Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 væri að skrifa sögu um þá vinina því vinátta þeirra var svo falleg. Ég var umsjónarkennari Lalla í nokkur ár. Hann var góður námsmaður og mjög samvisku- samur, sat oftast lengst allra í prófum og nýtti alltaf tímann vel. Lalli hafði einstaklega skemmtilegan húmor og oft báru prófsvörin hans og verkefni þess merki. En þegar voraði fór hann að ókyrrast og að loknu síðasta vorprófinu var hann horfinn í Mývatnssveitina til að aðstoða afa sinn og ömmu í Álftagerði við vorverkin. Þar undi hann sér vel. Hann æfði frjálsar íþróttir um tíma en svo tók körfuboltaá- huginn hug hans allan. Hann bjó hjá okkur mæðgum þegar hann var í FG og spilaði körfubolta með Val og gerði það gott þar. Íþróttataskan varð hluti af hon- um ásamt gömlu skólatöskunni sem hann fékk við upphaf grunnskólagöngunnar. Lalli var mjög fastheldinn og nýtinn og ákvað að skólataskan sú arna skyldi duga þar til stúdentsprófi væri náð. Það stóðst en æði oft var hann búinn að gera við hana og bæta og honum var ábyggi- lega oft strítt á gömlu töskunni en það skipti hann engu máli. Á þessum árum kom glæsilega stúlkan hún Anna Sif inn í líf hans og þau voru einstaklega fallegt par. Ég vann einnig með Lalla kringum landsmót hesta- manna, þar var hann fram- kvæmdastjóri og stóð sig afar vel. Hann hélt alltaf jafnaðar- geðinu og stóðst mikla pressu sem fylgir slíkum mótum. Oft létti húmorinn hans andrúms- loftið, sem gat orðið ansi þungt þegar ekki gekk alveg sem skyldi. Lalli var einstakur öð- lingur og hafði afar góða nær- veru og átti auðvelt með að fá fólk til að vinna með sér. Lalli var mikill fjölskyldu- maður. Brúðkaupsdagurinn þeirra Önnu Sifjar fyrir nokkr- um árum er ógleymanlegur. Yndislegt veður og fagurt um- hverfi Hólastaðar rammaði inn athöfnina og brúðhjónin fallegu geisluðu af hamingju með börnin sín, Pál Ísak, Ingimar og Kol- finnu. Þessi dásamlega mynd er dýrmætari nú en nokkru sinni fyrr. Nú er ekki annað eftir en að kveðja elskulegan frænda með hjartans þökk fyrir allt. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Guð minn, leggðu ástvinum Lalla líkn með þraut. Þórdís Friðbjörnsdóttir. Það er sólríkur vordagur og á Samangraddastöðum er verið að steypa gimbrahús. Það er Lárus bóndi sem stendur fyrir vinnunni, ákvað að nota tækifær- ið úr því að hjáleigan Álftagerði hafði pantað steypubíl. Ég öf- undaði hann svolítið af þessu gimbrahúsi, mitt var bara hlaðið. Á Samangraddastöðum bjuggum við tvíbýli, áttum hvor um sig á sem hét Surtla og hjá báðum var það besta ærin. Lalli átti einnig mórauðan hrút sem Björn í Álftagerði reyndi að fá keyptan en fór bónleið til búðar því mó- rauður hrútur er jú alltaf mó- rauður hrútur og ekki hægt að verðleggja slíka skepnu. Kýr átt- um við og hross og hvor sinn graðhestinn og svo einn grað- hest saman, Samangraddann. Annar eins gæðingur hefur ekki verið til í Íslandssögunni, ekki nóg með að jörðin væri nefnd eftir honum heldur lyftu öll hross sem undan honum komu svo vel að hófur nam við lær- legg. Svona liðu vor-, sumar- og haustdagar okkar Lalla þegar hann dvaldi og hjálpaði afa sín- um í Álftagerði. Flestar lausar stundir voru notaðar í búskapinn á Samangraddastöðum og nýtt- ist tíminn strax eftir hádegis- matinn þegar fullorðna fólkið tók hádegislúrinn okkur einstak- lega vel. Að auki hömuðumst við í íþróttum og reyndum með okk- ur í flestum greinum. Einnig reyndum við að gera gagn hjá pabba mínum og afa hans. Á sauðburði vöktum við yfir kind- unum fyrir part nætur og vorum ekki nema svona 11 ára gamlir þegar við byrjuðum á því. Alla vega vorum við ekki háir í loft- inu þegar gæf vinkona okkar hún Brúska bar og við á vakt. Hún reyndist hins vegar snakill með lömbum og réðst á okkur þegar við reyndum að nálgast hana. Hvorugur okkar þorði ofan í króna svo við stóð- um báðir í garðanum og reynd- um þaðan að koma henni í spil með hjálp kaðalspotta og grind- ar. Við héldum svo í Laugaskóla og vorum þar saman á íþrótta- braut, hvað annað. Ég átti dálít- ið erfitt uppdráttar félagslega á fyrsta ári en átti samt alltaf vinahóp sem studdi mig og fór Lalli þar fremstur í flokki. Hann var húmoristi og vinsæll, sem var ekki endilega sjálfgefið því Páll pabbi hans stýrði skólanum og þótti nokkuð stífur. Á öðru ári stakk Lalli upp á að ég byði mig fram til formennsku í nem- endafélaginu og hann ætlaði sér að verða formaður í íþróttafélag- inu. Svo fór að við náðum kjöri og saman stýrðum við æsku- vinirnir því öflugu félags- og íþróttalífi Laugaskóla og þvæld- umst með keppnisliðum skólans út um allt land. Síðan urðum við fullorðnir og leiðir skildi. Lalli var á kafi í körfubolta og ég í frjálsum og báðir að reyna að koma undir okkur fótunum og stofna fjöl- skyldu. Við hittumst því miður allt of sjaldan sem fullorðnir menn þótt við værum alltaf góðir vinir og félagar. En þegar við hittumst var mikið hlegið og sögurnar flugu. Alltaf stóð til að fara í hestaferð saman (á alvöru- hestum) en lífið þvældist svolítið fyrir. Hún verður þá bara farin í Sumarlandinu og þá munu þeir sko lyfta. Elsku Anna Sif, Páll Ísak, Ingimar Albert, Kolfinna Katla, Palli, Helga, Svana, Kolla, Helga María og allir hinir, haldið þétt utan um hvert annað. Minningin um góðan dreng lifir. Sigurbjörn Árni Arngrímsson (Bjössi). Við horfðum á eftir honum ríða úr Silfrastaðarétt í Miklabæ með börnum sínum og föður. Þeir feðgar fóru á undan okkur hinum til þess að geta stjórnað ferðinni svo ekki yrði teflt á tvær hættur með óvana knapa. Það var sól og blíða, skagfirskt sumar eins og það gerist feg- urst, gleði í lofti, allir á leið heilir heim eftir að hafa rekið trippi á fjall fram í Gilsbakka í Aust- urdal, með viðkomu á heimleið- inni í skála í Hálfdánartungum. Lárus Dagur Pálsson var að venju glaðbeittur í ferðinni, vitn- aði óspart í sameiginlegan kunn- ingja okkar og sagði „sæll, vin- ur,“ og „takk æðislega“ með blik í auga. Við höfðum gerst sekir um að mæta með illa járnuð hross og þurfti að reka fullmarg- ar skeifur undir hjá okkur. Ævinlega var Lalli mættur með munninn fullan af fjöðrum og búinn að rífa upp lappir og járna – með bros á vör. Og ekki laust við að góðlátleg skot fylgdu með. En alltaf tilbúinn að rétta hjálp- arhönd og lét gjarnan skondna sögu fylgja með. En skjótt hefur sól brugðið sumri. Við sjáum nú á eftir góð- um vini sem var kátur, hjálp- samur og traustur. Við Ragn- heiður Elfa og Sigurborg vottum Önnu Sif og börnum þeirra, for- eldrum hans, Palla og Helgu, systrum hans og fjölskyldum okkur dýpstu samúð. Pétur Már Ólafsson, Sigurður Þorsteinsson. Minn fyrsti vinur og sá traustasti er farinn, eins skrýtið og það hljómar. Síðustu daga hafa endalausar minningar rifj- ast upp, það eru líklega fáir utan nánustu fjölskyldu sem hafa haft jafn mikil áhrif á mig í lífinu og þú, Lalli. Vinátta okkar nær u.þ.b. 40 ár aftur í tímann, frá því við bjuggum báðir á Laug- arveginum. Árin þar á eftir ein- kenndust af okkar uppáhalds- leikjum, bóndó og vörubíló. Við ætluðum báðir að verða bændur. Vorum með dráttarvéladótið, bjuggum til tún og sinntum bú- skapnum eins og alvöru bændur. Stundum náði leikurinn yfir marga daga og það var bannað að ganga frá. Svo voru það vöru- bílarnir okkar. Við vorum sammála um að Liverpool væri besta lið í heimi, ég smitaðist þó lítillega af frændum mínum á Frostastöð- um þegar ég var sex ára og nefndi það við þig að ég væri að hugsa um að skipta um lið. Þú sagðir við mig: „Rúnar, maður skiptir ekki um lið!“ Ég sá að það var hárrétt hjá þér og hef haldið með Liverpool síðan. Árin liðu og leikirnir breyttust, hand- bolti í kjallaranum á Laugarveg- inum þar sem þú komst hlaup- andi framan úr forstofu og stökkst upp og hékkst í loftinu eins og Atli Hilmarsson, ég reyndi að verja. Körfuboltaáhorf á Skógarstígnum, NBA-úrslitin milli Lakers og Boston og okkar lið var Lakers. Lili Marlene-platan með Das Kapital sett á fóninn á Skóg- arstígnum og hlustað á Blind- sker í botni, Blindsker verður alltaf lagið okkar. Þú fórst í Laugaskóla og ég kom oft í heimsókn, þar kynntir þú mig fyrir vinum sem eru vinir okkar enn í dag. Tíminn leið, körfuboltinn varð stærri og stærri hluti af lífi okk- ar beggja, þú sem leikmaður og ég dómari. Fyrsti leikur minn í efstu deild karla var einmitt hjá þér. Það var gaman að fylgjast með árangri þínum í körfubolt- anum, úr körfuboltasalnum í Miðgarði í toppbaráttuna í efstu deild. 2002 réðir þú mig í vinnu á Landsmóti hestamanna við tæknimálin, nú 17 árum seinna er ég enn í því starfi. Það verður skrýtið að hitta þig ekki á Landsmóti næsta sumar. Það er líka ógleymanlegt þeg- ar þið Anna og Páll Ísak komuð í heimsókn til okkar í Danmörku þegar við fjölskyldan vorum ný- flutt til Árósa. Sólin, ströndin og börnin okkar að leika sér saman. Eins og gengur og gerist fækkaði samverustundunum eftir því sem árin liðu en það er óhætt að segja að þær hafi verið enn betri þegar við hittumst. Var alltaf eins og við værum að hittast daglega. Hádegisverður með gömlum Laugafélögum, matarboð hjá þér, við tveir á tónleika með Júníusi Meyvant og tónleikar með kórnum hans Arnars. Allt eru þetta stundir sem hlýja manni. Það er samt þannig að þótt maður hlýi sér við minningarnar er eiginlega ekki hægt að ímynda sér að við hittumst ekki aftur. Það mun líklega seint síast inn. En ég ætla mér að varðveita allar þessar minningar og minn- ast þeirra með öðrum, hversu traustur og tryggur vinur þú varst. Elsku Anna, Páll, Ingimar, Kolfinna, Skógarstígsfjölskylda og Skörðugilsfjölskylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu sam- úðarkveðjur og styrk. Minningin um góðan mann mun lifa. Rúnar Birgir Gíslason. Lárus Dagur hafði mikla mannkosti til að bera. Hann var tryggur vinur, samviskusamur, setti sig í spor annarra og hafði góða nærveru. Þá var hann húm- oristi og eftirherma sem sá oft spaugilegar hliðar á tilverunni og í fari annarra, án þess þó að vera meiðandi. Við kynntumst honum sem ungum dreng, Inga frá fæðingu hans en hann var systursonur hennar og ég í fyrsta jólaboðinu á Hofsósi hjá ömmu hans og afa. Við sjáum hann fyrir okkur sem brosmild- an glókoll í gallasmekkbuxum með verkfærin klár til að hjálpa afa sínum. Það var ekki hægt SJÁ SÍÐU 38 FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 10-17 alla virka daga Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN ÓLAFUR GÍSLASON fv. flugstjóri, Sléttuvegi 11, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 23. október á Hjúkrunarheimilinu Eir. Útförin fer fram miðvikudaginn 6. nóvember frá Grafarvogskirkju klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins (hringurinn.is) þar sem Stefán langafabarn hans hefur notið aðhlynningar. Elísabet Þórarinsdóttir Þórarinn Örn Stefánsson Piya Damalee Gísli Stefánsson Hulda Arndís Jóhannesdóttir Rósa Stefánsdóttir Óskar S. Jóhannesson Erna Stefánsdóttir Axel Skúlason barnabörn og langafabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR ARNFINNSSON Bakkabakka 6b, 740 Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 29. október. Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 4. nóvember klukkan 14. Aðstandendur þakka starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins fyrir alúðlega og góða umönnun. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Guðbjörg Þórisdóttir Kristinn Hjartarson Klara Jónasdóttir Arndís Hjartardóttir Vilhjálmur Skúlason Sigþór Hjartarson Heiðlóa Ásvaldsdóttir afabörn og langafabörn Elskuleg eginkona mín, móðir, amma og langamma, ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR Blásölum 24, Kópavogi, lést á deild 7a á Borgarspítalanum 14. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Borin til grafar 22. október. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 7a fyrir alúð, hlýhug og góða umönnun í veikindum hennar. Matthías Daði Sigurðsson Guðmundur Jón Friðriksson Finnur Daði Matthíasson Jóhann Magnús Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra ÁRDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Byggðavegi 149, Akureyri, lést laugardaginn 19. október á Dvalarheimilinu Hlíð. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sendum starfsfólki Hlíðar innilegar þakkir fyrir frábæra umönnun. Ingunn Klemenzdóttir Leonóra Möller Guðmunda H. Jónsdóttir Hulda Steingrímsdóttir Evlalía Kristjánsdóttir Sólveig Kristjánsdóttir Rósa Kristjánsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Hesti í Önundarfirði, síðast Dalbraut 18, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut 20. október. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 6. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu minnast hennar er bent á Hjartaheill. Gunnar Pétur Héðinsson Ingibjörg Valgeirsdóttir Hallgrímur Ingimar Jónsson Marta Sólveig Björnsdóttir og ömmubörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.