Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is ingardeildum bankanna og Capa- cent að mikil þörf sé á smærri og ódýrari íbúðum sem henta t.d. þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Á hvorri lóð Spildu eru átta bygg- ingareitir. Húsin á reitnum verða 2-5 hæðir. Gert er ráð fyrir að um helmingur íbúða sé 1-2 herbergja og um helmingur sé 3-5 herbergja. Minnstu íbúðirnar verða 35-50 fer- metrar (1 herbergi) og þær stærstu 111-150 fermetrar (5 herbergi). Meðalstærð íbúða verður 79,4 fer- metrar ef deiliskipulagsbreyting fæst samþykkt. Deiliskipulag fyrir skipulagssvæði Bæjarháls/ Hraunbær í Árbæjarhverfi gerir ráð fyrir nýrri íbúðabyggð fyrir um 215 íbúðir þar sem áður var opið svæði. Íbúðirnar eru ætlaðar fyrir al- mennan markað og einnig til úthlut- unar til húsnæðisfélaga án hagn- aðarsjónarmiða í samræmi við hússnæðisstefnu Reykjavíkur- borgar og Aðalskipulag Reykjavík- ur 2010-2030. Helstu markmið svæðisins eru;  Að skapa aðlaðandi og vandaða íbúðabyggð sem tryggir fjölbreytni og íbúðasamsetningu.  Að tryggja góð tengsl um svæðið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og þannig stuðla að vistvænni samgöngum. Við gerð aðalskipulags Reykja- víkur 1962-1983 voru lögð drög að skipulagi Árbæjar- og Seláshverfis. Deiliskipulag fyrir Árbæjarhverfi var samþykkt í nokkrum áföngum á árunum 1964 og 1965. Fjölbýlishús og raðhús norðan Rofabæjar byggðust að mestu upp fyrir árið 1970. Svara ákalli um minni íbúðir  Fasteignaþróunarfélagið Spilda ehf. undirbýr byggingu íbúðarhúsnæðis á tveimur lóðum í Árbæj- arhverfinu  Stefna að því að byggja þar 136 íbúðir  Helmingur íbúðanna verður 1-2 herbergja Nýtt hverfi Á lóðum milli Bæjarháls og Hraunbæjar eru átta byggingarreitir. Tölvumyndir/a2f arkitektar Hraunbær Húsin verða 2-5 hæðir. Gert er ráð fyrir gróðurreitum á milli. Morgunblaðið/Hallur Már Reiturinn Lóðir Spildu sjást neðst á myndinni. Nýbyggingar Bjargs til hægri og norðan Bæjarháls eru fyrirtæki. Anna Sigríður Arnardóttir Gísli Reynisson BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fasteignaþróunarfélagið Spilda ehf. undirbýr byggingu íbúðarhúsnæðis á tveimur lóðum í Árbæjarhverfinu í Reykjavík, nánar tiltekið á lóðunum Hraunbær 133 og 143. Eins og fram kom í Morgunblað- inu nýverið er íbúðaleigufélagið Bjarg að reisa fjögur íbúðarhús á lóðinni við hliðina, Hraunbæ 153. Þar verða alls 79 íbúðir í fjórum húsum. Spilda hefur verið starfandi frá árinu 2018. Meirihlutaeigendur og einu starfsmenn fyrirtækisins eru Gísli Reynisson verkfræðingur og Anna Sigríður Arnardóttir lögfræð- ingur. Þau hafa bæði mikla reynslu af þróun og uppbyggingu, rekstri og fjármögnun fasteignaverkefna, bæði hér heima og erlendis. Þegar Reykjavíkurborg bauð til sölu lóðir milli Hraunbæjar og Bæj- arháls sl. sumar átti Spilda hæsta boðið í lóðina Hraunbær 133 en það þriðja hæsta í lóðina Hraunbær 143. Þar féllu fyrri tilboðsgjafar frá til- boðum sínum og lóðin númer 143 féll því Spildu í skaut. Alls bárust 10 tilboð í lóðirnar. Vilja fjölga íbúðum Stærð lóðanna er 12.539 fermetr- ar og áætlað byggingamagn 12.336 fermetrar. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir byggingu 116 íbúða á lóðunum en þau áform gætu breyst. „Í augnablikinu erum við að sækja um deiliskipulagsbreytingu sem fælist í því að fjölga íbúðum úr 58 í 68 á hvorri lóð fyrir sig, þannig að samtals á lóðunum gætum við byggt 136 íbúðir í stað 116,“ segir Anna Sigríður Arnardóttir í viðtali við Morgunblaðið. „Við hyggjumst fjölga íbúðum án þess að fjölga byggingarfermetrum á lóðinni og þannig koma til móts við ákall markaðarins um minni íbúðir sem henta fleirum,“ segir Anna Sig- ríður. Fram hefur komið hjá grein- Um fjörutíu fyrirtæki, til dæmis í sjávarútvegi, matvælaframleiðslu, nýsköpun og ferðaþjónustu, eiga að- ild að Rússnesk-íslenska viðskipta- ráðinu sem stofnað var í gær. Mörg eiga fyrirtækin langa viðskiptasögu í Rússlandi en hin eru nú að hasla sér völl á þessum stóra markaði. Stofn- fundur ráðsins var haldinn í gær í sendiráði Rússlands í Reykjavík og meðal viðstaddra þar voru Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra og Anton V. Vasiliev, sendiherra Rússlands á Íslandi. Fyrsti viðburður hins nýstofnaða Rússnesk-íslenska viðskiptaráðs verður í Moskvu 26. nóvember næst- komandi þar sem íslensk fyrirtæki verða kynnt, en sá viðburður verður hluti af dagskrá viðskiptasendi- nefndar sem utanríkisráðherra mun fylgja í opinberri heimsókn sinni til Moskvu. Efling tengsla í stjórn- málum, menntun og menningu verð- ur einnig verkefni ráðsins. Undirbúningshópur skipaður þeim Berglindi Ásgeirsdóttur, sendiherra Íslands í Rússlandi, Ara Edwald, forstjóra MS, Gunnþóri Ingvasyni, framkvæmdastjóra Síld- arvinnslunnar, og Tanyu Zharov lögfræðingi hefur starfað að stofnun ráðsins frá áramótum. Viðskipti Áhrifamenn úr viðskiptalífi og stjórnmálum voru á stofnfundi viðskiptaráðsins, sem mikils er vænst af. Viðskipti, menntun og menning  Stofnfundur Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins í gær Páll Magnússon, bæjarritari hjá Kópavogsbæ, var í gær skipaður í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menn- ingarmálaráðuneyti frá 1. desember næstkomandi til fimm ára. Páll er með meistarapróf í lögfræði og opinberri stjórnsýslu. Hefur starfað hjá Kópavogsbæ frá 2006 en starfaði áður í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, m.a. sem aðstoðarmaður ráðherra. Var jafnframt varaþing- maður Framsóknarflokks 1999 til 2007. Þrettán sóttu um embætti ráðuneytisstjóra og mat hæfnisnefnd fjóra umsækjendur mjög hæfa. Páll nýr ráðuneytisstjóri Páll Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.