Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 NÝTT Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GÁMAFESTINGAR Einföld lausn til að tryggja að gámar fjúki ekki. Gámafestingar og undirstöður fyrir flutningagáma Tryggðu gámnum þínum góða festu á undirstöðu eða steypt plan Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Hljómsveitin Mógil gaf í september út sína fjórðu breiðskífu er nefnist Aðventa. Í þetta skipti notar hljóm- sveitin sígildu skáldsöguna Aðventu eftir rithöfundinn Gunnar Gunnars- son sem innblástur fyrir bæði lög og texta. Hvert lag tekur á ákveðnum hluta sögunnar og reynir hljóm- sveitin að skapa þá tilfinningu og stemningu sem fylgir sögunni. Meðlimir Mógils eru þau Heiða Árnadóttir, söngvari hljómsveit- arinnar, Joachim Badenhorst sem spilar á klarínett, Hilmar Jensson á gítar, Kristín Þóra Haralds- dóttir á víólu og Eiríkur Orri Ólafsson á trompet. „Þetta kom bara upp sem hug- mynd,“ segir Heiða um aðdragand- ann að því að gera plötu innblásna af Aðventu. „Við vorum á tónleika- ferðalagi í Belgíu í fyrra og hugs- uðum hvað okkur langaði að gera næst því við ætluðum að taka upp nýja plötu í sumar. Allar okkar plötur eru þema- kenndar; á fyrstu plötunni, Ró, var haustþema, önnur platan, Í stillunni hljómar, var sumarplata og svo var vetrarþema á Korriró, þeirri þriðju. Við vorum að velta fyrir okkur hvað væri næst og okkur datt í hug að gera jólaplötu en þá kom Eiríkur Orri trompetleikari með þessa hug- mynd að nota Aðventu.“ Heiða segir að sér þyki mjög vænt um söguna og hún les hana á hverri aðventu. „Þetta var einhvern veginn fyrsta hugmyndin og sú besta,“ seg- ir hún og hlær. „Við lásum öll bókina og fengum innblástur frá henni.“ Saga sem býður upp á margt Aðventa fjallar um fjárhirðinn og vinnumanninn Benedikt sem á hverju ári gengur aleinn uppi á öræfum landsins í leit að sauðfé sem ekki hefur skilað sér við smala- mennsku um haustið. Það hefur hann gert í 27 ár og fylgir sagan einni slíkri svaðilför Benedikts, eða Fjalla-Bensa eins og hann er kall- aður, er hann heldur af stað upp á hálendið á fyrsta sunnudegi aðventu. Heiða nefnir lag Hilmars á plöt- unni, Botn, sem dæmi um hvernig hljómsveitin reynir að fanga tilfinn- inguna sem Aðventu fylgir. „Botn er síðasti bærinn sem Bensi heimsækir áður en hann fer upp á hálendi og fyrsti bærinn sem hann heimsækir er hann kemur til baka,“ segir Heiða og bætir við að þá reyni hljómsveitin að koma fólki í takt við hlýjuna sem Bensi finnur fyrir á Botni. „Við sköpum stemningu við hluta af sög- unni með hverju lagi,“ segir hún. „Þessi saga býður upp á svo margt. Hún er svo köld og það er þetta frost, þessi dimma og þetta veður en svo er hún líka með þessa hlýju og mannkærleik. Hún hefur einhvern veginn allt þessi saga. Þessi góðmennska að ætla að bjarga kindunum frá dauða. Einnig þessi einvera og þessi maður með sína brostnu drauma sem eyðir sínum frí- tíma í að fara og bjarga kindum.“ Gunnar Gunnarsson byggði sögu sína á raunverulegum manni, Bene- dikt Sigurjónssyni úr Mývatnssveit, eins og kom fram í Morgunblaðinu nýlega. „Það er sagt að það sé hægt að sjá hvert hann fór þegar hann þurfti skjól á hálendinu,“ segir Heiða. Gefa út hjá þýskri útgáfu Heiða segir plötuna nokkuð ólíka fyrri plötum hljómsveitarinnar að því leyti að nú er um að ræða mun þrengra viðfangsefni. „Hún er nokk- uð fastmótaðri en fyrri plötur þar sem hún einblínir á þessa sögu.“ Þýska plötuútgáfan Winter & Winter gefur plötuna út og er þetta í fyrsta skipti sem Mógil vinnur með útgáfunni. „Fyrsta platan okkar var gefin út af Radical Duke í Belgíu og það gekk rosalega vel. Það var mikil auglýsing og við gátum spilað mikið úti vegna þess. En svo gáfum við sjálf út næstu tvær plötur og það gekk ekki eins vel. Það var erfiðara,“ segir Heiða og kveðst heppin að fá að starfa með Winter & Winter, það sé frábær útgáfa. „Við vorum svo glöð að þau skyldu taka okkur upp á sína arma en þau dreifa út um allan heim, meira að segja í Japan. Þá rætist kannski draumurinn minn um að spila í Jap- an,“ segir Heiða sposk en Joachim Badenhorst, meðlimur sveitarinnar, hefur verið í samstarfi við Winter & Winter áður. Mógil heldur útgáfutónleika á morgun, sunnudaginn 3. nóvember, í Gunnarshúsi kl. 17 en í dag, laug- ardag, kl. 14 leikur hljómsveitin í Vinaminni á Akranesi á vegum Kal- man - listafélags. Orri Huginn Ágústsson leikari mun lesa upp val- inn texta úr sögunni Aðventu á hvor- um tveggja tónleikum sem eru styrktir af Reykjavíkurborg. Þá hyggst hljómsveitin einnig fara um landið næsta sumar og spila. Miða á útgáfutónleikana má kaupa á midi.is. Reyna að skapa stemningu  Hljómsveitin Mógil gaf nýverið út sína fjórðu plötu, Aðventu  Nota skáld- sögu Gunnars Gunnarssonar sem innblástur  Útgáfutónleikar á morgun Stemning Hljómsveitin Mógil. „Hjartað í fjallinu“ er yfirskrift tónlistardagskrár í Reykholts- kirkju á morgun sem tileinkuð er Páli á Húsafelli. Dagskráin hefst kl. 20.30 og flytjendur eru Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnars- sonar ásamt Reykholtskórnum undir stjórn Viðars Guðmunds- sonar. Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og slagverksleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, þeir Frank Aarnink og Steef van Oosterhout sem leika á stein- hörpur Páls, ásamt honum sjálf- um, verða einnig meðal flytjenda. Ljóð við verk Páls hafa í flestum tilfellum verið ort til hans eða um hann, m.a. ljóðið við titillag tón- leikanna en það er eftir Sigurð Pálsson. Hljóðfærasmiður Páll á Húsafelli. Hátíðartónleikar tileinkaðir Páli Hin árlega keppni ungra einleik- ara fór fram 25. og 26. október í Hörpu. Í dómnefnd sátu Sigrún Eðvaldsóttir, fiðluleikari og for- maður dómnefndar, Stefán Jón Bernharðsson hornleikari, Signý Sæmundsdóttir söngkona og pí- anóleikarinn Richard Simm. Dómnefnd valdi fjóra einleikara sem koma munu fram með SÍ í Eldborg á næsta ári, þau Sólveigu Vöku Eyþórsdóttur sem leikur á fiðlu, Flemming Viðar Valmunds- son sem leikur á harmonikku, Gunnar Kristin Óskarsson sem leikur á trompet og Kristínu Ýri Jónsdóttur sem leikur á þver- flautu. Fjögur valin í einleikarakeppni Konur í rokki verða hylltar með tónleikum á Hard Rock Café á morgun kl. 22 en hleypt verður inn frá kl. 21. Söngkonan Katrín Ýr og bassaleikarinn Erla Stefánsdóttir, í samvinnu við VOX Collective, standa fyrir kvöldinu og munu flytja marga stórgóða slagara sem koma allir úr vopnabúrum kvenna í rokki víðs vegar úr heiminum í gegnum tíðina, eins og segir á Facebook um tónleikana. Meðal þeirra kvenna og sveita sem þær munu heiðra eru Cranberries, Janis Joplin og Alanis Morissette. Katrín er Reykvíkingur en hefur búið í London og starfað við tónlist síðastliðin 13 ár sem söngkona. Erla hefur starfað við tónlist frá unglingsárum og þá nýlega með hljómsveit sinni Dalí og einnig með hljómsveitinni Grúska Babúska. Í hljómsveit kvöldsins eru, auk Katr- ínar og Erlu, þeir Helgi Reynir Jónsson, Jón Ingimundarson og Ed Broad. Hylla konur í rokki á Hard Rock Café Heiðurskona Janis Joplin er meðal þeirra kvenna sem verða heiðraðar. Myndlistarmaðurinn Halldór Ragn- arsson opnar sýningu í menningar- húsinu Hofi í dag kl. 16. Í umsögn Gunnars J. Árnasonar heimspek- ings um verk Halldórs segir m.a. að þau hafi undafarin ár einkennst af stuttum setningum sem séu stimpl- aðar æ ofan í æ með smágerðu og daufu letri eða páraðar með ákafri rithendi yfir myndflötinn. „Runur og spíralar af endurteknum setn- ingum sem vísa í sjálfa sig eða merkingu myndarinnar eru eins og bænaþula sem myndar samfelldan klið á yfirborðinu,“ er haft eftir Gunnari í til- kynningu og að Halldór hafi ákveðið að þurrka út öll um- merki um rituð skilaboð á sýn- ingunni í Hofi. Þar séu aðeins auðir fletir sem vegi salt í ein- hverri óvissu milli þess sem er annaðhvort rétt nýlega yfirstaðið eða hér um bil að skella á. Öll ummerki um skilaboð þurrkuð út Halldór Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.