Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
60 ára Ingrid ólst upp í
Mosfellssveit en býr í
Reykjavík. Hún er leik-
kona og leiðsögumaður
að mennt og leikstýrir
þar að auki. Hún verður
að heiman á afmælinu.
Maki: Sólrún Jóns-
dóttir, f. 1960, ljósmyndari og leið-
sögumaður.
Foreldrar: Sólveig Budsberg, f. 1936 í
Noregi, d. 1988, húsmóðir. Stjúpfaðir:
Einar Jóhann Jónsson, f. 1928, d. 2019,
bifvélavirki og leigubílstjóri. Þau voru bú-
sett í Mosfellsbæ.
Ingrid Herdís
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Aukin ábyrgð á börnum gæti valdið
þér hugarangri í dag. Smá skammtur af
ást lagar allt. Sýndu oftar tilfinningar þínar.
20. apríl - 20. maí
Naut Treystu á sjálfa/n þig og varastu
áhrif frá öðrum. Dustaðu rykið af gömlu
áhugamáli og njóttu þín í botn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nægjusemi og þolinmæði eru
góðir kostir. Það kemur ný persóna inn í líf
þitt fljótlega sem verður til þess að þú
endurmetur líf þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú tekur stórt skref fram á við í
verkefni sem hefur of lengi legið í ládeyðu.
Ástarsamband er byggt á sandi, gerðu þér
grein fyrir því í tíma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver sem skiptir máli kann að leita
álits þíns í dag. Hættu að hafa áhyggjur og
reyndu að njóta dagsins. Kvöldið verður
skemmtilegt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur verið gaman að fara
ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark
og þrautseigju. Vertu opinn fyrir hug-
myndum sem geta haft jákvæð áhrif á
starfsframa þinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sýndu börnum athygli í dag. Leggðu
spilin á borðið í deilumáli og sjáðu hvað
gerist. Ekki hlusta á kjaftasögur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það sem þig vantar birtist
óvænt. Vertu viðbúin/n. Þú hefur enga ró í
þínum beinum til að hlusta á afsakanir
annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leitaðu aðstoðar vina varðandi
breytingar á heimilinu. Reyndu að sigla á
milli skers og báru í nágrannadeilum. Þú
færð skemmtilegar fréttir af vini.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst lítið miða áfram og
það er ekki á þínu valdi að breyta því. Taktu
upp hanskann fyrir vini þína. Þú munt upp-
skera eins og þú sáir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú færð að reyna sitthvað nýtt
sem hefur varanleg áhrif á líf þitt. Brjóttu
odd af oflæti þínu, hreinsaðu andrúms-
loftið og gakktu til sátta við mótherja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að lenda ekki í milli
þegar vinir þínir deila. Eyddu meiri tíma
með fólki sem lætur þér líða vel. Einhver
reynir að villa á sér heimildir.
Feita Jarpi og á veturna heldur hann
hesta á félagssvæði Fáks í Víðidal
ásamt dóttur sinni og fjölskyldu
hennar. Með syni sínum á hann bát
Sveinbjörn fór að stunda hesta-
mennsku af krafti. Á tímabili fór
hann á hverju sumri í vikulangar
hestaferðir með Fjallavinafélaginu
S
veinbjörn Runólfsson er
fæddur 2. nóvember 1939
í Ölvisholti í Flóa. Sem
barn tók Sveinbjörn þátt í
hefðbundnum sveitastörf-
um en í Ölvisholti var stórt kúabú,
um hundrað kindur og nokkrir hest-
ar. „Ég minnist þess ekki að hafa átt
frítíma utan sveitastarfanna,“ segir
Sveinbjörn þegar hann er spurður
frekar út í æskuárin.
Sveinbjörn gekk í barnaskóla í
Þingborg og var útskrifaður þaðan
tólf ára gamall. Fimmtán ára réð
hann sig í vinnu hjá Ræktunar-
sambandi Flóa og Skeiða sem jarð-
ýtustjóri. Sautján ára keypti hann
sér vörubíl og hóf akstur fyrir bænd-
ur og vegagerð. Tveimur árum síðar
seldi hann bílinn. Á þeim árum
kynntist hann eiginkonu sinni og
festu þau kaup á lítilli íbúð í Reykja-
vík. Þá réð hann sig í vélavinnu hjá
Íslenskum aðalverktökum og síðar
hjá Almenna byggingarfélaginu. Tví-
tugur að aldri hóf hann akstur fyrir
Mjólkursamsöluna. Eftir fjögurra
ára starf þar keypti hann tvær loft-
pressur og stofnaði fyrirtækið Svein-
björn Runólfsson sf. og tók að sér
múrbrot og síðar sprengingar.
Fljótlega fjölgaði vélunum og
fyrirtækið fór að gera tilboð í gatna-
gerð með lögnum, sjóvarnargarða
o.fl. Sveinbjörn setti einnig upp lax-
eldi og framleiddi lax í sjókvíum í
nokkur ár. Árið 1997 breyttist nafn
fyrirtækisins í Sæþór ehf., en þá var
fyrirtækið farið að sérhæfa sig í
hafnardýpkunum. Sveinbjörn rak
fyrirtæki sitt í um 50 ár með góðum
árangri. Það fór rólega af stað en
ekki leið á löngu þar til fyrirtækið
var með 10-20 manns í vinnu og fyrir-
tækið kom víða við sögu. M.a. við
gerð Óseyrarbrúar, olíuhöfnina í Ör-
firisey, gatnagerð víða, m.a. í Selási,
Breiðholti, Grafarvogi, Flóaveg og
hafnardýpkanir víðsvegar um landið.
„Ég hafði mjög gaman af rekstrinum
og hafði unun af því að skipuleggja
fyrirtæki mitt og vinnu, setja saman
hagstæð tilboð og ná árangri.“
En Sveinbjörn hefur líka haft nóg
fyrir stafni í sínum frítíma. Fyrir um
35 árum hófu þau hjónin að byggja
sumarbústað í landi Ölvisholts og
sem þeir gera út frá smábátahöfninni
Snarfara og veiða í soðið. Þá hefur
Sveinbjörn fylgt börnum sínum og
barnabörnum eftir í ýmsum íþrótt-
um, auk þess sem hann hefur lengi
verið fastagestur á leikjum Fylkis í
Árbænum í fótbolta. Á efri árum hef-
ur hann svo farið að stunda golf-
íþróttina, auk þess sem hann hjólar
um á rafmagnshjóli og fer í sund í Ár-
bæjarlaug. „Ég fer út á hverjum
morgni á rafmagnshjólinu og við hitt-
umst gamlir verktakar sex sinnum í
viku í Mjóddinni.“
Fjölskylda
Eiginkona Sveinbjörns var Lilja
Júlíusdóttir, f. 1.10. 1937, d. 13.2.
2016, húsmóðir og handverkskona.
Foreldrar hennar voru Júlíus
Bjarnason, f. 5.7. 1903, d. 10.11. 1939,
og Sigurlín Árnadóttir, f. 8.12. 1905,
d. 18.2. 1969, bændur í Akurey í
Landeyjum.
Börn Sveinbjörns og Lilju eru 1)
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, f. 29.1.
1973, uppeldis- og menntunarfræð-
Sveinbjörn Runólfsson, fyrrverandi verktaki í Reykjavík – 80 ára
Fjölskyldan Lilja og Sveinbjörn með börnum sínum, Sigrúnu og Runólfi,
og yngstu barnabörnunum, Lilju Rún og Sveinbirni, í Frakklandi.
Dýpkaði hafnir kringum landið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verktakinn Sveinbjörn við stærsta dýpkunarprammann sinn.
Í Snarfara Veitt í soðið.
30 ára Einar er
Hafnfirðingur og er
með BS-gráðu í
íþróttafræði . Hann
er eftirlitsmaður hjá
Sérefni og handknatt-
leiksmaður hjá FH.
Maki: Unnar Ómars-
dóttir, f. 1990, innkaupastjóri hjá Sér-
efni.
Dóttir: Móeiður, f. 2018.
Foreldrar: Eiður Arnarson, f. 1951, d.
2006, eigandi AKS og síðar FMH, og
Hafdís Jónsdóttir, f. 1957, eigandi Sig-
urbogans, bús. í Hafnarfirði.
Einar Rafn
Eiðsson
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Móeiður Einarsdóttir
fæddist 8. júní 2018. Hún var 16 merk-
ur og 52 cm. Foreldrar hennar eru
Einar Rafn Eiðsson og Unnur
Ómarsdóttir.
Nýr borgari