Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Enska fótboltaliðið Chelsea
hefur aldrei heillað mig sér-
staklega, enda þótt ég hafi eins
og flestir aðrir Íslendingar haft
taugar til þess á meðan Eiður
Smári Guðjohnsen var þar á
meðal leikmanna.
Þá heimsótti ég einmitt Eið
og leikmenn liðsins á æfinga-
svæðið og var tekið afar vel og
fékk að spjalla við nokkra af
þekktustu köppum þess á þeim
tíma.
Skömmu seinna keypti hinn
rússneski Roman Abramovich fé-
lagið og það hefur síðan unnið
marga stóra titla og jafnan
skartað öflugum og dýrum leik-
mannahópi.
Nú eru hins vegar áhugaverðir
tímar á Stamford Bridge.
Chelsea var sett í kaupbann og
gat ekki styrkt sig í sumar, og
mun ekki heldur geta keypt
menn í komandi janúarmánuði.
Chelsea hefur í vetur
„neyðst“ til þess að tefla fram
ungum leikmönnum sem hafa
verið á mála hjá félaginu en verið
lánaðir annað, þar sem ekki var
pláss fyrir þá í liðinu.
Þetta hefur gengið vonum
framar. Chelsea hitti líka greini-
lega á hárrétta stjórann, gömlu
hetjuna Frank Lampard, til að
taka við liðinu í sumar. Chelsea
hefur unnið sex af fyrstu tíu
leikjum sínum í deildinni og er í
fjórða sæti.
Undir hans stjórn blómstra
strákarnir í ensku úrvalsdeild-
inni. Í síðasta leik í deildinni not-
aði Lampard sjö leikmenn sem
voru á bekknum eða í láni annars
staðar síðasta vetur og vann 4:2
útisigur.
Mér hugnast það mun betur
að sjá lið byggjast upp á þennan
hátt en að keypt sé stjarna í
hverja stöðu.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þýskaland
Hoffenheim – Paderborn......................... 3:0
Staða efstu liða:
Mönchengladb. 9 6 1 2 19:9 19
Bayern M. 9 5 3 1 24:11 18
Freiburg 9 5 2 2 17:10 17
Wolfsburg 9 4 5 0 11:5 17
Hoffenheim 10 5 2 3 14:13 17
Dortmund 9 4 4 1 20:11 16
RB Leipzig 9 4 3 2 17:10 15
Schalke 9 4 3 2 14:9 15
Leverkusen 9 4 3 2 14:13 15
E.Frankfurt 9 4 2 3 16:14 14
B-deild:
Hannover – Sandhausen......................... 1:1
Rúrik Gíslason lék fyrstu 90 mínúturnar
fyrir Sandhausen.
Spánn
B-deild:
Real Oviedo – Almería ............................ 0:0
Diego Jóhannesson var ekki í leik-
mannahópi Oviedo.
Ítalía
B-deild:
Spezia – Chievo........................................ 0:0
Sveinn Aron Guðjohnsen lék fyrstu 74
mínúturnar með Spezia.
Frakkland
Dijon – París SG....................................... 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður hjá Dijon.
Holland
B-deild:
De Graafschap – Excelsior..................... 0:0
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Katar
Al-Arabi – Al Wakrah ............................. 2:2
Birkir Bjarnason lék allan leikinn og
skoraði jöfnunarmark Al-Arabi en Aron
Einar Gunnarsson er frá vegna meiðsla.
Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið.
KNATTSPYRNA
Í NJARÐVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Njarðvík og Stjarnan mættust í
Dominos-deild karla í körfuknatt-
leik í gærkvöldi við vægast sagt
hættulegar aðstæður í Njarðtaks-
gryfju Njarðvíkinga. Fyrir utan
íþróttahúsið hafði fundist gamalt
dínamít fyrr um daginn og þurftu
allir sem inn í húsið komu að ganga
inn bakdyramegin.
Hvað um það, leikurinn fór fram
á tíma og var hin besta skemmtun.
Það þurfti fullar 40 mínútur til að
skera úr um sigurvegara kvöldsins
og var það Nick Tomsick sem lok-
aði leiknum með síðustu körfunni
þegar lokaflautið gall, eftir ótrúlegt
áhlaup Njarðvíkinga í lokaleikhlut-
anum. 78:76-sigur Stjörnumanna
varð raunin og það voru svekktir
Njarðvíkingar sem gengu til bún-
ingsherbergja í leikslok.
Njarðvíkingar frumsýndu Kyle
Williams, nýjan leikmann sem á að
taka við keflinu af Evaldas Zabas
sem var látinn fara frá félaginu.
Kyle kom í vikunni og kannski erf-
itt að dæma hann út frá sinni
frammistöðu þetta kvöldið. Stjörnu-
menn hins vegar án Hlyns Bær-
ingssonar ennþá vegna meiðsla og
hafa þeir saknað hans sárt í síðustu
leikjum. Það virtist ekki ætla að
koma að sök því Stjörnumenn
spiluðu vel framan af leik og
stefndi í nokkuð auðveldan sigur.
Það voru í raun bara ótrúlegar
lokasekúndur leiksins þar sem
Maciej Baginski jafnaði leikinn í 76
stigum með þristi sem dansaði á
hringnum. Sem fyrr segir lokaði
Nick Tomsick kvöldinu með sigur-
körfunni. Stjörnumenn spiluðu vel í
kvöld og rúlluðu sóknarleik sínum
vel. Ægir Steinarsson tætti varnar-
leik Njarðvíkinga í sig hvað eftir
annað og bjó til fyrir félaga sína
sem skiluðu sínu. En að missa slík-
an leik niður er ákveðið áhyggju-
efni. Njarðvíkingar halda sínu
striki, þ.e.a.s. leikur þeirra virðist
vera í einhverju haltu-mér-slepptu-
mér-sambandi við andstæðingana.
Það sem stóð upp úr í gærkvöldi
virtist vera að þeir spiluðu best
þegar Bandaríkjamaður þeirra,
Wayne Martin, sat á tréverkinu.
Sóknin rúllaði hratt og gæti þetta
mögulega verið einhver vísir að
þeirra næstu skrefum.
Nýliðarnir grátlega nálægt
Nýliðar Fjölnis voru grátlega ná-
lægt sigri á heimavelli gegn
Grindavík. Fjölnismenn voru með
sex stiga forystu þegar rúm mínúta
var eftir en Grindavík skoraði sjö
síðustu stigin og tryggði sér sigur,
92:91. Í Grafarvoginum var einnig
mikil spenna og dramatík. Jamal
Olasawere tryggði sigurinn á víta-
línunni þegar tæp sekúnda var til
leiksloka. Fjölnismenn geta nagað
sig í handarbökin því þeir fóru illa
með síðustu sóknir sínar í leiknum.
Í þeirri næstsíðustu, áður en
Grindavík skoraði síðustu stigin,
köstuðu þeir boltanum einfaldlega
frá sér.
Grindavík hefur unnið tvo leiki í
röð eftir þrjú töp í upphafi móts.
Nú er að komast betri mynd á
Grindavíkurliðið, sem var svolítið
þunnskipað til að byrja með. Fjöln-
ismenn hafa tapað þremur leikjum
í röð en eins og sást berlega í gær
eiga þeir erindi í efstu deild í vet-
ur.
Háspenna í báðum leikjum
Magnaðar lokasekúndur í Njarðvík Sprengiefni í grennd setti ekki fram-
kvæmd leiksins úr skorðum Grindvíkingar unnu naumlega í Grafarvogi
Ljósmynd/Skúli Sig
Sigurkarfan Úr þessari þröngu stöðu tókst Nikolas Tomsick að hitta og tryggja Stjörnunni sigurinn.
Knattspyrnukonan Diljá Ýr Zomers
hefur komist að samkomulagi við
Stjörnuna um að yfirgefa félagið
eftir eitt sumar í Garðabænum.
Diljá er á leiðinni til Ajax í Hol-
landi til reynslu þar sem hún verð-
ur í tíu daga, samkvæmt frétt hjá
Fótbolta.net í gær.
Diljá kom til Stjörnunnar frá FH
fyrir sumarið og skoraði eitt mark í
sextán leikjum á síðustu leiktíð.
Hún hefur skorað eitt mark í fimm
leikjum með U17 ára landsliði Ís-
lands. Alls hefur hún skorað tvö
mörk í 39 leikjum í efstu deild.
Diljá verður til
reynslu hjá Ajax
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ajax Diljá Ýr Zomers er á leið til
Amsterdam til æfinga.
Í gær kom fram í Fréttablaðinu að
Kolbeinn Sigþórsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefði verið
handtekinn í Stokkhólmi en hann
leikur með AIK í Svíþjóð.
Var vísað í frétt Expressen um að
leikmaður í deildinni hefði verið
handtekinn vegna hegðunar á
skemmtistað en Fréttablaðið full-
yrti að um Kolbein væri að ræða.
Expressen nefndi heldur ekki nafn
liðsins og það gerði Aftonbladet
ekki heldur. Samkvæmt sænsku
blöðunum mun viðkomandi hafa
lent í ryskingum við dyraverði.
Sagður hafa verið
handtekinn
Morgunblaðið/Eggert
Stokkhólmur Kolbeinn Sigþórsson
er til umfjöllunar utan vallar.
Dalhús, Dominos-deild karla,
föstudag 1. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 7:2, 11:6, 18:19,
20:25, 25:29, 33:35, 37:47,
48:54, 56:56, 61:60, 64:64,
67:70, 76:74, 81:78, 86:82, 91:92.
Fjölnir: Viktor Lee Moses 20/11
fráköst/5 stoðsendingar, Srdan
Stojanovic 19/7 fráköst, Róbert
Sigurðsson 19/13 stoðsendingar,
Jere Vucica 18/7 fráköst, Vil-
hjálmur Theodór Jónsson 13, Egill
Agnar Októsson 2.
Fráköst: 27 í vörn, 5 í sókn.
Grindavík: Jamal K Olasawere 28/
FJÖLNIR – GRINDAVÍK 91:92
16 fráköst, Valdas Vasylius 25/12
fráköst, Sigtryggur Arnar Björns-
son 13, Ingvi Þór Guðmundsson
11/5 fráköst, Dagur Kár Jónsson
9/6 stoðsendingar, Ólafur Ólafs-
son 4, Björgvin Hafþór Ríkharðs-
son 2.
Fráköst: 33 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson,
Friðrik Árnason.
Njarðtaksgryfjan, Dominos-deild
karla, föstudag 1. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 5:4, 13:6, 15:14,
18:24, 20:34, 24:39, 28:40, 32:47,
34:49, 38:57, 42:60, 46:63, 54:65,
60:71, 62:72, 76:78.
Njarðvík: Mario Matasovic 23/15
fráköst/3 varin skot, Wayne Ernest
Martin Jr. 16/5 fráköst/6 varin skot,
Maciek Stanislav Baginski 15/4 frá-
köst, Ólafur Helgi Jónsson 7/4 frá-
köst, Jon Arnór Sverrisson 5/4 frá-
köst/5 stoðsendingar, Kristinn
Pálsson 5/6 fráköst, Kyle Steven
Williams 4, Logi Gunnarsson 1.
NJARÐVÍK – STJARNAN 76:78
Fráköst: 31 í vörn, 8 í sókn.
Stjarnan: Nikolas Tomsick 19/5
stoðsendingar, Tómas Þórður Hilm-
arsson 19/18 fráköst, Jamar Bala
Akoh 15/11 fráköst, Kyle Johnson
8/5 fráköst, Arnþór Freyr Guð-
mundsson 6, Ágúst Angantýsson
5/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson
5/6 fráköst/9 stoðsendingar, Dúi
Þór Jónsson 1.
Fráköst: 28 í vörn, 21 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð
Tómas Tómasson, Davíð Kristján
Hreiðarsson.
Áhorfendur: 213