Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 51
þörf fyrir aukna þjónustu vegna minnkaðrar getu og sjálfstæðis.
Þessa þjónustu er hægt að veita fólki heima með litlum kostnaði
ef heilbrigðis- og félagsþjónusta við hæfi er í boði alla daga og
allan sólarhringinn (Williams o.fl., 2009).
heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta gegna mikil-
vægu hlutverki í heilbrigðiskerfinu en ljóst er að með aukinni
þörf er mikilvægt að þjónusta sé veitt í samræmi við þörf og að
stuðst sé við viðmið til að úthluta takmarkaðri heimaþjónustu
svo hún verði sem áhrifaríkust (hirdes o.fl., 2008). Það er því
mikilvægt að hafa tæki sem metur þjónustuþörf og hjálpar við
að finna þá sem þurfa heilsufars síns vegna að fá mikla þjón-
ustu. Matstæki, sem styður slíka greiningu, er interrai-hC-
matstækið (e. interrai-home Care) ásamt tilheyrandi MaPLe-
reikniriti (e. Method for assigning Priority Levels).
Í interrai-hC-mati eru 360 breytur þar sem skráðar eru
upplýsingar um líkamlegt og andlegt heilsufar, færni og félags-
legt umhverfi einstaklingsins og nýtist það við að gera áætlanir
og skipuleggja heimaþjónustu, hvort sem hún er frá heima-
hjúkrun eða frá félagslegri heimaþjónustu. MaPLe-reikniritið
sem notar upplýsingar úr 36 breytum í interrai-hC- matinu
er notað til að raða einstaklingum í flokka eftir þjónustuþörf
og var útbúið til að styðja ákvarðanir fagfólks um þjónustu til
einstaklinga (hirdes o.fl., 2008).
Árið 2013 var byrjað að nota interrai-hC-upphafsmat,
sem er stytt útgáfa matstækisins (inniheldur 80 breytur þar af
þær 36 breytur sem MaPLe-reikniritið þarfnast), ásamt MaPLe-
reikniritinu í tengslum við verkefni á vegum Velferðar ráðu -
neytisins (ingibjörg hjaltadóttir, 2014). Þátttakendur í verkefn-
inu voru nokkrar heilbrigðisstofnanir á landinu, þar á meðal á
Sauðárkróki, og ári síðar var byrjað að nota matstækið á akra-
nesi. Markmið þess verkefnis var m.a. að kanna notagildi stytts
matstækis, þ.e. 80 atriða úr interrai-hC og reikniritsins MaP -
Le við að ákvarða og velja hentug þjónustuúrræði fyrir einstak-
linga sem þarfnast heimaþjónustu. niðurstöður verkefnisins
gáfu til kynna að MaPLe-flokkarnir gæfu rök fyrir ákvörðun
um þjónustu, mætu alla einstaklinga jafnt og gætu aukið á sam-
ræmi í þjónustu milli landshluta (ingibjörg hjaltadóttir, 2014).
Þegar byrjað er að nota nýtt matstæki, eins og interrai-
hC-upphafsmatið, er mikilvægt að skoða hvernig það reynist.
Einnig er mikilvægt við skipulagningu þjónustu að þekkja
heilsufar, færni og þjónustuþarfir skjólstæðinganna og kanna
hvort verið er að veita þjónustu í samræmi við þær þarfir. kerf-
isbundið mat á þjónustuþörfum einstaklinga, sem þiggja
heimaþjónustu, og samanburð á milli sveitarfélaga hefur skort
á Íslandi.
Markmið rannsóknarinnar var að skoða heilsufar, færni og
þjónustuþörf einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar
á akranesi og á Sauðárkróki samkvæmt upplýsingum úr inter -
rai-hC-upphafsmati og MaPLe-reikniritinu sem forgangs -
raðar einstaklingum í þjónustuflokka eftir upplýsingum úr
mat inu. jafnframt var ætlunin að bera saman niðurstöður og
skoða muninn á þeim og athuga hvort gagnlegt er fyrir heima-
hjúkrun og félagslega heimaþjónustu að nota slíkt matstæki.
Aðferð
Rannsóknarsnið
rannsóknin var megindleg afturskyggn lýsandi samanburðar-
rannsókn þar sem interrai-hC-upphafsmat og MaPLe-reikni -
ritið var notað til að meta heilsufar, færni og þjón ustu -
þarfir hjá skjólstæðingum heimahjúkrunar á akranesi og á
Sauðárkróki.
Úrtak
rannsóknarúrtakið voru allir þeir einstaklingar sem nutu
heimahjúkrunar í janúar og febrúar 2014 á heilbrigðisstofnun
Vesturlands á akranesi (n=60) og í maí og júní 2013 á heil-
brigðisstofnun norðurlands á Sauðárkróki (n=42).
Matstæki
Matstækið sem notað var í rannsókninni er interrai-hC-upp-
hafsmat sem er stytt útgáfa matstækisins interrai-hC (inni-
heldur 80 breytur, þar af þær 36 breytur sem MaPLe-reikniritið
þarfnast). Einnig var notað reikniritið Method for assigning
Priority Levels (MaPLe) sem forgangsraðar einstaklingum í
fimm þjónustuflokka eftir upplýsingum úr interrai-hC-mati.
MaPLe-reikniritið notar 36 breytur úr interrai-hC-mati þar
sem skoðuð eru spágildi fyrir langtímavistun, umönnun-
arþyngd og mat á aukinni þjónustuþörf (hirdes o.fl., 2008).
höfundar MaPLe-reikniritsins hafa bent á að það er áreiðan-
legt stuðningstæki til að forgangsraða einstaklingum sem hafa
þörf fyrir heimaþjónustu eða langtímavistun og auka þannig
gæði þjónustunnar og stuðning við óformlegan umönnunar -
aðila (hirdes o.fl., 2008). Í töflu 1 er gerð grein fyrir einkennum
og þjónustuþörfum einstaklinga sem falla í MaPLe-flokkana
fimm með stuttum skilgreiningum (sjá töflu 1).
Framkvæmd
notuð voru gögn sem starfsfólk heimahjúkrunar hafði aflað
með interrai-hC-upphafsmati annars vegar vorið 2013 á
Sauðárkróki og hins vegar í byrjun árs 2014 á akranesi, en á
mynd 1 má sjá þjónustusvæði heimahjúkunar á báðum stöð -
um. Enginn var útilokaður frá rannsókninni og engin íhlutun
gerð. umrædd gögn voru hluti af sjúkraskrárgögnum einstak-
linga sem þáðu heimahjúkrun á þessum stöðum. Þar sem um
fyrirliggjandi gögn var að ræða var ekki fengið upplýst sam -
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 51
Tafla 1. Skilgreining á þjónustuþörf samkvæmt MAPLe-flokkunum
MaPLe 1. Lítil þörf. Sjálfstæði í ákvörðunum og góð andleg og líkamleg færni
MaPLe 2. Væg þörf. Væg færniskerðing í heimilishaldi, þarf ekki aðstoð við
matseld
MaPLe 3. Meðalþörf. Skert færni í heimilishaldi, lyfjatiltekt, væg aDL-
skerðing
MaPLe 4. Mikil þörf. Skert vitræn geta eða aDL-færni, kyngingarvandi,
dettni
MaPLe 5. Mjög mikil þörf. Verulega skert vitræn geta og aDL-færni, hegð -
unar vandi