Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 83

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 83
Veita ætti ungum hjúkrunarfræðingum sem starfa á lands- byggðinni tækifæri til að fara í námsheimsóknir á stærri stofn- anir þar sem þeir geta fylgst með reyndum hjúkrunarfræð - ingum að störfum (Takase, 2013). Í inngangi kom fram að vegna þess að landsbyggðarhjúkrunarfræðingar sinna færri bráðatilvikum en hjúkrunarfræðingar í borg gæti sjálfstraust minnkað og sömuleiðis efasemdir um eigin hæfni aukist (jones o.fl., 2015). niðurstöður þessarar rannsóknar styðja ekki við það. Skýringin gæti legið í háu hlutfalli viðbótarmenntunar og háum starfsaldri landsbyggðarhjúkrunarfræðinga. Ekki fundust rannsóknir á hæfni landsbyggðarhjúkrunar - fræðinga á bráðamóttökum erlendis sem byggja á nSC mæli- tækinu, en gerðar hafa verið rannsóknir á tveimur háskóla - sjúkrahúsum í finnlandi auk bráðamóttöku Landspítala (Dóra Björnsdóttir, 2015; Meretoja, Leino‐kilpi o.fl 2004; numminen, Meretoja o.fl, 2013). Íslenskir hjúkrunarfræðingar telja sig betri en þeir finnsku í öllum hæfniþáttunum þótt vissulega sé ekki hægt að segja hvort um marktækan mun sé að ræða. hjúkrunar - fræðingar þessarar rannsóknar meta heildarhæfni sína meiri en bæði finnsku hjúkrunarfræðingarnir og þeir sem starfa á bráðamóttöku Landspítala þótt ekki muni miklu á þátttak- endum í þessari rannsókn og hjúkrunarfræðingum á bráða - móttöku Landspítala. Ástæður þess að hjúkrunarfræðingar á landsbyggðinni meta hæfni sína meiri en þeir á Landspítala geta verið þær að hlutfallslega fleiri hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa minni en fimm ára starfsaldur samanborið við þá á landsbyggðinni (38,2% vs 27,5%) og hlutfallslega færri hafa lokið viðbótarnámi (27,6% vs 40,8%). Ein af ástæðum fyrir því að íslenskir hjúkr- unarfræðingar gefa sér hærri einkunn en þeir finnsku gæti legið í lengra námi á Íslandi. hér á landi er hjúkrunarnámið 240 ECTS einingar en 210 ECTS einingar í finnlandi (rå- holmo.fl., 2010). Bent hefur verið á, í fræðilegri umfjöllun um hæfnihug- takið, að hæfni tengist alltaf menningarlegum viðmiðum og gildismati. Einstaklingurinn skilgreinir eigin hæfni út frá ríkj- andi gildum í þeim hóp sem hann tilheyrir (ragnhildur Bjarna- dóttir, 2008). Þó að störf hjúkrunarfræðinga í finnlandi séu mjög svipuð og á Íslandi má vera að íslenskir hjúkrunar - fræðingar séu sjálfstæðari í störfum sínum eða að mismunur á þessum tveimur samfélögum geri það að verkum að íslenskir hjúkrunarfræðingar telja sig hæfari en þeir finnsku. hjúkrunarfræðingarnir meta hæfni sína mesta í hæfniþætt- inum stjórnun í aðstæðum. Það er í samræmi við að þetta eru hjúkrunarfræðingar sem sinna slösuðum og bráðveikum sjúk- lingum og því mikilvægt að þeir hafi þessa stjórn (Curtis o.fl., 2009). Þeir meta hæfnina slakasta í tryggingu gæða. gæði í heil- brigðisþjónustu eru mikilvæg en vel má vera að spurningarnar í þeim þætti höfði ekki til almennra hjúkrunarfræðinga því að vissulega er það á þeirra ábyrgð að gæði þjónustunnar séu mikil til að tryggja fagmennsku í hjúkrun og öryggi sjúklinga. Þegar horft er á einstök hæfniverkefni er athyglisvert að ekkert verk- efni í hæfniþættinum kennslu- og leiðbeinandahlutverk er meðal þeirra tíu sem þátttakendur meta sig hæfasta í né þeim sem þeir framkvæma oftast. hinsvegar eru fimm og sex hæfni- verkefni úr þessum þætti meðal þeirra tíu sem þeir meta hæfni sína lakasta í og sem þeir framkvæma sjaldnast. Vissulega eru mörg hæfniverkefni í þessum þætti, en sama má segja um hæfniþáttinn starfshlutverk en þar raðast mun fleiri hæfniverk- efni meðal efstu tíu en neðstu tíu. hæfniverkefni í kennslu- og leiðbeinandahlutverk snúa talsvert að sjúklingafræðslu og sjúk- lingnum og mikilvægt er að skoða hvort hjúkrunarfræðing- arnir telji að þar megi bæta hæfni þeirra. jafnframt má kanna betur hvort flokka eigi saman kennslu og leiðbeiningar til sjúk- linga annarsvegar og til annarra hjúkrunarfræðinga og nem- enda hinsvegar eins og gert er í nSC mælitækinu, og hvort aðgreina megi betur stærri stofnanir og minni. Takmarkanir Styrkur rannsóknarinnar felst í því að þetta er sú fyrsta sem gerð er á hjúkrunarfræðingum sem starfa við mótttöku slasaðra og bráðveikra á landsbyggðinni. jafnframt að notast var við mælitæki sem hefur verið þróað erlendis og staðfært á hjúkr- unarfræðingum starfandi á bráðamótttöku Landspítala. Svör- unin var 60% sem er viðunandi. Ekki er vitað hver svörun var hjá mismunandi stofnunum vegna þess að ekki var hægt að afla nákvæmra upplýsinga sökum fámennis þátttakenda. hinsvegar var erfitt að velja og nálgast hjúkrunarfræðinga sem uppfylla skilyrði rannsóknarinnar en skilgreindar bráðadeildir eru alls ekki á öllum heilbrigðisstofnunum landsbyggðarinnar. að mati okkar var besti kosturinn valinn, sem var að leita til stjórnenda á heilbrigðisstofnunum. Það er þó ekki gallalaust en eftir sam- einingar stofnana á landsbyggðinni getur verið hætta á að fram- kvæmdastjórar hafi lakari yfirsýn yfir störf almennra hjúkr - unar fræðinga á smærri einingum. Þar treystu höfundar á að framkvæmdastjórar hefðu leitað til viðeigandi aðila innan stofn unar um upplýsingar. Þá má geta þess að „bráð veikindi og slys“ var ekki skilgreint fyrir framkvæmdastjórum og fjöldi þátttakenda gæti byggt á huglægu mati einstakra stjórnenda á því um hvernig tilvik var að ræða. Einn af göllum sjálfsmatslista er sú hætta að þátttakendur svari spurningum í samræmi við hvernig þeir telja æskilegt sé að svara þeim, en ekki út frá raunveruleikanum (Polit og Beck, 2012). Einnig má vera að athygli við svörun spurningalistans haldist ekki allan tímann þegar hann felur í sér 73 spurningar. Hagnýting rannsóknarniðurstaða niðurstöður þessarar rannsóknar gefa skýra vísbendingu um að endurmenntun og starfsreynsla hafi áhrif á hæfni hjúkrunar - fræðinga sem sinna bráðatilvikum á landsbyggðinni. Stjórn- endur stofnana ættu því að gera hjúkrunarfræðingum fært að sækja sér endurmenntun og leitast við að halda í þá sem hafa mikla starfsreynslu. Þakkir Þakkir fá allir hjúkrunarfræðingarnir sem tóku þátt í þessari rannsókn og hrund S. Thorsteinsson, katrín Blöndal, Þórdís katrín Þorsteinsdóttir, Brynja ingadóttir, Dóra S. Björnsdóttir og auðna Ágústsdóttir. ritrýnd grein scientific paper tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 83

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.