Morgunblaðið - 02.11.2019, Page 47
Þarmaflóran samanstendur af meiraen 1000 tegundum örvera sem vegahátt í 2 kíló. Hún gegnir gríðarlega
mikilvægu hlutverki þegar kemur að
heilsufari okkar, hvort sem um er að ræða
líkamlega eða andlega heilsu.
Ójafnvægi á þarmaflóru
Þegar ójafnvægi kemst á þarmaflóruna
Þarmaflóran samanstendur af meira en 1000
tegundum örvera sem vega hátt í 2 kíló.
Hún gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki
þegar kemur að heilsufari okkar, hvort sem
um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu.
Rannsóknir
Ójafnvægi á þarmaflóru
Þegar þarmaflóran (örveruflóran) í
meltingarveginum verður fyrir hnjaski
og það kemst ójafnvægi þar á, koma fram
óþægindi sem geta verið af ýmsum toga.
Þetta er t.d. :
n Uppþemba
n Brjóstsviði
n Harðlífi/niðurgangur
n Sveppasýkingar
n Blöðrubólga
n Ristilkrampar
n Iðraólga (IBS)
Mataræði, lyf og streita
Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi
á þarmaflórunni þannig að við finnum fyrir
fyrir því. Slæmt mataræði hefur mikil áhrif
og eins og alltaf þá eru unnin matvæli og
sykur þar fremst í flokki. Lyf eins og sýklalyf,
sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru slæm fyrir
þarmaflóruna og svo getur streita einnig haft
alvarlegar afleiðingar í þörmunum, eins og
víða annarsstaðar í líkamanum.
Hvað er Iðraólga (IBS)
Iðraólga sem sumir þekkja sem ristilkrampa
á sér stað við truflun á starfsemi ristils
og smáþarma á þann hátt að í stað þess
að dragast reglubundið saman og flytja
þannig fæðuna taktfast áfram þá verða
samdrættir á mismunandi stöðum ristils og
smáþarma samtímis. Þessar truflanir koma
oftast í kjölfar máltíða. Afleiðingar þessara
óreglulegu samdrátta eru þær að fæðan
berst treglegar niður meltingarveginn og
frásog vatns truflast með þeim afleiðingum
að hægðirnar verða harðar en geta einnig
stundum orðið linar eða jafnvel að þunnum
niðurgangi. Iðraólgu verður yfirleitt fyrst
vart hjá ungu fólki og hrjáir að jafnaði 15-
20% fullorðinna en flestir eru á aldrinum
20-50 ára. Konur eru í meiri áhættu svo og
þeir sem lifa við mikla streitu.
Bio Kult minnkar einkenni iðrabólgu
Vísindalegum rannsóknum á þarmaflóru
okkar mannanna fleytir hratt fram. Við
þurfum sífellt að vera að endurskoða
viðhorf okkar og sjónarmið því skilningur
okkar á hlutverki hennar í líkamanum er
sífellt að aukast. Framleiðendur Bio-Kult
gerlana hafa látið gera mikið af tvíblindum,
klínískum rannsóknum sem sýna fram á
ótrúlega jákvæða virkni gerlanna þegar
kemur að því að draga úr þeim einkennum
sem nefnd voru hér áður. Nýlega voru birtar
niðurstöður rannsóknar sem gerð var á hópi
fólks sem þjáðist af iðraólgu og voru þær
afar áhugaverðar.
70%minni verkir
Í rannsókninni var 360 manna hóp skipt
til helminga og fékk annar hópurinn
BioKult Original sem inniheldur 14
mismunandi gerlastofna á meðan hinir
fengu lyfleysu (placebo). Tekin voru 4
hylki á dag í 16 vikur áður en árangurinn
var metinn. Marktækur munur var á
hópunum en iðrarverkir þeirra sem tóku
inn Bio Kult Original höfðu minnkað
um nærri 70% (samanborið við 47% í
samanburðarhópnum). Einnig hafði tíðni
verkjakasta hjá Bio-Kult hópnum dregist
saman um rúm 70%. Í lok rannsóknar
voru 34% þeirra sem höfðu fengið Bio-Kult
Original einkennalausir á meðan það voru
einungins 13% í samanburðarhópnum.
Geta allir tekið góðgerla?
Allir geta tekið inn góðgerla til að hjálpa
til við að halda jafnvægi á þarmaflórunni.
Fjöldi örvera í meltingarveginum er
gríðarlega mikill og það getur verið flókið
og dýrt ferli að ætla greina hvert tilfelli
fyrir sig nákvæmlega. Sem betur fer eru
góðgerlar til inntöku hættulausir og í
versta falli verður engin breyting. Það
getur einfaldlega þýtt að önnur tegund,
samsetning stofna eða magn henti betur.
14 góðgerlastofnar
Bio Kult Original innheldur 14 gerlastofna
og líklegast ein af fáum góðgerlablöndum
sem hafa jafn mikið af rannsóknum á
bak við sig. Rannsóknum á þessu sviði,
þ.e.a.s. tengslum þarmaflórunnar við aðra
líkamsstarfsemi, fjölgar stöðugt og ljóst er
að enn frekari rannsókna er þörf.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
„Allir ættu að taka inn góðgerla
(probiotics) til að auka líkur á
heilbrigðu lífi og hefur Bio Kult
reynst mörgum vel.“
Hrönn Hjálmarsdóttir Heilsumarkþjálfi
Rannsóknir sýna fram á að inntaka á Bio Kult Original getur
dregið verulega úr einkennum iðraólgu (IBS) og ristilkrampa
og tíðni verkjakasta minnkar um rúmlega 70%
70% minni
verkir með
Bio Kult
Lyf eins og sýklalyf, sýrubindandi lyf og
gigtarlyf eru slæm fyrir þarmaflóruna og
svo getur streita einnig haft alvarlegar
afleiðingar í þörmunum,
„Ég hef haft psoriasis gigt í meira en tuttugu ár og hef tekið töluvert af lyfjum þess vegna. Fyrir nokkrum árum fór ég að eiga við
magavandamál að stríða sem eru líklegast tilkomin vegna lyfjanotkunar en fyrir utan magaónot og uppþembu var ég alltaf þreytt og
orkulaus. Ég hef prófað svo margt gegnum tíðina en fundið lítinn mun, þar til ég kynntist Enzymedica ensímunum. Þvílíkur munur og
það besta er að ég fannmuninn strax. Ég er ekki lengur útblásin eftir máltíðir, hægðir urðu fljótt reglulegar, orkan margfaldaðist og ég
er ekki að kljást við magavandamál lengur.“ Anna Gréta
Ekki lengur útblásin eftir máltíðir!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á
óþægindi svo sem loftmyndun,
uppþembu, meltingartruflanir og
meltingaróreglu
Ein öflugustumeltingarensím
á markaðnum í dag
Útsölustaðir: Apótekarinn, Fræið Fjarðarkaupum, Heilsuhúsið og Lyf & Heilsa.
● Betri melting, meiri orka!
● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),Magnesíum Citrate,
Coensime Q10, Phytase)
● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna