldsnám
Börn
geðvandamál
fjöláverkar
Viðbragðssveit
aldraðir
neyðarmóttaka
Mentor
innleiðingar
hjartavandamál
Hæfniviðmið á bráðamóttöku
Kassar — þrep: Þorskaferill hjúkrunarfræðings, til að færast milli þrepa þá þarf að hafa lokið þrepinu á undan.
Hringir — hlutverk: hægt er að fara í hlutverk úr fleiri en einu þrepi.
Forgangsröðun: hefur hæfni til að meta sjúklinga við komu á bráða -
móttöku samkvæmt forgangsflokkurnarkerfi (ESi Triage System),
er fyrsti fagaðilinn sem sjúklingur hittir.
Vaktstjóri: hefur hæfni til að sinna starfi vaktstjóra á bráðamóttöku;
hefur margþætta yfirsýn yfir starfsemina, þar með talið sjúklinga
og starfsfólk.
Umsjónarhjúkrunarfræðingur: hefur hæfni til að taka að sér umsjón
með ákveðnum verkefnum eða hópum skjólstæðinga, sérþekking
á einkennum og viðeigandi úrræðum.