Morgunblaðið - 02.11.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ýÞykkar
leggings
kr. 8.900.-
Str. XS-XXL • Litur: svart, blátt
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Málþing með notendum Faxaflóahafna
Fimmtudaginn 7. nóvember 2019, kl. 16:00 í Hörpu
Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starfsemina á
hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn
7. nóvember kl. 16:00, Björtuloft, 5. hæð, Hörpu.
Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður
sem hér segir:
16:00 Ávarp formanns
Skúli Þór Helgason, stjórnarformaður
16.10 Yfirlit hafnarstjóra um verkefni og framkvæmdir ársins 2020
Gísli Gíslason, hafnarstjóri
16:30 Uppbygging á Austurbakka – skipulag í Örfirisey
Hildur Gunnlaugsdóttir, skipulagsfulltrúi
16:45 Rafmagn til skipa – framhald mála
Gunnar Tryggvason, aðstoðarhafnarstjóri
17:00 Hátækni vöruhús Innnes
Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innness
17:15 Átakið #kvennastarf
Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og Véltækniskóla Tækniskólans
17:30 Umræður og fyrirspurnir
18:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri
Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru
sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og
ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini.
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri.
Skipholti 29b • S. 551 4422
20%
afsláttur
fimmtudag - laugardag
Fylgdu okkur á facebook
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir brýnt að hefja uppbyggingu nýs
varaflugvallar sem fyrst á suðvestur-
horninu. Reykjavíkurflugvöllur sé
ekki hentugur varaflugvöllur til
framtíðar.
„Það hefur legið fyrir frá 2017 að
brýn nauðsyn er á nýjum varaflug-
velli á SV-horni
landsins. Þetta
var skýr niður-
staða skýrslu Þor-
geirs Pálssonar,
fyrrv. flugmála-
stjóra, um vara-
flugvallarmál,
sem vann hana
fyrir samgöngu-
ráðherra. Við
þeirri skýru nið-
urstöðu og ákalli
flugrekstraraðila þarf að bregðast.
Hagsmunaaðilar í flugi og ferðaþjón-
ustu ásamt stjórnvöldum sem bera
ábyrgð á öryggi og innviðum verða að
taka ákvörðun um uppbyggingu
varaflugvallar eins fljótt og kostur er
því öllum er ljóst að það tekur tíma að
byggja upp flugvöll, jafnvel þótt að-
eins sé um varaflugvöll að ræða,“ seg-
ir Dagur um stöðuna.
Tilefnið er umfjöllun í Morgun-
blaðinu í gær um stöðu varaflugvalla.
Samkvæmt starfsleyfi sé Reykjavík-
urflugvöllur lokaður fyrir allri um-
ferð frá kl. 23 til 7 alla daga og frá
klukkan 23 til 8 um helgar.
Hægt að opna með fyrirvara
Þó á að vera hægt að opna flugvöll-
inn utan þjónustutíma með 15 mín-
útna fyrirvara, m.a. fyrir millilanda-
flug sem notar flugvöllinn sem
varavöll og sjúkra- og neyðarflug.
Hins vegar hafi væntingar flugmanna
til þessarar þjónustu brugðist tvisvar
á sl. 18 mánuðum, að sögn
öryggisnefndar FÍA.
Spurður hvort til greina komi að
rýmka starfsleyfið svo völlurinn geti
betur gegnt hlutverki varaflugvallar
rifjar Dagur upp forsöguna.
„Takmörkun á næturflugi og lend-
ingum á Reykjavíkurflugvelli á rætur
að rekja allt aftur til 1963 þegar bæj-
arstjórn Kópavogs sendi frá sér
ályktun til borgarstjórnar og Alþing-
is um að hætta næturflugi, takmarka
millilandaflug og færa flugvöllinn á
betri stað. Starfsleyfi vallarins hafa
allar götur síðan verið með þessum
takmörkunum. Skýrar undanþágur
eru þó vegna varaflugvallarhlut-
verksins og er ekki ástæða til að
breyta því,“ sagði Dagur og vísaði til
ákvæða um tímatakmarkanir á flugi á
Reykjavíkurflugvelli.
Flughreyfingar séu heimilar á
virkum dögum frá kl. 7 til kl. 23:30 og
um helgar og á almennum frídögum
frá kl. 8 til 23:30. Frá 1. maí til 1. sept-
ember séu flughreyfingar heimilar
frá kl. 7:30 til 23:30 um helgar og á al-
mennum frídögum.
Mannúðarmál, leit og björgun
Undanþágur fyrir varaflug feli
m.a. í sér sjúkraflug, flug vegna
mannúðarmála, leitar og björgunar,
þjóðaröryggis eða annara ríkismála.
Þá eigi undanþágan við alla flugum-
ferð vegna véla í neyð eða véla sem
ekki er hægt að beina annað.
Spurður um stöðu varaflugvalla
kveðst Dagur fagna því að hið alvar-
lega ástand varaflugvallarmála sem
hafi verið staðreynd um nokkurt
skeið sé loks til umræðu.
„Brýn og óumflýjanleg nauðsyn er
á nýjum varaflugvelli á SV-horni
landsins ætli Ísland sér áfram að vera
miðstöð alþjóðaflugs og gerð slíks
flugvallar er forsenda frekari vaxtar
á því sviði á næstu árum. Millilanda-
flug um Keflavíkurflugvöll hefur auk-
ist úr 2,8 milljónum farþega árið 2014
í 10 milljónir farþega árið 2018 án
þess að ráðist hafi verið í byggingu
varaflugvallakerfisins eins og þarf,“
segir Dagur.
„Áætlanir Isavia og fjárfestingar-
áform gera ráð fyrir að þessi umferð
um Keflavíkurflugvöll tvöfaldist á sjö
árum, farþegar verði allt að 20 millj-
ónir árin 2025-30. Ljóst er að efna-
hagslífið, flug og ferðaþjónusta á mik-
ið undir því að þessar áætlanir gangi
eftir. Jafnljóst er að alvarlegt slys eða
neyðarástand vegna skorts á vara-
flugvelli getur stefnt þessum sömu
hagsmunum í stórfellda hættu, til
skamms og langs tíma.
Það er mikill ábyrgðarhluti að
stefna á tvöföldun farþega og flug-
umferðar um Keflavíkurflugvöll án
þess að gerður verði nýr og öflugur
varaflugvöllur sem geti tekið við vél-
um í því umfangi sem getur þurft.
Nýr varaflugvöllur á SV-horni lands-
ins er því forgangsmál ef stefna á að
frekari vexti í flugi. Þetta hefur í mín-
um huga legið fyrir frá því Þorgeir
Pálsson, fv. flugmálastjóri, sendi frá
sér skýrslu með þessari ótvíræðu nið-
urstöðu í ágúst 2017. Löngu er tíma-
bært að bregðast við henni.“
Fyrir nokkrum misserum var svo-
nefndri neyðarbraut lokað á Reykja-
víkurflugvelli. Þá voru eftir tvær
brautir sem áform voru um að loka á
næsta áratug.
Brautin alltof stutt
„Spurt er sérstaklega um Reykja-
víkurflugvöll. Hann er með of stutt-
um brautum og hefur ekki þróunar-
möguleika til framtíðar sem vara-
flugvöllur, samkvæmt skýrslu
Þorgeirs. Undir það hljóta allir að
geta tekið,“ segir Dagur og bætir við
að brautin sem var lögð af hafi verið
allt of stutt til að lenda þar þotum.
Þá gefi stærri vélar og áform um
beint flug frá Asíu einnig tilefni til að
koma upp varaflugvelli með mun
lengri brautum. Til dæmis geti nýju
Max-vélar Icelandair alls ekki notað
Reykjavíkurflugvöll sem varaflugvöll
vegna stuttra brauta. Ljóst sé að tvö-
földun á flugumferð til og frá landinu
kalli á skjótar ákvarðanir um upp-
byggingu nýs varaflugvallar á SV-
horninu og umbóta varaflugvallakerf-
isins að öðru leyti. Áform flugfélaga
um stærri vélar og flug á lengri flug-
leiðum í Asíu og Ameríku ýti enn
frekar á þetta.
Reykjavíkurflugvöllur
dugar ekki sem varavöllur
Borgarstjóri telur gagnrýni á takmarkað starfsleyfi ekki fanga kjarna málsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reykjavíkurflugvöllur Eins og sjá má á forgrunni myndarinnar nálgast
nýja byggðin á Hlíðarenda flugvöllinn. Hér er horft af svölum þakíbúðar.
Dagur B.
Eggertsson