Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 Lárus Dagur Pálsson annað en að hafa gaman af þeim systkinum en Lalli var stríðn- ispúkinn í hópnum og lagði sig stundum fram um að ganga fram af systrum sínum. Þá átti hann það til að herma eftir ýmsum, jafnframt að segja sögur af fólki sem við þekktum. Þetta voru skemmtilegar stundir á Hofsósi, hvort heldur sem var í jólaboð- um eða öðrum samverustundum fjölskyldunnar. Það var áberandi hvað Lalli var mikill vinur ömmu sinnar og afa og hvað hann var nærgætinn og hugulsamur við þau. Seinna unnum við saman á skrifstofu FISK Seafood. Hann vann þar nokkur sumur og vet- urinn eftir stúdentspróf en árið eftir fór hann í viðskiptafræði í HÍ. Það fór ekki framhjá neinum að þarna fór efnilegur piltur. Jafnframt námi spilaði hann körfubolta með Tindastóli, lengi sem fyrirliði. Hann var góð skytta og góður alhliða leikmað- ur. Við ræddum oft þennan tíma og sagði hann okkur sögur úr leikjum og þá hvernig liðið náði oft að snúa vonlausri stöðu í sig- ur. Ekki hvað síst hafði hann gaman af þjálfara Stólanna á þeim tíma, Vali Ingimundarsyni, en hann bar mikla virðingu fyrir honum. Hestamennskan var sameig- inlegt áhugamál okkar. Í gegn- um tíðina höfum við oft tekið inn á haustin, þá gjarnan trippi svona til að undirbúa þau fyrir frekari tamningar. Lárus var úræðagóður og næmur á hrossin ekki síður en á mannfólkið. Hann var góður járningarmaður, tamdi sína hesta og við hjálp- uðum hvor öðrum. Síðustu ár fórum við í nokkrar hestaferðir og er okkur ofarlega í huga sú frábæra ferð sem við fórum yfir Kjöl í sumar. Lárus tók saman við Önnu Sif frænku mína. Í gegnum árin höfum við fjöl- skyldurnar átt saman ómetan- legar stundir. Við hittumst alltaf á jóladag en það var okkur öllum dýrmætt. Oft höfum við Lárus verið saman í göngum og þá gjarnan með tengdaföður hans Ingimari, í Vesturfjöllunum eða Austurdalnum. Mannkostir Lár- usar hafa örugglega komið sér vel í samskiptum við starfsfólk og viðskiptavini þeirra fyrir- tækja sem hann stýrði. Okkur er sagt að hann hafi haft sérstakt lag á að halda í viðskiptavini fyr- irtækjanna á erfiðum markaði enda maður sátta og sanngirni. Lárus Dagur var sannur vinur sem gott var að vera í návist við. Nú að leiðarlokum er okkur fjöl- skyldunni efst í huga þakklæti til kærs frænda og félaga. Anna Sif, Páll Ísak, Ingimar Albert, Kolfinna, Páll og Helga, Ingimar og Kolla systkini og fjölskyldur. Við biðjum þess að allar góðar vættir vaki yfir ykkur og styrki í ykkar miklu sorg. Ingimar og Ingibjörg Rósa. Það er sárt að kveðja góðan vin, söknuðurinn er svo óbæri- legur að því fá engin orð lýst. Undanfarnir dagar hafa liðið eins og í vondum draumi en engu að síður er þetta kaldur raunveruleikinn. Sem betur fer er margs að minnast og þær minningar ylja okkur nú. Ég kynntist Lárusi Degi á Króknum þegar við spiluðum saman í körfunni. Við náðum strax vel saman og þróaðist með okkur góður vinskapur. Þrátt fyrir að Lalli og Anna flyttu svo suður héldum við alltaf góðu sambandi. Lalli var góð fyrirmynd, kom alltaf vel fram og var góður vin- ur sem alltaf var hægt að treysta á. Hann var sannarlega vinur vina sinna og átti afar auð- velt með að samgleðjast og fagna velgengni annarra. Hann var sjálfur mjög hógvær maður að eðlisfari og kannski ekki allt- af meðvitaður um hversu magn- aður hann var í raun og veru. Við pössuðum alltaf vel upp á að hittast reglulega og gera eitt- hvað skemmtilegt saman. Þrátt fyrir að ég flytti til Danmörku breyttist það ekki mikið. Við vorum duglegir við að hringja hvor í annan eða skrifast á. Það þurfti ekki löng símtöl til en oft- ar en ekki gengu þau út á eitt- hvað skemmtilegt, eitthvað hversdagslegt sem við höfðum upplifað eða heyrt. Sem dæmi ræddum við myndina „Nýtt líf“ í nokkur ár, það var nóg að segja „Herjólfur, hver er þessi Herj- ólfur?“ þá gátum við hlegið og sagt bless. Við gátum talað um allt og ekkert, alvarlega sem og skemmtilega hluti. Þegar einhverjir stærri við- burðir áttu sér stað innan fjöl- skyldunnar, skírn, afmæli, brúð- kaup o.s.frv., þá mætti Lalli alltaf og hann var hrókur alls fagnaðar. Það var alltaf gaman þegar Lalli var með. Ég gleymi aldrei ræðunni sem hann hélt í fertugsafmælinu mínu. Hann átti í engum vanda með að halda ræður og þarna flakkaði hann á milli íslensku, ensku og dönsku eins og ekkert væri. Að halda ræður og segja góðar sögur var ekkert mál fyrir Lalla. Lalli, Anna Sif og börnin heimsóttu okkur til Danmerkur fyrir nokkrum árum, sem var frábært. Heimsóknin gaf okkur tækifæri til þess að kynnast börnunum þeirra betur, en þeim tækifærum hafði fækkað eftir að við fluttum út. Við deildum sög- um af börnunum í síma en mun skemmtilegra var að geta verið saman. Ég mun alltaf vera glaður og þakklátur fyrir einstakan vin og mun alltaf halda í þær góðu stundir sem við höfum átt sam- an. Elsku Anna Sif, Páll Ísak, Ingimar Albert og Kolfinna Katla, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Hvíldu í friði, elsku vinur. Kær kveðja, Óli Barðdal. Þegar sá góði drengur, Lárus Dagur, hefur farið svo allt, allt of fljótt verður mér hugsað til ársins 2002. Fyrirhugað var að halda landsmót hestamanna á Vindheimamelum og bar ábyrgð á rekstrinum nýstofnað félag sem hafði ekki úr öðru að spila en viljanum til að halda mótið með glæsibrag. Mér fannst hins vegar þekkingu á því hvernig markmiðinu skyldi náð vanta sárlega hjá okkur sem bárum ábyrgðina og tíminn óðum að renna út. Liðið var á vetur þeg- ar hringt var úr Skagafirði og kom í ljóst að viðmælandi minn hafði sömu áhyggjur. En hann taldi að lausnin væri sú að við myndum leita til Lárusar Dags og fá hann til að taka að sér framkvæmdastjórn. Til að gera langa sögu stutta þá gekk þetta eftir, Lárus tók verkið að sér. Ekki þarf að orðlengja að þegar Lárus hafði tekið við stjórn mála fóru hlutirnir að gerast. Hann kom með nýjar og ferskar hugmyndir um hvernig skyldi staðið að málum og úr hinum skagfirska hatti sínum dró hann fram hina ýmsu snillinga sem komu að undirbúningnum og rekstrinum þá og síðar. Þegar mótið hófst var umgjörðin þann- ig að eftir var tekið. Og dæmið gekk upp, gestir fjölmenntu þúsundum saman, þar með talið forsetahjónin og Bretaprins- essa. Lárus Dagur átti eftir að koma að næstu landsmótum og setja mark sitt á þau. Alls voru þau fjögur, á árunum 2002-2008, sem öll gengu upp fjárhagslega og meðalfjöldi áhorfenda var á annan tug þúsunda og náði há- marki 2008 þegar Lárus sat sjálfur við stjórnvölinn. Hesta- menn geta horft með stolti til þessa tímabils í sögu landsmót- anna en ég hef hins vegar stund- um velt því fyrir mér hvernig hefði til tekist hefði Lárusar ekki notið við. Ég á mjög góðar minningar frá samstarfinu við Lárus á þessum tíma. Hann hafði þegið í arf það besta frá báðum foreldr- um, ljúfmenni sem gat líka verið fastur fyrir ef á þurfti að halda og óhemju duglegur og sam- viskusamur. Svo var hann Skag- firðingur í húð og hár og átti framtíðina fyrir sér. En enginn veit. Þegar ég minnist þessa tíma og Lárusar kemur upp í hugann landsmótslagið sem hann fékk Gunnar Þórðarson til að semja og Guðmundur Andri gerði texta við, Ég á mér stað. „Brekkur anga blær á vanga á bak mig langar og svo halda‘ af stað“ Nú þegar góður drengur er genginn óskum við Ragna Önnu Sif, börnum þeirra og öðrum að- standendum Guðs blessunar á þessum erfiðu tímum. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Í dag fylgi ég góðum félaga síðasta spölinn, á heimaslóðum hans í Skagafirði. Við Lárus Dagur hittumst fyrst árið 2006 þegar BM Vallá og Límtré Vírnet sameinuðust. Hann kom frá Límtré Vírneti en ég hafði unnið lengi hjá BM Vallá. Lárus Dagur kom yfir til BM Vallár, fyrst sem fjármála- stjóri, en varð svo forstjóri Hornsteins sem er móðurfélag BM Vallár, Björgunar og Sem- entsverksmiðjunnar. Við náðum strax vel saman og urðum strax góðir vinir. Við átt- um margt sameiginlegt, vorum á svipuðum aldri, báðir sveita- strákar með hestadellu og báðir að byggja okkur hús í sama hverfi í Kópavogi. Lárus var með hesthúspláss í Spretti og þróuðust hlutirnir þannig að ég fékk inni í sama húsi. Við vorum oft á sama tíma í hesthúsinu, seint á kvöldin, þeg- ar aðrir voru farnir og við riðum saman inn í kvöldblíðuna í Heið- mörkinni, oft vel ríðandi. Lárus sagði að hestamennskan væri hans núvitund; maður, hestur og náttúra. Í þessum reiðtúrum ræddum við um hestana sem við vorum á, ræktunaráform og svo ræddum við líka um hvernig við gætum nálgast verkefni morgundagsins í vinnunni. Þessar umræður voru alltaf á jafningjagrundvelli þótt Lárus væri yfirmaður minn. Við fórum í margar skemmti- legar hestaferðir saman, meðal annars á Löngufjörur, komum við á heimaslóðum mínum á Suðurlandi þegar við riðum Þjórsárbakka og Lárus Dagur bauð okkur fjölskyldunni að koma með sér, fjölskyldu sinni og vinum að reka trippi á afrétt og ríða í Austurdal. Sú ferð er afar eftirminnileg og var ein- staklega vel tekið á móti okkur fjölskyldunni. Ég sé okkur fé- lagana fyrir mér þegar við riðum úr Ábæ í Merkigil, við riðum hlið við hlið, ég á bleikálóttum, Lárus á jörpum, við vorum vel ríðandi, riðum alla af okkur og vorum glaðir og kátir. Við vorum kóng- ar um stund. Lárus Dagur hafði mjög góða nærveru og löðuðust strákarnir mínir að honum, hann nálgaðist þá á jafningjagrundvelli, spurði þá að nafni og sagðist heita Lalli og var til í sprell. Í vinnunni var hann samherji, hvatti til góðra verka. Hann var fyrirliðinn í liðinu og notaði leikjafræði úr körfunni til að nálgast verkefnin og stillti upp leikkerfi til sigurs. Ég minnist góðs vinar með hlýhug og af virðingu og sendi Önnu Sif, börnunum þeirra og foreldrum Lárusar og systrum hans hjartanlegar samúðar- kveðjur frá okkur Álfheiði og strákunum okkar. Minningin um góðan dreng mun lifa. Gunnar Þór Ólafsson. „Lítillátur, ljúfur, kátur“ birt- ist Lárus í hesthúsinu hjá mér fyrir hartnær tíu árum. Hann bjó í nágrenninu og vantaði pláss fyrir tvo hesta. Ég hafði kynnst honum áður í hestaferð- um með fjölskyldu hans og öðr- um vinum mínum og þekkti til starfa hans sem framkvæmda- stjóra Landsmóts. Lárus var góður vinur, einstaklega hlýleg- ur, kátur og umfram allt traust- ur. Lalli var góður söng- og sögumaður, enda Skagfirðingur. Hann var röskur til verka og fljótur að járna hest. Hann kom oft seint á kvöldin í hesthúsið eða um helgar með fjölskylduna, enda tóku önnur verkefni hans tíma, fjölskyldulíf, húsbygging, vinna og síðustu árin, stjórn stórfyrirtækis. Það var gæfa hans að eiga Önnu og börnin. Honum virtust allir vegir færir. Einn fallegan sumarmorgun vorum við staddir í bítið á Mikla- bæ í morgunhressingu og vorum að fara með stóðið fram að Gils- bakka. Mér er það minnisstætt augnablik þegar við Lalli horfð- um út um gluggann og virtum fyrir okkur dásemdarútsýnið yf- ir vötnin og héraðið. Þá spyr Lalli mig hvernig mér lítist á fol- öldin, ég sagði honum eins og var að ég hefði ekki farið niður í Nes til að líta á þau. En ég hefði litið á þau áðan í gegnum sjón- aukann og ég sæi ekki betur en þau væru fjarska falleg. Að þessu hlógum við vinirnir og sé ég hann ennþá fyrir mér bros- andi þessa morgunstund. Í fram- haldinu fengum við okkur morg- unhressingu og spurði ég Lalla hvort við ættum ekki að fá okkur hvolp með. Hann hafði ekki heyrt þetta áður. Ævinlega eftir þetta töluðum við aldrei um ann- að en hvolp okkar á milli þegar þessi staða kom upp og augna- blikið hentaði. Lalli var fyrirtaks reiðmaður og í miklu uppáhaldi hjá honum var hesturinn hans Tónn, sem þau Anna ræktuðu út af hryssu af heimakyni frá Ingimar pabba Önnu. Tónn er fasmikill töltari og sé ég þá fyrir mér glæsta á leiðinni út í vornóttina spilandi tóntegundina saman, hreinan og góðan tölt tón. Þar voru þeir sannarlega kóngar um stund. Lárus var örlátur og góður vinur vina sinna. Dag einn fyrir jól sendu Anna og Lalli mér kort um að hesturinn Askur væri mín eign. Askur er bróðir hestsins Tóns og töldu þau að ég myndi hafa gaman af honum, sem sann- arlega hefur ræst og er hann einn af reiðhestum mínum í dag. Það var happafengur að kynn- ast Lalla. Við ætlum að muna hann eins og hann var. Lítillát- an, ljúfan, kátan, með stríðnis- glampann í augunum í góðra vina hópi. Nú er komið að kveðjustund, allt of fljótt. Með sorg í hjarta kveðjum við góðan vin. Hugur okkar er hjá Önnu Sif og börn- unum, foreldrum hans og fjöl- skyldunni allri. Bjarni og Bjarnveig (Veiga). Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON fyrrverandi borgarstjóri og seðlabankastjóri, Fjölnisvegi 15, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 28. október. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ás styrktarfélag. Björg Jóna Birgisdóttir Már Vilhjálmsson Gunnar Jóhann Birgisson Sveinbjörg Jónsdóttir Ingunn Mjöll Birgisdóttir Viktor Gunnar Edvardsson Lilja Dögg Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir, amma, systir, mágkona og tengdamóðir, ÞÓRARNA V. JÓNASDÓTTIR sérkennari og leiðsögumaður, Skaftahlíð 7, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 20. október. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 5. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Jón Sigfússon Freyja Valsdóttir Bjarni Sigfússon Ragnhildur, Ólafur og Krístólína Jenný, Anna og Halldóra Vilbergur, Þórarna og Valur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR STEINAR KETILSSON fyrrv. skipherra, lést á Landspítalanum 27. október. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð til búnaðarkaupa fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Reikningur 0301-22-2507, kt. 710169-5869. Sólveig Baldursdóttir Baldur Óli Sigurðsson Hildur A. Ármannsdóttir Ketill Sigurðsson Daníel Freyr, Brynhildur, Irma og Ármann Steinar Okkar elskaða HJÖRTFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Staðarhrauni 21, Grindavík, lést sunnudaginn 27. október. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Erna Rún Magnúsdóttir Óðinn Árnason Berglind Anna Magnúsdóttir Þráinn Kolbeinsson Hjalti Magnússon Andrea Dögg Björnsdóttir Þórólfur Gíslason Guðmundur Jónsson Brynja Jónsdóttir Sigurbjörn Elíasson Ólafur Örn Jónsson Þóranna Ólafsdóttir og ömmubörnin Hjörtfríður, Árni Jakob og Þröstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.