Morgunblaðið - 02.11.2019, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Halla Unnur Helgadóttir
Viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali
s 659 4044 / halla@gimli.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikritið Eitur, eftir hollenska leik-
skáldið Lot Vekemans, verður
frumsýnt á Litla sviði Borgarleik-
hússins í kvöld. Verkið hefur verið
þýtt á yfir tuttugu tungumál og ver-
ið sýnt víða um heim á undan-
förnum tíu árum.
Í verkinu leika
Nína Dögg Fil-
ippusdóttir og
Hilmir Snær
Guðnason fyrr-
verandi hjón sem
hittast eftir tíu
ára aðskilnað við
óvæntar aðstæð-
ur. Í ljós kemur
að þau urðu fyrir
því áfalli að missa
barn og hafa tekist á við sorgina
með ólíkum hætti.
Leikstjóri verksins er Kristín
Jóhannesdóttir og segir hún hol-
lensk verk sjaldséð á íslensku leik-
sviði. Það sé því ánægjuefni að fá að
leikstýra verki eftir Hollending og
það afar hæfileikaríkan. „Hún er al-
veg ótrúleg,“ segir Kristín um Vek-
emans. „Hún á að baki mjög glæsi-
legan feril, hefur skrifað upp undir
30 verk og er margverðlaunuð út
um allar jarðir og sérstaklega hefur
hún notið mikillar hylli í Hollandi,
hefur hlotið bestu verðlaunin á
þeirri grund. Verk hennar hafa ver-
ið sýnd um allan heim.“
Fylgifiskur mannkyns
Umfjöllunarefni verksins, sorg-
ina, ættu allir eða langflestir full-
orðnir að geta tengt við. „Hún hefur
náttúrlega fylgt mannkyninu og
mun alltaf fylgja því þann tíma sem
við eigum eftir á þessari jörðu. Að
missa einhvern og sorgin er hluti af
því að vera til, eitthvað sem menn
verða að kljást við, fyrr eða síðar,“
segir Kristín. Hún segir verkið
fjalla um tvenns konar viðhorf til
missis, hvernig eigi að bregðast við
og hvað sé til ráða. „Sorgarferlið er
eitt það flóknasta sem maður lendir
í, svo margbrotnar tilfinningar og er
kallað í sálfræðinni „complicated
grief“ eða „margbrotin sorg“ sem
getur orðið mjög stór meinsemd.
Konan, sem einfaldlega er nefnd
„hún“ í verkinu, horfir stöðugt til
baka, er föst í sorginni og líður, að
hennar mati, ekkert betur en fyrir
tíu árum. Karlinn, „hann“, vill hins
vegar bregðast við missinum með
því að horfa fram á veginn, reyna að
finna leið út úr sorginni og sætta sig
við orðinn hlut.
„Þetta er meginstefna höfundar í
þessu máli. Hvort sem þú horfir um
öxl og lendir í gildru sorgar eða vilt
reyna að sættast við þetta með ein-
hverju móti er það jafngilt. Þetta er
jafnmikil sorg, eftir sem áður. Það
er ekki hægt að segja að einum
reynist þetta léttara en öðrum.
Verkefni höfundarins, Vekemans,
var að sýna fram á að sorgarferli
verður ekki sett á vogarskálar.
Þetta eru ótrúlega margbrotnar og
flóknar tilfinningar og allur tilfinn-
ingaskalinn undir. Þú getur ekki
sagt að eitthvað sé skárra, betra eða
gildara en annað í þessum málum,“
segir Kristín.
Húmorinn hjálpartæki
–Hvers vegna heitir verkið þessu
nafni, Eitur?
„Það er vegna þess að hann fær
bréf frá henni þar sem þeim er
stefnt til fundar í kapellu kirkju-
garðsins þar sem sonur þeirra er
grafinn. Það á að grafa upp líkin í
garðinum vegna þess að jarðveg-
urinn er eitraður. Ofan á allt annað
flækir þetta málin mjög mikið,“ seg-
ir Kristín. Hann og hún mæta til
fundar og bíða og bíða en enginn
kemur. Kristín segist ekki vilja
ljóstra frekar upp um söguþráð
verksins.
–Þetta hljóta að vera mjög erfið
hlutverk fyrir leikarana, þau hljóta
að reyna mikið á?
„Þetta er gífurlegt álag að fara í
gegnum þetta, mikil þrekraun fyrir
leikarana og okkur öll sem erum að-
standendur sýningarinnar,“ svarar
Kristín en hins vegar sé hjálpartæki
sorgarinnar að finna húmorinn í líf-
inu. „Við erum bæði búin að gráta
úr sorg og hlátri. Þetta kallar hvað
á annað og það er líka svo flókið,
hvernig orðaskipti í miðju sorgar-
ferli geta valdið miklum hláturs-
köstum,“ segir Kristín. „Það kemur
skýrt í ljós á vegferð persónanna í
verkinu.“
Orðin jafnmikilvæg myndunum
Kristín segir orðin jafnmikilvægt
tæki fyrir leikskáldið og myndirnar
sem upp eru dregnar. „Það er svo
mikil tónlist í textanum, svo mikill
taktur. Hljómfallið er mjög sérstakt
og höfundurinn orðar það þannig að
orðin geta verið bjargvættur, um
nánd og annað en það sem ekki er
sagt getur líka legið í orðunum. Það
finnst mér svo sterkt í þessu tilfelli,
það er svo margt sem liggur ósagt
og hefur legið í öll þessi ár. Við
skynjum það strax frá upphafi
verksins. Það eru t.d. engir punktar
í verkinu, einhverju er ekki lokið.
Allur textinn og strúktúrinn felur
þetta í sér, að aldrei hafi verið talað
út um málin, kannski ekki fyrr en
þau hittast aftur eftir tíu ár,“ segir
Kristín. Verkið var þýtt úr frum-
málinu af Rögnu Sigurðardóttur,
rithöfundi og skáldi og segir Kristín
það mikinn happafeng að fá svo rit-
færa manneskju í verkið.
Kristín er að lokum spurð að því
hvort eitthvert stress sé í henni fyr-
ir frumsýningu og segist hún ekki
stressuð eftir vel heppnað loka-
rennsli. „Ég veit að þetta verður
mjög átakamikið fyrir leikarana, að
sýna þetta kvöld eftir kvöld,“ segir
hún og að þau Hilmir og Nína þurfi
að vinna úr einhverju á hverju
kvöldi eftir sýningu. Kristín segir
algjöra nauðsyn að sýna verkið í
þeirri nánd sem Litla sviðið veitir.
„Ég held mikið upp á Litla sviðið og
hef unnið mikið þar.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Hlátur„Við erum bæði búin að gráta úr sorg og hlátri. Þetta kallar hvað á
annað og það er líka svo flókið, hvernig orðaskipti í miðju sorgarferli geta
valdið miklum hlátursköstum,“ segir Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri.
„Sorgin er hluti af því að vera til“
Borgarleikhúsið frumsýnir Eitur Hjón sem misstu barn og skildu í kjölfarið hittast aftur eftir tíu
ár við óvæntar aðstæður Margbrotnar og flóknar tilfinningar og allur tilfinningaskalinn undir
Kristín
Jóhannesdóttir
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Sönghópurinn Cantoque Ensemble
og Barokkbandið Brák, sem Elfa
Rún Kristinsdóttir leiðir, flytja í
Langholtskirkju í dag kl. 16
Jóhannesarpassíu eftir J.S. Bach
undir stjórn Steinars Loga Helga-
sonar. „Kórinn telur 12 söngvara og
hljómsveitin 14 hljóðfæraleikara,“
segir Steinar Logi og bendir á að um
upprunaflutning verksins sé að
ræða. „Upprunaflutningur felur
bæði í sér að leikið er á hljóðfæri frá
ritunartímanum eða eftirlíkingar
þeirra og að sönghópurinn er fá-
mennari í samræmi við það sem við-
gengst á sínum tíma. Markmiðið
með þessu er tvíþætt; að nálgast
uppruna tónlistarinnar eins og hún
var þegar hún var samin og að draga
fram þá nánd sem í verkinu leynist
og segja þannig píslarsöguna á per-
sónulegan máta,“ segir Steinar Logi
og bendir á að það sé hugmynd frá
rómantíska tímanum að flytja eigi
barokkverk með risakór og fjöl-
mennri hljómsveit.
„Verkið hefur verið flutt áður hér-
lendis með upprunahljóðfærum, en
ég veit ekki til þess að það hafi verið
flutt með jafnfámennum hópi söngv-
ari. Með því að hafa aðeins þrjá
söngvara í hverri rödd og minni
hljómsveit erum að reyna að vera
nær markmiði Bach,“ segir Steinar
Logi og bendir á að fyrir vikið mæði
mun meira á hverjum og einum.
„Í sönghópnum eru margir af
þekktustu söngvurum Íslands sem
hafa sérhæft sig í flutningi barokk-
tónlistar,“ segir Steinar Logi og tek-
ur fram að söngvararnir skipti ein-
söngshlutverkum passíunnar á milli
sín. Meðal söngvara eru Hildigunn-
ur Einarsdóttir, Lilja Dögg Gunn-
arsdóttir, Fjölnir Ólafsson og Hall-
veig Rúnarsdóttir. Eini erlendi
söngvarinn er Alex Ashworth, pró-
fessor í söng við Royal Academy of
Music, sem syngur hlutverk Jesú.
Í samtali við Morgunblaðið rifjar
Steinar Logi upp að Bach hafi samið
verkið til flutnings á föstudaginn
langa og því sé óvanalegt að flytja
það í nóvember. „Nú um mánaða-
mótin er allraheilagramessa sem er
minningardagur kirkjunnar um hina
látnu og því fannst okkur við hæfi að
flytja verkið nærri þeim degi,“ segir
Steinar Logi sem í ár lýkur námi í
kammersveitarstjórnun frá
Konunglega Tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn. Aðspurður segir
hann skólann hafa sýnt því góðan
skilning að hann stykki til Íslands að
stjórna Jóhannesarpassíunni enda
mikilvæg og góð reynsla fyrir Stein-
ar Loga. „Hallveig kom að máli við
mig í vor og bauð mér að stjórna
þessu veki og kann ég henni bestu
þakkir fyrir að treysta mér fyrir
þessu stóra verkefni.“
Fámennið dreg-
ur fram nándina
Jóhannesarpassía flutt í dag kl. 16
Góð Sönghópurinn Cantoque Ensemble og Barokkbandið Brák á æfingu.