Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 44
44 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Segja má að florence nightingale (1859) hafi lagt grunninn að
samþættri hjúkrun þegar hún skrifaði að hlutverk hjúkrun-
arfræðinga væri að sjá til þess að skjólstæðingurinn væri í bestu
mögulegu aðstæðum svo að náttúran gæti brugðist við og
lækning átt sér stað.
Samþætt hjúkrun felur í sér eftirtalda sex þætti (kreitzer og
koithan, 2014):
1. Manneskjur eru heildrænar verur — líkami, hugur, andi
— og verða ekki aðskildar frá umhverfi sínu.
2. Manneskjur hafa innbyggða getu til vellíðanar og heil-
brigðis.
3. náttúran býr yfir endurnærandi eiginleikum sem stuðla
að heilbrigði og vellíðan.
4. Samþætt hjúkrun er einstaklingsmiðuð og byggir á sam-
skiptum og tengslum.
5. Samþætt hjúkrun byggir á gagnreyndri þekkingu sem
styður meðferðarlegar aðferðir sem hlúa að og efla heil-
brigði og miðar að því að beita allt frá áhættuminnsta
inngripi til áhættumeira inngrips, eftir þörfum og sam-
hengi.
6. Samþætt hjúkrun beinir athygli hvort tveggja að heil-
brigði og vellíðan þeirra sem þiggja hjúkrun og þeirra
sem veita hana.
Samþætt geðhjúkrun byggir á þessum sex stoðum og grund-
vallast á tengslum og samskiptum á milli skjólstæðings og
fagaðila, þar sem skjólstæðingurinn er leiðtoginn í þverfaglegu
teymi sem vinnur á heildrænan hátt að því að samþætta ólíkar
meðferðir með hagsmuni hans að leiðarljósi. Leitað er leiða til
að skilja og mæta þörfum og óskum, hefðum og gildum
skjólstæðinga með aðferðum og inngripum sem eru blanda af
viðbótarmeðferðum og hefðbundnum meðferðum. Byrjað er á
að beita minnsta mögulega inngripi miðað við áhættu. Lyf og
samtalsmeðferðir eru sjálfsagður hluti af möguleikunum og
lögð er áhersla á að efla sjálfsumönnun. Samþætt geðhjúkrun
felur þannig í sér að veita heildræna og einstaklingsbundna
þjónustu.
„Eins manns samþætt nálgun er
annars manns þriðjudagur“
ráðstefnan hjúkrun í fararbroddi var haldin í þriðja sinn þann
18. janúar 2018, og nú á vegum hjúkrunarfræðideildar háskóla
Íslands en áður á vegum rannsóknarstofnunar í hjúkrunar -
fræði við hjúkrunarfræðideild hÍ.
hjúkrun í fararbroddi er tileinkuð minningu dr. guðrúnar
Marteinsdóttur, sem var dósent við námsbraut í hjúkrunar fræði
og ruddi brautina fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga á sviði
heilsugæsluhjúkrunar. guðrún lést langt fyrir aldur fram eftir
baráttu við krabbamein, aðeins 42 ára að aldri. Tæpum mánuði
áður skrifaði hún lesendabréf sem birtist í Tímariti hjúkrun-
arfræðinga (1995) eftir andlát hennar. Þar lýsir hún reynslu af
heilbrigðisþjónustu í veikindum sínum og skrifar meðal annars:
Ég hef notið stuðnings, umhyggju og fölskvalausrar samhygðar
fjölda hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem eflt hafa með mér
bjartsýni og baráttuvilja gegn krabbameininu í líkama mínum. Í
veikindunum hef ég sveiflast milli hjálparleysis, sorgar, baráttu -
gleði og nýrra tilfinninga um lífið og tilveruna sem ég er enn að
henda reiður á.
guðrún skrifar að reynslan hafi gert henni ljóst að meðal starfs-
fólks hjúkrunar togist á tæknilegur metnaður og hjúkrunar-
metnaður. Með tæknilegum metnaði átti hún við verkefni eins
og lyfjagjöf, mælingar og þess háttar, á meðan hjúkrunar-
metnaður fæli í sér samskipti og samvinnu við skjólstæðinga í
Samþætt geðhjúkrun
Viðtal við dr. Gísla Kort Kristófersson
Aðalbjörg S. Helgadóttir
Samþætt geðhjúkrun grundvallast á tengslum og
samskiptum á milli skjólstæðings og fagaðila,
þar sem skjólstæðingurinn er leiðtoginn í þver-
faglegu teymi sem vinnur á heildrænan hátt að
því að sam þætta ólíkar meðferðir með hagsmuni
skjólstæðingsins að leiðarljósi.
Samþætt geðhjúkrun byggir á hugmyndafræði samþættrar hjúkrunar (e. integrative nursing) sem eflir
heilbrigði og vellíðan einstaklinga, fjölskyldna og samfélaga með græðandi tengslum og sam -
skiptum hjúkrunar og umhyggju, og hefur að leiðarljósi gagnreynda þekkingu sem beinir sjónum að
inngripum sem styðja við heilbrigði einstaklinga og kerfi á heildrænan hátt. Þetta hljómar kunnuglega
í hugum hjúkrunarfræðinga, sem búa að þekkingu sem þeir hafa öðlast í gegnum nám þar sem fáar,
ef nokkrar, hliðar mannlegrar tilveru eru undanskildar.