Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 26
Skilgreind hæfniviðmið og dæmi um undirflokka
1. klínísk hæfni Klínísk hæfni:
2. Samskipti a. Móttaka slasaðra og veikra
3. Samvinna b. Bráðaaðstæður og forgangsröðun
4. úrræði og umhverfi c. Endurlífgun
5. fagleg þróun d. Lyfjagjafir
6. Leiðtogahlutverk e. Vinnubrögð og leiðbeiningar
7. réttindi og skyldur f. Skráning hjúkrunar
8. Siðferðileg mál g. Sýnataka
9. Þátttaka í rannsóknum h. Tækjabúnaður
10. Tíma- og verkefnastjórnun i. Meðferð sára og áverka
j. Sýkingavarnir
k. útskrift sjúklinga
Mikilvægur liður í að innleiða skilgreind hæfniviðmið og meta hæfni hjúkrunar -
fræðinga á bráðamóttöku Landspítala var talin þátttaka mentora í starfsþróun þeirra.
Mentor er reyndur, traustur og ráðagóður hjúkrunarfræðingur sem tekur að sér starfs-
tengda leiðsögn samstarfsmanns, leiðsögn sem felst í ráðgjöf, handleiðslu og stuðningi
í starfi (hamric, Spross og hanson, 2005; gazaway, Schumacher og anderson, 2016).
Mentor og hjúkrunarfræðingur vinna saman að starfsþróun hjúkrunarfræðings út frá
skilgreindum hæfniviðmiðum. Mentor veitir hjúkrunarfræðingi stuðning og leiðsögn
við að ná markmiðum hæfnistjórnunar og vottar hæfni með mati þegar viðmiðum er
náð. Mentor skal áður hafa sótt námskeið menntadeildar Landspítala um hlutverk og
ábyrgð mentora.
Við fyrsta mat á starfsþróun samkvæmt skilgreindum hæfniviðmiðum finnur
hjúkrunarfræðingur til öll gögn sem hann á um sinn feril (t.d. námskeið, menntun,
fundi, ráðstefnur, verkefni, klíníska hæfni) auk þess að bera sig saman við hæfniviðmið
á því þrepi og í þeim hlutverkum sem hann telur sig tilheyra. Þegar hjúkrunar fræð -
ingur hefur sjálfur farið í gegnum mat eru gögnin metin og hæfni staðfest með mentor
eða í starfsmannasamtali. Eftir það miðar hjúkrunarfræðingur sig við næsta þrep eða
hlutverk og setur sér markmið í samræmi við það. hjúkrunarfræðingur og mentor
hafa aðgang að sameiginlegu skjali fyrir úrvinnslu hæfniviðmiða þar sem hægt er
merkja og skrifa athugasemdir við það sem gert er. hjúkrunarfræðingurinn ber sjálfur
ábyrgð á að kynna sér kröfur, þjálfunaratriði og skilyrði þjálfunar. hann hefur aðgang
að hæfnistjórnunarkerfinu á netinu, til að opna og vinna með kröfur skilgreindra
hæfni viðmiða. hjúkrunarfræðingurinn samþykkir hverja kröfu þegar hann telur sig
hafa uppfyllt hæfniviðmiðin og vera tilbúinn í mat mentors. hjúkrunarfræðingur og
mentor fara saman yfir hæfniviðmiðin og mentor samþykkir kröfu, að því gefnu að
matið sé uppfyllt. gert er ráð fyrir 85% af hæfniviðmiðum séu uppfyllt innan þreps
eða hlutverks til að geta flust milli þrepa eða til að sinna hlutverkinu sjálfstætt.
hjúkrunarfræðingar geta færst um starfsþróunarstig eða öðlast hæfni í ólíkum
hlutverkum mishratt í tíma. Starfsreynsla í mánuðum eða starfshlutfall kemur ekki
inn í matið nema að litlu leyti heldur er alltaf miðað við hæfni til að sinna tilgreindri
hjúkrun og viðmiðum þar að lútandi. Þannig má, svo dæmi sé tekið, gera ráð fyrir að
hjúkrunarfræðingar sem hafa reynslu frá öðrum deildum eða stofnunum við upphaf
vinnu á bráðamóttöku geti færst hraðar á milli þrepa en þeir sem hafa nýlokið námi,
það er að segja að hjúkrunarfræðingar með starfsreynslu geti sýnt fram á hæfni sína
skjótar en þeir sem yngri eru. Samt sem áður er lögð áhersla á að uppfylla öll viðmið
um sérhæfða hæfni á bráðamóttökunni sem ekki er yfirfæranleg frá öðrum deildum.
Ein af stærstu áskorunum verkefnisins var að finna út hvernig hjúkrunarfræðingar
gætu skráð áfanga, verkefni og hæfniviðmið sem þeir ná í starfi sínu. Leit að hentugu
rafrænu kerfi leiddi fagráðið til rannsóknasviðs Landspítala þar sem gæðastjórnun-
arkerfið focal hafði verið notað í nokkur ár. af hagkvæmnisástæðum var ákveðið að
samnýta það kerfi með rannsóknasviði og hefur fagráðið notið góðrar leiðbeiningar
gæðastjóra rannsóknasviðs við innleiðinguna. nú er verið að setja upp ítarlegar skil-
þórdís, gyða, dóra, bryndís, helga, ingibjörg, kristín, ragna, sigurlaug, sólrún og sólveig
26 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Mikilvægt var talið að hæfni-
viðmið hefðu ekkert lagalegt
gildi, heldur væru viðmið um
æskilega hæfni hjúkrunar -
fræð inga á bráð mó ttöku
Landspítala.
Hjúkrunarfræðingur finnur
til gögn sem hann á um sinn
feril auk þess að bera sig
saman við hæfniviðmið á
því þrepi og í þeim hlut-
verkum sem hann telur sig
tilheyra.