Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 61
aldraðra nr.125/1999). Til að geta boðið upp á lögboðna og
viðeigandi öldrunarþjónustu þurfa þeir sem skipuleggja og
veita hana að hafa greinargóðar upplýsingar um færni, fötlun
og heilsufar eldri borgara á hverjum tíma. Ein leiðin að slíkum
veruleika er að rannsakendur á sviði öldrunar og forsvarsmenn
í heilbrigðisþjónustu vinni saman að því að undirbúa þjóð -
félagið fyrir fyrirséða fjölgun í elstu aldurshópunum með því
að greina, fylgjast með og nýta upplýsingar um faraldursfræði
fötlunar meðal eldri borgara í ólíkum byggðum landsins.
færni, fötlun og heilsa eru flókin hugtök sem erfitt getur
verið að mæla. Þessi þrjú hugtök mynda kjarnann í hugmynda -
fræði flokkunarkerfisins „International Classification of Func -
tioning, Disability and Health“, eða iCf, (World health Organ iz-
ation [WhO], 2001) sem tengist flokkunarkerfinu iCD-10 fyrir
sjúkdóma og aðra heilsufarsvanda (alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin, 1996). Samkvæmt iCf ráðast færni og fötlun aldraðs
manns af samspilinu milli heilsufars hans og aðstæðna en
aðstæður eru ýmist umhverfis- eða einstaklingsbundnar (WhO,
2001; alþjóðaheilbrigðismálastofnunin o.fl., 2015). færni og
fötlun birtast meðal annars í athöfnum og þátttöku fólks en
þessi hugtök hafa sterka tengingu við sjálfs bjargar getu og al-
menna líðan fólks á efri árum. Í iCf er athöfn skilgreind sem
verk sem einstaklingur innir af hendi og þátttaka skilgreind
sem félagsleg aðild einstaklings að daglegu lífi (WhO, 2001;
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin o.fl., 2015).
Tilgangur þessa verkefnis var að rannsaka athafnir og þátt-
töku í daglegu lífi meðal eldri borgara sem búa í heimahúsum
á sunnanverðum Vestfjörðum. Leitað var svara við eftirfarandi
rannsóknarspurningum: (1) hversu erfitt eiga eldri borgarar
með margbreytilegar athafnir sem reyna á líkamlega getu? (2)
hversu oft taka eldri borgarar þátt í einstaklingsbundnum og
félagslegum athöfnum? (3) hversu takmarkaðir eru möguleikar
eldri borgara á að taka þátt í einstaklingsbundnum og félags-
legum athöfnum?
Aðferð
Rannsóknarsvæði
rannsóknin fór fram á sunnanverðum Vestfjörðum sem ná yfir
tvö sveitarfélög á rúmlega 1500 ferkílómetra svæði. Þorpin
Patreksfjörður og Bíldudalur tilheyra Vesturbyggð og það gera
einnig sveitirnar á Barðaströnd. Í Tálknafjarðarhreppi er þorpið
Tálknafjörður og sveitirnar þar í kring (mynd 1).
Þátttakendur
Í þýði rannsóknarinnar voru allir íbúar svæðisins sem bjuggu
í heimahúsum og höfðu náð 65 ára aldri, en þegar gögnum var
safnað árið 2013 voru þeir 13,6% af heildaríbúafjöldanum, eða
161. Einföld greining á tölfræðilegu afli (e. power analysis) með
forritinu g*Power 3 sýndi að það þurfti 128 þátttakendur til að
ná miðlungsáhrifastærð (Cohens d = 0,5) (faul o.fl., 2007).
útreikningarnir byggðust á óháðu t-prófi, (1 - β) = 0,80, α =
0,05 og tvíhliðaprófi. reiknað var með 80% þátttökuhlutfalli
og því var úrtakið skilgreint sem allt þýðið.
Siðfræði
rannsóknin var samþykkt af Siðanefnd Sjúkrahússins á akur-
eyri (nr. 1/2013). nöfn, heimilisföng og kennitölur voru fengn -
ar hjá Þjóðskrá og væntanlegum þátttakendum send upp -
lýsingabréf um rannsóknina og þeim boðin þátttaka. Bréfunum
var síðan fylgt eftir með símtali til að kanna hug fólks til þátt-
töku. Ekki náðist í sjö manns, aðrir sjö voru fjarverandi á rann-
sóknartímabilinu og 15 afþökkuðu þátttöku. alls urðu það því
129 manns sem tóku þátt í rannsókninni, eða 80,1% af upphaf-
legu úrtaki (þýðinu öllu).
Mælitæki
Tvö stöðluð mælitæki, Efri árin, mat á færni og fötlun (e. Late
Life function and Disability instrument), eða LLfDi, (jette
o.fl., 2002a) og Mini Mental State Examination (MMSE) (fol-
stein o.fl., 1975) voru notuð til að afla gagna auk sérútbúins
lista fyrir bakgrunnsupplýsingar. rannsakandi hitti alla þátt-
takendur á heimilum þeirra þar sem gögnunum var safnað
með samtölum. Í upphafi heimsóknar var gengið frá siðfræði -
legum atriðum sem fólu í sér nákvæma útskýringu á fram-
kvæmd rannsóknarinnar og undirritun upplýsts samþykkis.
Því næst var safnað viðeigandi bakgrunnsupplýsingum og
MMSE og LLfDi lögð fyrir. Í lokin voru þeir þátttakendur, sem
töldu möguleika sína á þátttöku vera töluvert, mjög eða algjör-
lega takmarkaða, beðnir um að tilgreina hvaða umhverfis -
þættir og einstaklingsbundnu þættir hindruðu þátttöku (til
dæmis heilsufar, andleg eða líkamleg orka, fjarlægðir milli staða,
að gengi, fjárhagur eða félagslegar aðstæður). heimsóknin tók
að meðaltali einn klukkutíma á hvern þátttakanda (0,5–2,5 klst.
á þátttakanda) og gagnasöfnunartímabilið spannaði 6 mánuði
í allt.
LLfDi (jette o.fl., 2002a) er staðlað mælitæki sem er ætlað
til að nota með einstaklingum 60 ára og eldri. Það er samið eftir
hugmyndafræði nagi en niðurstöður þess má auðveldlega túlka
í ljósi hugtaka iCf. Mælitækið er til í íslenskri þýðingu og hefur
verið notað í rannsóknum á högum aldraðra hér á landi (Árna-
dóttir, 2010). Það er lagt fyrir með viðtali þar sem fylgja þarf
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 61
Mynd 1. kort af rannsóknarsvæðinu, sunnanverðum Vestfjörðum
(birt með leyfi frá Landmælingum Íslands).