Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Side 62
stöðluðum framgangsmáta sem er ítarlega lýst í handbók (jette
o.fl., 2002a).
LLfDi mælitækið inniheldur 64 atriði alls og gefur af sér
10 mælikvarða, fjóra sem lýsa athöfnum (athafnahluti LLfDi)
og sex sem lýsa þátttöku (þátttökuhluti LLfDi).
athafnahluti LLfDi inniheldur 32 atriði þar sem viðmæl-
andi metur hversu erfitt hann á með að framkvæma hjálpar-
laust daglegar athafnir sem reyna á líkamlegt atgervi. Svör við
þessum hluta gefa stig á heildarmælikvarða sem kallast „Erfið -
leikar við athafnir — heild“. Þessum stigum er síðan deilt á þrjá
mælikvarða. Þeir eru: „Erfiðleikar við athafnir sem reyna á efri
útlimi“ (svo sem að skrúfa lok af krukku), „Erfiðleikar við at-
hafnir sem reyna á neðri útlimi“ (svo sem að fara inn og út úr
bíl) og „Erfiðleikar við athafnir sem reyna mikið á neðri útlimi“
(til dæmis að standa upp af gólfi). fyrir þá sem nota göngu-
hjálpartæki að staðaldri er hægt að velja hvort þeir svara miðað
við að þeir noti hjálpartækið eða ekki (haley o.fl.,2002). Í þess-
ari rannsókn voru þátttakendur beðnir um að svara spurning-
unum miðað við að þeir væru með þau hjálpartæki sem þeir
nota venjulega.
Þátttökuhluti LLfDi greinist í tvo heildarmælikvarða sem
kallast „Tíðni þátttöku — heild“ og „Takmörkun á þátttöku —
heild“ og hvor um sig inniheldur 16 atriði. fyrir „Tíðni þátttöku
— heild“ metur viðmælandinn hversu oft hann tekur þátt í
ákveðnum athöfnum (svo sem heimilishaldi eða skipulögðu
félagsstarfi). Svör um tíðni þátttöku deilast síðan á aðra tvo
mælikvarða, „Tíðni samskipta við aðra“ og „Tíðni eigin umsjár“.
fyrir „Takmörkun á þátttöku — heild“ metur viðmælandinn
að hvaða marki hann álítur þátttöku sína í þessum athöfnum
takmarkaða vegna persónulegra eða utanaðkomandi hindrana.
Þegar um slíkar hindranir er að ræða er viðmælandinn beðinn
um að tilgreina þær. Svör um takmörkun á þátttöku deilast
síðan á aðra tvo mælikvarða, „Takmörkun á virkni“ og „Tak-
mörkun á stjórn á eigin lífi“ (jette o.fl., 2002b).
Öll atriðin í LLfDi eru metin á fimm þrepa raðkvarða.
gildið 5 stendur fyrir minnstu erfiðleika við athafnir, hæstu
tíðni þátttöku og minnstu takmörkun á þátttöku og gildið einn
fyrir mestu erfiðleika, lægstu tíðni og mestu takmörkun. reikn -
uð er samtala (e. raw score) fyrir hvern mælikvarða og henni
umbreytt í mælitölu (e. scaled score), þ.e. tölugildi með jöfnum
bilum frá 0–100, samkvæmt töflu í handbók mælitækisins
(jette o.fl., 2002a). Taflan byggist á rasch-greiningu á niður -
stöðum úr rannsóknunum sem gerðar voru í stöðlunarferli
mælitækisins (haley o.fl., 2002; jette o.fl., 2002b).
rannsóknir á LLfDi hafa leitt í ljós vel viðunandi áreiðan-
leika og réttmæti og að gólf- og rjáfuráhrifa gætir í takmörk -
uðum mæli. rannsóknir á áreiðanleika hafa sýnt innanflokks -
stuðul (e. coefficient alpha) á bilinu 0,91–0,98 fyrir athafna-
hlutann (haley o.fl., 2002) og 0,68–0,82 fyrir þátttökuhlutann
(jette o.fl., 2002b). niðurstöður þáttagreiningar og rasch-
grein ingar renna stoðum undir réttmæti mælitækisins (jette
o.fl., 2002a haley o.fl., 2002; jette o.fl., 2002b). að auki hafa
fjöl margar rannsóknir stutt við hugsmíða (e. construct) rétt-
mæti og sýnt fram á næmi LLfDi til að mæla breytingar
(e. sensitivity to change) í hópi eldri borgara almennt og af-
markaðra hópa með ákveðna sjúkdóma (Beauchamp o.fl., 2016).
Úrvinnsla
forritið SPSS 22.0 var notað við tölfræðilega úrvinnslu. Með
lýsandi greiningu fengust upplýsingar um miðsækni, dreifingu,
tíðni og hlutföll fyrir hópinn í heild, karla og konur og yngri
(65–74 ára) og eldri (75–91 árs) aldurshópa. T-próf óháðra úr-
taka voru notað til að greina marktækan mun milli hópa á sam-
felldum breytum sem uppfylltu skilyrði um normaldreifingu
og jafna dreifni (allir mælikvarðar LLfDi, vitræn geta, aldur
og menntunarstig í árum). kí-kvaðrat próf var notað við grein-
ingu á tvíkosta bakgrunnsbreytum og Mann-Whitney U próf
fyrir sjálfsmat á heilsu. Miðað var við marktektarmörkin p<
0,05 og ekki var leiðrétt fyrir endurteknar prófanir. Þeir 79 þátt-
takendur sem sögðu þátttöku sína vera takmarkaða voru beðnir
um að nefna þær hindranir sem takmörkuðu þátttöku þeirra.
Þessi svör þátttakenda voru sett upp í tíðnitöflu og flokkuð í
heilsufar og líkamlega og andlega starfsemi, umhverfisþætti og
einstaklingsbundna þætti, með hliðsjón af flokkunarkerfi iCf
(WhO, 2001).
Niðurstöður
Bakgrunnsupplýsingar
Þátttakendurnir 129 voru á aldrinum 65 til 91 árs og íslenska
var móðurmál þeirra allra. kynjahlutfallið var nokkuð jafnt,
52,7% konur (n=68) og 47,3% karlar (n=61). Tafla 1 sýnir bak-
grunnsupplýsingar um þátttakendur greindar eftir kyni og ald-
urshópum. karlarnir óku frekar bíl en konurnar, voru frekar í
hjónabandi eða sambúð og bjuggu síður einir. konurnar áttu
frekar ættingja og vini á svæðinu og þær þáðu frekar óformlega
aðstoð en karlarnir. Marktækur munur var á nær öllum bak-
grunnsbreytum þegar yngri (65–74 ára) og eldri (75–91 árs)
aldurshóparnir voru bornir saman. Þegar rýnt var í niðurstöður
MMSE kom í ljós að 94 (72,9%) voru með stig frá 27–30 (af
30), 29 (22,5%) voru með stig frá 22–26 og sex (4,7%) voru með
stig frá 17–20.
Athafnir og þátttaka (LLFDI)
Tafla 2 sýnir allar niðurstöður úr mælitækinu LLfDi og grein-
ingu þeirra eftir kyni og aldri. niðurstöðurnar sýna að á mæli-
kvörðunum fyrir erfiðleika við athafnir voru lægstu mælitöl -
urnar (mestu erfiðleikarnir) fyrir athafnir sem reyna mikið á
neðri útlimi. að jafnaði áttu þátttakendur síst í erfiðleikum
(hæstu mælitölurnar) með athafnir sem reyna á efri útlimi.
Meðaltal mælitölunnar fyrir „Tíðni þátttöku“ var frekar lágt
(M=50,6) og mun lægra en fyrir „Takmörkun á þátttöku“
(M=73,6). greining á LLfDi niðurstöðum eftir kyni sýndi að í
heildina voru karlar með hærri mælitölu fyrir athafnir sem
reyna á líkamlega getu og byggði það á hærri útkomu fyrir bæði
„Erfiðleika við athafnir sem reyna á efri útlimi“ og „Erfiðleika
við athafnir sem reyna mikið á neðri útlimi“. Þrátt fyrir meiri
erfiðleika kvennanna við athafnir þá mátu þær sig hærra á
kvarðanum „Tíðni þátttöku“ og byggði það sérstaklega á tíðum
samskiptum þeirra við aðra. Ekki greindist kynjamunur á „Tak-
mörkun á þátttöku“. greining á LLFDI niðurstöðum eftir ald-
urshópum sýndi að yngri aldurshópurinn (65–74 ára) var með
margrét brynjólfsdóttir, guðrún pálmadóttir og sólveig ása árnadóttir
62 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018