Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 SALURINN Hamraborg 6 200 Kópavogi 44 17 500 salurinn.is Jólatónleikar 8. og 9.12. Aukatónleikar 10.12. Miðasala Salurinn.is SÆTABRAUÐS DRENGIRNIR Bergþór, Gissur Páll, Hlöðver og Viðar ásamt Halldóri Smárasyni, útsetjara og píanóleikara. Sýningin Sveinn Kjarval – það skal vanda sem lengi á að standa verður opnuð í sýningarsal Hönn- unarsafns Íslands í dag kl. 16. Á henni er sjónum beint að mikil- vægu brautryðjendastarfi Sveins, sem fæddist árið 1919 og lést 1981, á sviði húsgagna- og innan- hússhönnunar um tveggja áratuga skeið, frá 1950 til 1970. „Þá bárust hingað ríkjandi hugmyndir um nú- tímaleg og skynsamleg húsakynni þar sem húsgögn áttu umfram allt að vera einföld, létt og hentug og gerð úr efnivið sem fengi að njóta sín án nokkurs skrauts,“ segir í tilkynningu um það tímabil. Um Svein segir að hann hafi verið afkastamikill hönnuður inn- réttinga í nútímastíl fyrir versl- anir, veitingahús og opinber rými sem tískusveiflur og nýjar kröfur í tímans rás hafi nú að mestu afmáð en séu gerð skil á sýningunni í samtímaljósmyndum og varð- veittum teikningum. Húsgögn Sveins hafi staðist vel tímans tönn en stefna hans ætíð verið að vanda það sem lengi ætti að standa. „Húsgögn Sveins úr safneign Hönnunarsafns Íslands eru megin- uppistaðan í sýningunni en safnið nýtur jafnframt velvildar einstak- linga sem lána verk og Þjóðskjala- safns Íslands um lán á teikn- ingum. Sveinn tileinkaði sér jafnan þann íslenska efnivið sem fyrir hendi var – notaði nær ein- göngu íslensk ullaráklæði og skinn á stóla og var líklega einna fyrstur til þess að nota íslenskar berg- tegundir í innanhússhönnun hér á landi,“ segir í tilkynningu og að sýningunni sé ætlað að styðja söfnunarmarkmið Hönnunarsafns Íslands á sviði húsgagna- og innanhússhönnunar og sé framlag til miðlunar sögu hönnunar á Íslandi. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Áhrifamikill Sveinn hafði mikil áhrif á íslenska húsgagnasmíð. Hér er hann á vinnustofu sinni. Það skal vanda sem lengi á að standa  Sveinn Kjarval í Hönnunarsafninu Yfirlitssýningin Guðjón Samúelsson húsameistari verður opnuð í Hafnar- borg í dag kl. 17 í tilefni þess að öld er liðin frá því að Guðjón lauk há- skólaprófi í byggingarlist árið 1919 og var í framhaldinu skipaður húsa- meistari ríkisins árið 1920. „Það er ekki hægt að ala upp góða menn nema í fallegu umhverfi,“ er haft eft- ir Guðjóni á boðskorti sýningar- innar. Aðspurð segir Ágústa Kristó- fersdóttir, forstöðumaður Hafnar- borgar og sýningarstjóri ásamt Pétri H. Ármannssyni arkitekt, sýn- ingartextana að stærstum hluta byggjast á frásögn Guðjóns sjálfs um eigin byggingar. „Á sýningunni er lögð áhersla á sýn Guðjóns sjálfs á eigin verk, stílþróun í byggingar- list hans og líklega áhrifavalda. Þar verða til sýnis teikningar, ljósmynd- ir og líkön af byggingum Guðjóns, ásamt ýmsum tillögum sem ekki urðu að veruleika,“ segir Ágústa og bendir á að sýningin sé unnin í sam- starfi við Þjóðminjasafn Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands sem veittu ómetanlegt aðgengi að safnkosti sín- um. Spurð um tilurð sýningarinnar rifjar Ágústa upp að Pétur hafi um margra ára skeið rannsakað Guðjón. „Fyrir fjórum árum ákváðum við Pétur að um það bil þegar rannsókn hans væri tilbúin til útgáfu í bókar- formi myndum við gera saman sýn- ingu á verkum Guðjóns,“ segir Ágústa og bendir á að bók Péturs sé væntanleg á næsta ári, en sýningin stendur til 12. janúar 2020. „Guðjón starfaði hérlendis sem arkitekt frá því rétt fyrir 1920 og fram til 1950. Lengst af gegndi hann embætti húsameistara ríkisins og var sem slíkur mjög mikilvirkur í því að teikna allar helstu byggingar lands- ins sem hið nýfullvalda ríki og síðan nýstofnaða lýðveldi þurfti á að halda til að staðfesta stöðu sína sem þjóð meðal þjóða,“ segir Ágústa, en með- al bygginga sem Guðjón teiknaði eru Þjóðleikhúsið, aðalbyggingar Háskóla Íslands og Landspítalans, Hallgrímskirkja, Flensborg, verka- mannabústaðirnir við Hringbraut og apótekið við Strandgötu í Hafnar- firði, sem í dag er einkennandi hluti af sýningarrými Hafnarborgar. „Guðjón var mjög áfram um það að reyna að gera umhverfið hér á landi betra, en umhverfið sem hann kom inn í þegar hann var að stíga sín fyrstu skref var Reykjavík strax í kjölfar Reykjavíkurbrunans þar sem miðbærinn var að stórum hluta í rúst. Hans beið því mikið og stórt hlutverk,“ segir Ágústa og bendir á að Guðjón hafi verið frumkvöðull á mörgum sviðum og átt veigamikinn þátt í nútímavæðingu íslensks sam- félags. „Opinber staða Guðjóns gaf honum einstakt tækifæri til áhrifa á byggingar- og skipulagsmál heillar þjóðar sem fáum arkitektum hefur hlotnast fyrr né síðar,“ segir Ágústa sem verður með sýningarstjóra- spjall á morgun kl. 14, en Pétur leið- ir slíkt spjall 24. nóvember kl. 14. silja@mbl.is „Áfram um að gera um- hverfið hér á landi betra“  Yfirlitssýning um Guðjón Samúelsson opnuð í Hafnarborg Morgunblaðið/Árni Sæberg Sýningarstjórar Pétur H. Ármannsson og Ágústa Kristófersdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.