Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 15
náttúrunnar heldur einnig vegna upplifunar ferðamanna. Hann segir að Ferðafélagið muni fylgjast náið með niðurstöðum könnunar sem nú sé unnið að. Páll áætlar að alls hafi tæplega tvö þúsund manns heimsótt Horn- strandir í sumar, en félagið er með 10-12 ferðir á ári inn á svæðið. Selja bjór í Langadal Þrátt fyrir samdrátt á Laugaveg- inum segir Páll að ástæðulaust sé að kvarta yfir rekstrinum. Farið hafi verið í aðhaldsaðgerðir síðasta haust, en samhliða var ákveðið að auka vöruframboð í skálunum og þar seljist talsvert af þurrmat, súkkulaði og drykkjum, sem hafi styrkt reksturinn. Áfengir drykkir eru þó ekki seldir í skálum Ferðafélagsins með einni undantekningu. Fyrir tveimur árum var ákveðið að selja bjór í skálanum í Langadal í Þórsmörk. „Þeir eru margir sem vilja dreypa á slíkum veigum eftir strembna göngu og ástæðulaust að burðast með bjór á göngunni eða láta aðra um að flytja á staðinn. Í okkar hópi voru efa- semdir um þessa nýjung, en þetta hefur komið vel út og engin vand- ræði verið þessu samhliða eða drykkja úr hófi,“ segir Páll. Nýr skáli í Langadal Hjá Ferðafélaginu eru stór verk- efni framundan í uppbyggingu skála á Laugavegi og í Langadal. Fram- kvæmdaáætlun fyrir Laugaveginn og Langadal hefur verið skipt upp til þriggja, fimm og tíu ára. Nýir skálar í Álftavatni, Emstrum og í Langadal eru forgangsverkefni hjá félaginu. „Þessa dagana er verið að raf- væða Langadal í Þórsmörk. Næsta stóra verkefnið er síðan endurbygg- ing Skagfjörðsskála í Langadal og er búið að vinna mikla undirbún- ingsvinnu í því verkefni,“ segir Páll. „Unnið er að því að tengja vatn í Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi. Samþykki landeigenda liggur fyrir og þeir vilja aðstoða okkur við að finna lindir í nágrenninu, svo er að koma því 2-3 kílómetra í skálann. Í Hrafntinnuskeri hefur verið unnið að lausn á losun seyru og vonandi sér fyrir endann á því verkefni. Það er greinilegt að landsmenn hafa aukinn áhuga á fjallamennsku og útivist og þessi þróun hefur verið áberandi í sumar. Áherslur í upp- byggingu á mannvirkjum félagsins eru svar við þeirri þróun,“ segir Páll. Ljósmynd/Árni Tryggvason Þórsmörk Skagfjörðsskáli í Langadal var byggður 1954 og er fyrirhugað að byggja þar nýjan skála. FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 Setning Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA Áherslur Samtaka atvinnulífsins í menntamálum Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA Umræður: Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands Stefanía Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar Fjölnir Brynjarsson, kennaranemi í Háskóla Íslands Fundarstjóri: Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Icelandair Kynning á áherslum Samtaka atvinnulífsins í menntamálum Í kjölfar kynningarinnar fara fram umræður um menntamál. Skráning á www.sa.is DAGSKRÁ Fundargestir fá nýtt rit SA um tækifæri og áskoranir í menntakerfinu. Boðið verður upp á létta hádegishressingu. Menntun& færni til framtíðar MÁNUDAGINN 4. NÓVEMBER Á GRAND HÓTEL - HÁTEIGI KL. 12.00-13.00 Ferðafélag Íslands var stofnað 1927 og var fyrsti skáli félags- ins reistur í Hvítárnesi árið 1930. Var það liður í uppbygg- ingu félagsins á gönguleiðinni um Kjalveg hinn forna, en Ferðafélagið beitti sér fyrir því frá upphafi að byggja upp gönguleiðir á hálendinu. Ferðafélagið reisti skála í Landmannalaugum 1951 og Langadal í Þórsmörk 1954 (sjá mynd til hliðar). Það var því nærtæk hugmynd að ganga á milli þessara einstöku og margrómuðu skála þvert á gamlar þjóðleiðir, segir í punktum frá Ferðafélaginu. 1976 var skáli reistur í Botn- um á Emstrum og ári síðar kom skáli í Hrafntinnusker. Göngubrú, 18 metra löng, var byggð á Fremri-Emstruá árið 1978 og var þá eitt stærsta skrefið í að opna gönguleið- ina, sem fljótlega var farið að kalla Laugaveginn. Tveir skálar voru reistir við Álftavatn sum- arið 1979 og tók annar 20 manns í gistingu en hinn 40 manns. Fyrstu Laugavegs- gönguna fór Ferðafélagið dag- ana 13. til 18. júlí 1979 eða fyr- ir 40 árum. Gönguleiðir byggðar upp SKÁLI Í HVÍTÁRNESI 1930
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.