Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 88
viðmið rannsakenda í töflu 2) og farið út á vinnumarkaðinn
aftur og/eða í nám. Þetta skilyrði var sett því að rannsakendur
vildu skilja betur vegferðina frá niðurbroti í kjölfar áfalls til auk-
ins þroska. fyrir viðtölin lásu væntanlegir þátttakendur yfir
viðmiðin um meiri þroska sem rannsakendur höfðu sett út frá
lestri heimilda. Þau tóku svo þátt á þeirri forsendu að þau upp-
fylltu viðmiðin. Miðað var við að meira en sex mánuðir væru
liðnir frá áfallinu en í Vancouver-skólanum er lögð áhersla á að
fólk sé ekki statt í miðri reynslunni þegar viðtöl eru tekin heldur
hafi haft tækifæri til að vinna úr reynslu sinni að einhverju leyti
(Sigríður halldórsdóttir, 2013). að verða fyrir sálrænu áfalli
getur átt stóran þátt í því að fólk þrói með sér ýmis sálræn
vandamál (Boals o.fl., 2013; Brown o.fl., 2014; Dar o.fl., 2014).
Svo meta mætti þennan þátt betur var eitt af skilyrðum fyrir
þátttöku í rannsókninni að þátttakandi hefði ekki haft sjúk-
dómsgreiningu af geðrænum toga fyrir áfallið. aðalrannsak-
andinn spurði því öll þau sem buðust til að taka þátt í rann -
hulda sædís bryngeirsdóttir, sigríður halldórsdóttir
88 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Tafla 1. Tólf þrep rannsóknarferlis Vancouver-skólans í fyrirbærafræði
Þrep í rannsóknarferlinu Það sem gert var í þessari rannsókn
Þrep 1
Val á samræðufélögum. Valdir voru tólf þátttakendur sem uppfylltu skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni.
Þrep 2
undirbúningur hugans. aðalrannsakandi ígrundaði fyrirframgerðar hugmyndir sínar um fyrirbærið og setti þær meðvitað til hliðar.
Þrep 3
Þátttaka í samræðum. Eitt viðtal við tíu þátttakendur, tvö viðtöl við tvo þátttakendur, sjö konur og fimm karla, samtals fjórtán viðtöl.
Þrep 4
Skerpt vitund varðandi hugmyndir Viðtölin voru hljóðrituð, skrifuð orðrétt upp í tölvu og dulkóðuð jafnóðum. unnið var samhliða að gagna-
og hugtök. söfnun og gagnagreiningu.
Þrep 5
Þemagreining (kóðun – coding). Viðtölin ítrekað lesin yfir og athugasemdir skrifaðar á spássíu svo finna mætti kjarnann í innihaldi þeirra og
leita svara við rannsóknarspurningunni. hvert og eitt viðtal var greint ítarlega. greind voru bæði megin- og
undirþemu.
Þrep 6
að smíða greiningarlíkan fyrir hvern Megin- og undirþemun í sögu hvers þátttakanda voru dregin fram og þau mikilvægustu sett fram í greiningar-
þátttakanda. líkani fyrir hvert þeirra.
Þrep 7
Staðfesting á hverju greiningarlíkani
með viðkomandi þátttakanda. Staðfestingar var leitað hjá öllum þátttakendum á greiningu eigin viðtals og greiningarlíkans.
Þrep 8
heildargreiningarlíkan er smíðað úr Öll einstaklingsgreiningarlíkönin voru borin saman innbyrðis og smíðað heildargreiningarlíkan sem er
öllum einstaklingsgreiningarlíkönunum. yfirlit yfir niðurstöður.
Þrep 9
heildargreiningarlíkanið borið saman Til að tryggja þetta voru öll viðtölin ítrekað lesin yfir og borin saman við heildargreiningarlíkanið (yfirlitið
við rannsóknargögnin (rituðu viðtölin). yfir niðurstöður).
Þrep 10
Yfirþema sett fram sem lýsir fyrirbærinu Titillinn sem valinn var er: „Eins og að fara niður svarta brekku og koma svo upp græna hlíðina …“ sem er
(niðurstöðunum) í hnotskurn. orðrétt tilvitnun í orð eins þátttakanda og þótti lýsa vel reynslu þátttakenda af áhrifum áfalla og auknum þroska
í kjölfar þess.
Þrep 11
Staðfesting á niðurstöðum með
einhverjum þátttakendum. allir þátttakendur staðfestu niðurstöður utan einn sem svaraði ekki.
Þrep 12
niðurstöður rannsóknarinnar skrifaðar Vitnað var beint í þátttakendur til að auka trúverðugleika rannsóknarinnar og sýna að niðurstöður byggja
upp þannig að raddir allra heyrist. á orðum þeirra.
Tafla 2. Viðmið rannsakenda varðandi aukinn þroska í kjölfar áfalls
• jákvæð breyting hjá einstaklingi eftir mikla erfiðleika og
áföll
• Meiri persónulegur styrkur
• aukin ánægja í samböndum
• jákvæð breyting á lífssýn
• kemur auga á nýja möguleika
• jákvæð andleg breyting
• Lífsreynslan, þrátt fyrir að vera neikvæð í sjálfri sér, hefur
þegar upp er staðið haft jákvæða merkingu
Byggt á: abel, o.fl., 2014; Barton o.fl., 2013; Calhoun og Tedeschi, 2014;
Coroiu o.fl., 2015; de Castella og Simmonds, 2013; jin o.fl., 2014; Su og
Chen, 2015; og Taku o.fl., 2015.