Morgunblaðið - 02.11.2019, Side 1
L A U G A R D A G U R 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 258. tölublað 107. árgangur
STÓRSKEMMTI-
LEGAR SÖGUR
FYRIR BÖRN FJALLAFERÐIR Í ÁSKRIFT
VINSÆLT HJÁ ÍSLENDINGUM 14FJÖLBREYTT YFIRLIT 52
Aðeins þrjú þeirra 56 sveitarfélaga
landsins sem eiga að hafa fengið
jafnlaunavottun fyrir lok þessa árs
hafa fengið staðfesta vottun. Þau eru
Hafnarfjörður, Mosfellsbær og
Fljótsdalshérað. Jafnréttisáætlanir
eru forsenda þess að fyrirtæki,
stofnanir og sveitarfélög geti fengið
jafnlaunavottun. Sveitarfélögum ber
lögum samkvæmt að leggja fram
jafnréttisáætlanir til samþykktar í
sveitarstjórnum ekki síðar en ári eft-
ir sveitarstjórnarkosningar, en nú
eru fimm mánuðir liðnir frá því að sá
frestur rann út. Í bréfi Jafnréttis-
stofu um stöðu þessara mála sem
lagt var fram á seinsta stjórnarfundi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
kemur fram að 18. október sl. höfðu
26% sveitarfélaga skilað fullgildum
jafnréttisáætlunum.
112 fyrirtæki og stofnanir hafa
fengið jafnlaunavottun og þeirra á
meðal eru öll ráðuneytin. »24
Þrjú af 56 hafa
fengið vottun
Mörg sveitarfélög komin fram yfir frest
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gangi ný þjóðhagsspá Hagstofunnar
eftir gætu orðið til 1.500 til 2.000 ný
störf í hagkerfinu á næsta ári.
Þetta er mat Karls Sigurðssonar,
sérfræðings hjá Vinnumálastofnun,
sem vísar til reynslu fyrri ára.
Árið 2020 yrði því níunda árið í röð
sem störfum fjölgar á Íslandi.
Þrátt fyrir það mun atvinnuleysi
aukast enda þarf fleiri störf til að
mæta fjölgun á vinnumarkaði. Þá
gæti áframhaldandi aðflutningur
fólks haft áhrif á atvinnustigið.
Sögulegur fjöldi nýrra starfa
Miðað við háspá gætu orðið til
34.500 störf á árunum 2012-2020.
Það eru um 50% fleiri störf en á
þensluárunum 2005 til 2008.
Samkvæmt þjóðhagsspánni verð-
ur 1,7% hagvöxtur á næsta ári, 2,7%
vöxtur kaupmáttar og verðbólgan
við 2,5% markmið Seðlabankans.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir útlit
fyrir frekari fækkun starfa í vetur. Á
þessum stað í hagsveiflunni sé mikil-
vægt að lækka vexti og álögur svo
fyrirtækin nái viðspyrnu.
Það sé mat samtakanna að fram-
vinda efnahagsmála muni mikið til
ráðast af hagstjórnaraðgerðum.
Sérfræðingur í ferðaþjónustu,
sem óskaði nafnleyndar, sagði mörg
fyrirtæki í greininni vera að segja
upp starfsmönnum. Um væri að
ræða einn til nokkra starfsmenn og
því færi lítið fyrir því í fjölmiðlum.
Mörg fyrirtækjanna hefðu fjárfest
til að mæta fjölgun ferðamanna sem
ekki varð.
Frekari fækkun í vetur
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir áfram horfur á fækk-
un starfa í greininni í vetur.
Alls hafi um 2.500 störf tapast í
ferðaþjónustu í ár vegna falls WOW
air, launahækkana og annarra ytri
þátta í rekstrinum. Áður hafi verið
áætlað að störfum í ferðaþjónustu og
tengdum greinum myndi fækka um
2.500 til 3.500 eftir fall WOW og
vegna erfiðara rekstrarumhverfis.
Niðursveiflan sé því mildari en spáð
var en þróun næstu mánuði muni
hafa mikið að segja um framhaldið.
Til dæmis geti ný flugfélög orðið
til að skapa störf í greininni.
Sérfræðingur í flugi segir
bókunargluggann í flugi til Íslands
fyrir sumarið vera 50 til 100 daga.
Því þurfi nýtt flugfélag að hefja sölu í
kringum áramót ætli það að vera
komið í loftið fyrir maí.
Spá fjölgun starfa
eftir skamma dýfu
Vinnumálastofnun spáir allt að 2.000 nýjum störfum 2020
Lágspá Háspá
2019 2020
1.500
1.000
2.000
1.500
Áætlun um fjölgun
starfandi 2019-2020
Heimild: Vinnumálastofnun
MSpá 1.500 til 2.000 nýjum … »6
Sólargangur styttist nú óðum, lauf falla af trjánum og grös
eru sölnuð. Svona er gangur árstíðanna enda þótt ágætt veð-
ur hafi verið á landinu í gær og því tilvalið að fara í göngu-
ferð, til dæmis í Laugardalnum í Reykjavík sem er vinsælt úti-
vistarsvæði. Útlit er fyrir ágætt veður á morgun víðast hvar á
landinu og aðstæður til útivistar verða því eins og best verður
á kosið. Þó má búast við éljagangi um landið austanvert og
hugsanlega vægu frosti á Norðurlandi sem ætti þó varla að
stoppa veiðimenn, nú um fyrstu rjúpnaveiðihelgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laufin falla af trjánum í aspargöngunum í Laugardalnum
„Enginn er á móti hjólastíg á svæð-
inu og þetta verður eflaust vandaður
stígur en við viljum hann ekki á þess-
um stað vegna þess að hann rífur
hjartað úr skógarlundinum,“ segir
Guðmundur Sigurðsson, íbúi í Vest-
urási, við Morgunblaðið.
Vísar hann til framkvæmda við
göngu- og hjólastíg í Víðidalshlíð
skammt ofan og vestan við íþrótta-
svæði Fáks í Selásnum í Reykjavík.
Eru íbúar í nágrenninu sagðir
óánægðir með hvar stígurinn liggur.
Borgin segir framkvæmdirnar
hafa verið samþykktar í íbúakosn-
ingu. Guðmundur segist þó ekki
kannast við það. „Kosningin fór
framhjá mér og nágrönnum mínum
og við höfum ekki séð neinar teikn-
ingar,“ en búið er nú að grafa fyrir
stígnum með tilheyrandi raski á
jarðvegi á svæðinu. »19
Lundur látinn víkja
Íbúar kannast ekki við kosningu