Morgunblaðið - 02.11.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.11.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 Styrkir frá Góða hirðinum Umsóknarfrestur rennur út 24. nóvember Ágóði af sölu nytjahluta í Góða hirðinum rennur til góðra málefna. Styrkirnir eru veittir til líknar- og félagasamtaka og er markmiðið að styðja fólk til sjálfshjálpar. Verkefnin geta t.d. snúist um menntun, endurhæfingu og sjálfsbjörg og er sérstaklega leitast við að styrkir nýtist efnaminni börnum og ungmennum. Nánari upplýsingar er að finna á sorpa.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Fjallaferðir í áskrift hafa hitt í mark í starfinu,“ segir Páll Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Hann segir þessar ferðir í skipulögðum hópum meðal hápunktanna í starfinu í ár. Færri fóru um Laugaveginn í sumar en síðustu ár og speglar það fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands. Hins vegar hefur þátttaka Ís- lendinga í gönguferðum á þessum slóðum aukist og segir Páll það mjög ánægjulegt. Meðal stórra verkefna er undirbúningur að byggingu nýs Skagfjörðsskála í Langadal í Þórs- mörk og mikilvæg endurnýjun á fleiri stöðum, ekki aðeins til að svara aðsókn og auknum kröfum, heldur einnig til að auka öryggi. Frá fellum upp á hæstu tinda Páll segir að um 500 manns séu þátttakendur í fjallaverkefnum Ferðafélagsins. Þau bera heitin fyrsta skrefið, næsta skref, alla leið, fótfrár, léttfeti, þrautseigur og úti- deildin og segja flest nöfnin nokkuð um erfiðleika- stuðul þeirra. Eins hafa land- vættir og land- könnuðir notið vinsælda. Nokk- ur þessara verk- efna eru í gangi allt árið og í ár var uppselt í sum þeirra. Upphafið má rekja til 52 fjalla verkefnis, sem fé- lagið fór af stað með fyrir mörgum árum. „Í þessum verkefnum geta allir fundið gönguferðir við sitt hæfi,“ segir Páll. „Sumir fara ár eftir ár, en einnig er alltaf talsvert um endur- nýjun og að nýtt fólk sláist í hópinn með okkur. Fjöllin eru mismunandi erfið uppgöngu, allt frá fellum eins og Úlfarsfelli og Helgafelli við bæj- ardyr höfuðborgarinnar upp í hæstu tinda eins og Hvannadalshnúk, Hrútfellstinda og Snæfellsjökul. Um helgar eru oft fleiri hundruð manns í fjallgöngum með félaginu. Nýlegt verkefni hjá okkur eru ferðir sem við köllum „gengið á góða spá“. Í þeim tilvikum er blásið til ferðar með skömmum fyrirvara og fólk mætir þegar því hentar. Ein slík ferð var nýlega farin með 60 manns á Bláfell á leiðinni upp á Kjöl.“ Fækkaði um þrjú þúsund Íslendingum hefur fjölgað í lengri ferðum með Ferðafélagi Íslands um fjöll og firnindi, að sögn Páls. Þetta eigi ekki síst við friðlöndin að Fjalla- baki og á Hornströndum, en á báð- um svæðunum er félagið með öfluga starfsemi. Páll áætlar að um tólf þúsund manns hafi gengið Laugaveginn í sumar og er það fækkun um þrjú þúsund frá árinu á undan. Í ár voru Íslendingar um 10% göngumanna sem gistu í skálum FÍ, en innan við 5% sumarið 2018, þegar heildar- fjöldi göngufólks var talsvert meiri. Um 10% samdráttur var í gistingu í skálum félagins að Fjallabaki í sum- ar og er það að hluta rakið til góða veðursins þar sem fleiri gista í tjöld- um ef veðrið er gott. Páll segir umhugsunarefni hversu mikinn fjölda ferðamanna Lauga- vegurinn þoli, ekki aðeins vegna Margir með fjallaferðir í áskrift  Fleiri Íslendingar í gönguferðum, færri útlendingar  Við allra hæfi  Nýir skálar á teikniborðinu Ljósmynd/Þuríður Erla Göngufólk Um hverja helgi er fjöldi manns á fjöllum á vegum Ferðafélagsins og sérstök fjallaverkefni hafa notið vinsælda. Páll Guðmundsson Páll segir að Ferðafélagið og samstarfsfélög hafi eins og áður skipulagt ferðir víða um hálendi og óbyggðir. Kynjaskiptingin sé athyglisverð því konur hafi eins og áður verið í miklum meirihluta eða um 70%. „Við skipuleggjum á hverju ári um eða yfir 60 ferðir og miðum þá við ákveðinn lágmarksfjöla. Oft höfum við þurft að aflýsa um 10 ferðum, en í ár voru aðeins fjórar ferðir felldar niður,“ segir Páll. Konur í meirihluta SKIPULEGGJA FJÖLDA FERÐA Samvinna Ferðirnar eru af ýmsum toga og þegar vaða þarf ár er góð aðferð að krækja saman höndum og hafa bakpokann lausan á öxlunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.