Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 37
Í einni vinnusmiðjunni fólst vinnan í því að koma með hug-
myndir að starfsvenjum sem myndu auka öryggi skjólstæðinga
við mismunandi aðstæður og á ólíkum deildum. Dæmi um
niðurstöðu úr þessari vinnusmiðju er að á barnadeildum ættu
ávallt tveir að fara yfir lyfjaskömmtun og þar ætti starfsum-
hverfið að vera lagað meira að börnum en almennt er gert, svo
sem að hafa vökvasett fyrir börn. Þegar kemur að heimahjúkr -
un ætti að vera einn sameiginlegur gagnagrunnur sem allir
læknar skjólstæðinganna hefðu aðgang að svo yfirsýnin sé betri
og lyfjalistinn verði ekki óþarflega langur. hjúkrunarfræðingar
þurfa að vera mjög gagnrýnir á þau lyf sem gefin eru og fylgjast
vel með því að lyfjarúllurnar séu réttar. Það er líka öryggisatriði
að fræða skjólstæðingana og aðstandendur þeirra um lyfin sem
þeir sjá um heima (gillespie o.fl., 2014).
Í annarri vinnusmiðju byggðist vinnan á því að skoða lyfja-
mistök sem þátttakendur höfðu lent í eða tekið eftir og mark -
miðið var að koma í veg fyrir þessi mistök. Þetta er frábær leið
til að halda umræðunni opinni um lyfjamistök og ræða hvernig
bæta má stöðuna. Í þessari vinnusmiðju kom fram mikilvægi
samskipta við skjólstæðinginn og hversu mikilvægt það er að
gefa sér tíma til að hlusta á hann, einnig hve miklu máli skiptir
að fylgjast með áhrifum lyfja og skrá þau. nemendurnir kom-
ust að því að oft og tíðum er slíkt eftirlit ekki nægilega mark-
visst.
Öryggisviðhorf
fjallað var um hugtakið „öryggisviðhorf “ (e. safety culture)
sem er skilgreint sem samþætt viðhorf, skoðanir, skynjun og
gildi sem starfsmenn deila í tengslum við öryggi á vinnustað
(Cox og Cox, 1991). Eftir að hafa skoðað hugtakið settu nem-
endurnir upp lista af atriðum sem stuðla að betra öryggis -
viðhorfi á heilbrigðisstofnunum. atriðin, sem stóðu upp úr
voru heiðarleiki starfsmanna, jákvæð styrking frá stjórnendum
og beiting heildrænnar hjúkrunar. Einnig fengu nemendurnir
í MS-námi það verkefni að komast að því hvernig stjórnendur
stuðla að öryggisviðhorfi, sjá mynd 1.
Umræður
hjúkrun og menning í þátttökulöndunum var mikið rædd
meðal nemenda og þá komu í ljós ýmis vandamál tengd heil-
brigðiskerfinu sem eru sameiginleg milli landa, sérstaklega í
tengslum við lyfjaöryggi. Skortur á fjármagni til að betrumbæta
heilbrigðiskerfið var það helsta, vinnuálag á hjúkrunarfræð -
ingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki var einnig nefnt. Oft van-
tar skýrar leiðbeiningar frá hinu opinbera til að samræma
vinnureglur á öllum heilbrigðisstofnunum landsins. Við um -
ræður komu fram dæmi um vandamál sem sum lönd voru búin
að finna ráð við en önnur lönd eru enn að glíma við. Til dæmis
fylgja í noregi myndir af töflunum með lyfjarúllunni og það
auðveldar skjólstæðingnum að þekkja lyfin sín. Þetta eykur ein-
nig öryggi þegar hjúkrunarfræðingar þurfa að fara yfir rúll-
urnar. Þetta eykur lyfjaöryggi þar í landi en nemendur annarra
landa könnuðust ekki við þessa aðferð.
farið var yfir margt á þessum stutta tíma á námskeiðinu og
helst hefðum við, hjúkrunarfræðinemarnir, viljað vera lengur
og læra meira. Það sem stendur upp úr eftir þessa viku er að
öryggi við lyfjavinnu er forgangsatriði sem við þurfum alltaf að
hafa í huga. Við hjúkrunarfræðinemar (mynd 2) getum stöðugt
bætt okkur og þá stefnu sem við vinnum eftir. Við megum aldrei
gleyma því að vera gagnrýnin á það sem við erum að gera. að
lokum stendur það upp úr að hjúkrunarfræðingar eiga að vera
stoltir af sínu starfi, verklag þeirra ætti alltaf að vera til fyrir-
myndar og það á ekki síst við þegar kemur að lyfjaöryggi.
Heimildir
Cox, S., og Cox, T. (1991) The structure of employee attitudes to safety: a
European example. Work and Stress, 5, 93–106.
gillespie, r., Mullan, j., og harrison, L. (2014). Managing medications: The
role of informal caregivers of older adults and people living with dementia.
a review of the literature. Journal of Clinical Nursing, 23 (23–24),
3296–3308, doi:10.1111/jocn.12519.
helga Bragadóttir, Margrét Sigmundsdóttir, Brynja ingadóttir, katrín Blöndal,
Lovísa Baldursdóttir og Elín j.g. hafsteinsdóttir (2013). Örugg lyfjavinna
hjúkrunarfræðinga: Lengi býr að fyrstu gerð. Tímarit hjúkrunarfræðinga,
89 (5), 44–47.
lyfjavinna hjukrunarfræðinga og lyfjaöryggi: lærdómur úr medico-námskeiðinu 2018
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 37
Mynd 1: Verkefni MS-nema um hvernig stjórnendur geta eflt öryggis-
menningu á vinnustöðum.
Mynd 2: Þátttakendur í MEDICO-námskeiði í lyfjaöryggi í mars 2018.