Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 41
Áhrif sjúkdómsgreiningar á fjölskyldu Við greiningu á heilabilun vakna margar spurningar: hvernig þróast sjúkdómurinn? hversu hratt? Er eitthvað hægt að gera? hvað get ég sem aðstandandi gert? Mikilvægt er að bæði sá sem veikst hefur og aðstandendur hans fái góðar upplýsingar um sjúkdóminn og hvernig er að lifa með honum. Það getur auðveldað fólki að átta sig á þeirri stöðu sem upp er komin og þar með aukið möguleika á að viðhalda lífsgæðum og gera áætlun fyrir framtíðina. Ef horft er eingöngu á þann missi sem sjúkdómurinn veldur geta tilfinn- ingar eins og hjálparleysi, vonleysi, sorg og reiði tekið völdin. höfundar vilja að sem flestir njóti bæklingsins og að hann sé aðgengilegur þeim sem hafa þörf fyrir eða áhuga á að lesa hann. hann er í gæðahandbók Landspítalans þannig að auð - velt er að endurskoða hann og bæta við nýjum upplýsingum og taka út ef þarf. Einnig er hann aðgengilegur á netinu bæði ef leitað er undir heilabilun — aðstandendur og einnig á heimasíðu alzheimers-samtakanna. Krefjandi verkefni Það er krefjandi fyrir þann sem veikist, fjölskyldu hans og vini að takast á við heilabilun. fræðsla og stuðningur frá fagfólki og öðrum umönnunaraðilum er mikilvægur þáttur í því að takast á við það verkefni. hægt er að fá ráðgjöf, fræðslu og upplýs - ingar á minnismóttökunni á göngudeild Landakots og einnig hjá alzheimers-samtökunum. Heimasíður sem mælt er með: alzheimer.is alzheimer.dk alz.co.uk alzheimer-europe.org fræðslubæklingur fyrir aðstandur einstaklinga með heilabilun tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 41 Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir eftir hjúkrunar- deildarstjóra á heilsugæslu á Patreksfirði Heilbrigðissstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða hjúkrun- ardeildarstjóra heilsugæslu í 80–100% stöðu nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða deildarstjórn á heilsugæslu. Á Patreksfirði fer fram mjög fjölbreytt þjónusta heilbrigðisþjónusta á sjúkra- og heilsugæslusviði á sunnanverðum vestjörðum. Hjúkrunar - fræðingar hafa leyst hvern annan af og er því mikil reynsla á vinnu - staðnum. Um að ræða spennandi stöðu fyrir réttan umsækjanda. Hús næðishlunnindi eru góð, og eru leigulaus fyrsta árið fyrir utan raf- magns- og hitakostnað. Helstu viðfangsefni og ábyrgð: • Hjúkrunarábyrgð á heilsugæslu • Umsjón með starfsmannahaldi Menntunar- og hæfniskröfur: • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði • Umsækjandi þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæði, áreiðanleiki og frumkvæði í vinnubrögðum og teymis- vinnu • Áhugi á þróun og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Patreksfirði • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir eftir hjúkrunar- stjóra á Patreksfirði Heilbrigðissstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða hjúkrunar - stjóra í 80–100% stöðu frá 1. ágúst 2018 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða stjórnanda hjúkrunar á sjúkra- og heilsugæslusviði Heil- brigðisstofnunar Vestfjarða á sunnanverðum vestfjörðum og deildar - stjórn á legudeild. Á Patreksfirði fer fram mjög fjölbreytt þjónusta. Hjúkrunarfræðingar hafa sinnt jafnt legudeild, heilsugæslu, blóðtökum og að hluta blóð rann - sóknum. Mikil reynsla er hjá núverandi starfsmönnum sem þar vinna og spennandi verkefni eru því í boði fyrir réttan umsækjanda. Húsnæðis- hlunnindi eru góð, góð íbúð í góðu standi er til staðar og er það leigu- laust fyrsta árið fyrir utan rafmagns- og hitakostnað. Helstu viðfangsefni og ábyrgð: • Umsjón með heilsugæslu og legudeild • Ábyrgð á starfsmannahaldi • Rekstrarleg ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni á Patreksfirði Menntunar- og hæfniskröfur: • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði • Reynsla af stjórnun og heilsugæslu er æskileg • Umsækjandi þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæði, frumkvæði og áreiðanleiki • Áhug á þróun og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Patreksfirði • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2018. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði. Laun eru skv. gildandi kjarasamningum fjármálaráðherra og FÍH og stofnanasamningi HVEST og FÍH. Nánari upplýsingar veitir Anna Árdís Helgadóttir, hjúkrunarstjóri, í s: 849 0530 og á anna@hvest.is. Vinsamlegast sendið umsóknir í pósti eða með tölvupósti til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, b.t. hjúkrunarstjóra, Stekkum 1, 450 Patreksfirði. Á Patreksfirði er gott að búa, bærinn er í uppsveiflu og ungt fólk sækir í auknum mæli í að búa á svæðinu. Náttúran er stórkostleg og stutt er í alla þjónustu. Aukinn frítími sem fólk fær vegna nálægðar við vinnu gefur möguleika á mörgum tóm- stundum sem hægt er að stunda í fjölbreyttu og góðu mannlífi. Umsóknareyðublað er að finna á vefnum www.hvest.is undir viðkomandi starfs- auglýsingu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið frá gengin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.