Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 56

Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 56
Tónleikar Sígildra sunnudaga í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 16 verða tileinkaðir sígildum dægurperlum. Flytjendur eru Ragn- heiður Gröndal og Tríó Nordica sem skipað er þeim Auði Hafsteins- dóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Monu Kontra. Útsetningar gerði Þórður Magnússon. Sígildar dægurperlur í Norðurljósum Hörpu LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Geysileg spenna var á lokasekúnd- unum í báðum leikjum gærkvölds- ins í Dominos-deild karla í körfu- knattleik. Stjarnan tryggði sér sigurinn með flautukörfu í Njarðvík og Grindvíkingar skoruðu síðasta stigið á lokasekúndunni gegn Fjölni í Grafarvogi. Stjarnan er enn án Hlyns Bæringssonar sem er meidd- ur en vann þrátt fyrir það. »45 Úrslitin réðust á lokasekúndunum Stórsveit Reykjavíkur flytur tónlist eftir Duke Ellington á tónleikum í Silfurbergi Hörpu annað kvöld kl. 20. Eftir Ellington liggja um 2.000 verk en hann var þekktur fyrir að nýta allar mögulegar litasamsetn- ingar stórsveitar sinnar til hins ýtr- asta, ásamt því að skrifa sérstaklega fyrir hina litríku einstaklinga sem hann réð til starfa. Þannig skapaði hann einstakan hljóðheim sem enn kemur tónleikagestum um víða ver- öld á óvart. Krist- jana Stefáns- dóttir verður gestur í nokkrum laganna en Sig- urður Flosason stjórnar og kynnir. Ellington að eilífu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Handunnið bókband á undir högg að sækja en Guðlaugur Atlason, bók- bandsmeistari í Vogum á Vatns- leysuströnd, stendur enn keikur vaktina. „Ég bind reglulega inn, 87 ára gamall karlinn,“ segir hann. „Svo gylli ég líka oft bækurnar.“ Stutt er að fara í vinnuna, í við- byggingu við íbúðarhúsið, og Guð- laugur kvartar ekki yfir verkefna- skorti. Um þessar mundir er hann að binda inn þrjár bækur fyrir Grinda- víkurbæ, fundargerðir bæjar- stjórnar og bæjarráðs. „Ég hef bundið inn fyrir bæjar- stjórnir í Grindavík, Garði, Sand- gerði og Vogum í mörg ár, og auk þess fyrir mörg fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.“ Í því sambandi til- tekur hann sérstaklega að hann hafi bundið inn 50 til 60 bækur fyrir Hita- veitu Suðurnesja. „Svo hef ég verið að binda inn sálmabækur fyrir barnabörnin, gestabækur og fleira og eitt sinn bað maður í Borgarfirði mig að binda inn mörg hefti um greifann af Monte Cristo. Karlinn hefur þannig alltaf verið að dunda við eitthvað skemmtilegt.“ Guðlaugur byrjaði að læra bók- band í Prentsmiðju Hafnarfjarðar þegar hann var 16 ára. Fljótlega eftir sveinsprófið var hann í lögreglunni í fimm ár en fór síðan aftur í prentið, var í fjögur ár hjá Prentsmiðjunni Litmyndum og síðan verkstjóri í Prentsmiðju Hafnarfjarðar frá 1963 til 1998. Hann útskrifaði þrjá sveina á ferlinum og kenndi í Flensborgar- skóla um tíma. „Ég hætti formlega að vinna um áramótin eftir að ég varð 67 ára og hef verið sjálfs mín herra síðan. Þegar maður er orðinn svona gamall er þetta draumastarf til þess að dunda við.“ Rétt hitastig skiptir öllu Vinnustofan er eins og safn merki- legra muna. Mesta rýmið tekur hirsla, sem var upphaflega í prent- smiðju í Borgarnesi, með stafi og tákn í ýmsum leturgerðum frá tíma handsetningar. „Hluti af þessu kem- ur sér vel,“ segir Guðlaugur og við tekur sýnikennsla. Hann raðar upp stöfum í svonefndan haka og sýnir hvernig hann ber sig að við gylling- una. „Þá er mikilvægt að hafa ná- kvæman og mikinn hita,“ segir hann og tekur fram sérstakt hitatæki því til staðfestingar. „Mesti vandinn við gyllingu er að hafa réttan hita,“ áréttar hann. Hjónin Guðlaugur og Ása Árna- dóttir búa í húsinu, sem hún fæddist í og byggt var 1911. „Hún er aðal- saumakonan, er saumavélin mín, og hjálpar við fleira eins og til dæmis öskjugerðina,“ segir Guðlaugur og tekur fram sýnishorn af handverk- inu. Þegar Guðlaugur vann í Prent- smiðju Hafnarfjarðar byrjaði hann að útbúa kjörskrár fyrir Hafnar- fjarðarbæ og hefur sinnt því starfi í yfir 50 ár. „Ég var ábyrgur fyrir taln- ingu í kosningum í Hafnarfirði frá 1963 þar til í síðustu kosningum, jafnt í sveitarstjórnar-, Alþingis- og forsetakosningum, og er mjög mont- inn af því. Ég var líka oft fyrstur með fréttirnar úr kosningunum en eftir að bannað var að byrja að telja fyrr en klukkan tíu var þetta ekki eins spennandi, því síðan hefur liðið lengri tími frá því kjörstöðum er lokað og þar til fyrstu tölur birtast.“ Morgunblaðið/RAX Bókband og gylling Guðlaugur Atlason og Ása Árnadóttir með sýnishorn af handverkinu í vinnustofunni. Meistari bókbandsins  Guðlaugur Atlason er 87 ára og er enn að við bókband og gyllingu  Var lengi fyrstur með fréttirnar úr kosningum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.