Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 6. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 287. tölublað 107. árgangur
HÆSTA UPP-
HÆÐIN TIL
HANDBOLTA
KÖKUKEPPNI
MATARVEFS
MBL.IS
FYRSTA PLATAN
EFTIR 20 ÁRA
STARF
JÓLAKAKAN 2019 11 VÖRÐUKÓRINN 36AFREKSSJÓÐUR ÍSÍ 34
Skautasvellið á Ingólfstorgi, sem Nova stendur fyrir, var sett
upp um síðustu helgi og hefur líkt og áður notið mikilla vin-
sælda hjá börnum og fullorðnum. Skemmtilegust hefur
stemningin verið þegar kvölda tekur og ekki skemmir að hafa
snjó yfir öllu. Svellið er opið alla daga í desember kl. 12-22 en
lokað verður á aðfangadag og jóladag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólastemning á
skautasvellinu
á Ingólfstorgi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúum í Reykjanesbæ hefur fjölgað
alla mánuði ársins, að undanskildum
júlí, þrátt fyrir bakslag í ferðaþjón-
ustu og uppsagnir á Keflavíkurflug-
velli. Íbúatalan nálgast 19.500 og er
það fjölgun um 500 íbúa á árinu.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segir að
skipta megi erlendum ríkisborgur-
um sem flytja á Suðurnesin í tvo
flokka. Þá sem setjast að á svæðinu
og hina sem teljist kvikt vinnuafl.
Birtist með ýmsum hætti
Þróunin í ár bendi til að fyrrnefndi
hópurinn hafi ákveðið að vera áfram
á Íslandi og bíða eftir því að efna-
hagslífið taki við sér, í stað þess að
flytja aftur til upprunalands.
Hann segir niðursveifluna birtast
bæjarfélaginu með ýmsum hætti.
„Tekjur eru í samræmi við áætl-
anir sveitarfélagsins enda höfðum
við áætlað tekjur varlega undanfarin
ár. Við merkjum ekki að niðursveifl-
an setji þessa áætlanagerð úr skorð-
um. Við finnum hins vegar að þeim
sem eru án vinnu líður auðvitað ekki
vel. Það birtist m.a. í auknu álagi og
fyrirspurnum í félagsþjónustunni.
Menn eru að leita upplýsinga um
sinn rétt og hvaða möguleikar eru í
stöðunni til að þreyja þessa erfiðu
mánuði þar til flugumferð eykst á ný
með vorinu,“ segir Kjartan Már.
Þrátt fyrir tímabundinn samdrátt
í farþegaflugi geri áætlanir ISAVIA
og flugrekenda ráð fyrir vexti í flug-
inu á næstu árum. Umsvif í alþjóða-
flugi hafi aukist stöðugt á öldinni
þrátt fyrir bakslag 2001 og 2008.
Níunda hagvaxtarárið í röð
Samkvæmt nýrri hagspá Arion
banka verður 0,3% hagvöxtur í ár.
Hafði bankinn áður spáð því að
landsframleiðslan myndi dragast
saman. Gangi spáin eftir yrði þetta 9.
hagvaxtarárið í röð á Íslandi.
Hins vegar spáir bankinn aðeins
0,6% hagvexti á næsta ári.
Samkvæmt lífskjarasamningnum
er greiddur hagvaxtarauki sé hag-
vöxtur að lágmarki 1% á mann. Erna
Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræð-
ingur Arion banka, segir ekki útlit
fyrir að skilyrði skapist fyrir hag-
vaxtaraukanum í ár eða á næsta ári.
Mikil óvissa sé um möguleg áhrif
af stofnun nýrra flugfélaga.
Bíða frekar eftir
nýrri uppsveiflu
Innflytjendur á Suðurnesjum kjósa að vera áfram á Íslandi
Hagvaxtarspá Arion
banka til ársins 2022
4,8%
2,7%
0,3%
0,6%
2,0%
2018 2019 2020 2021 2022
Heimild: Hagspá Arion
banka 5. des. 2019
MSpáir nú 0,3% … » 6
Útlit er fyrir að þetta verði þriðja
sólríkasta árið í Reykjavík frá upp-
hafi mælinga. Kæmi það á eftir ár-
unum 1924 og 2012, þegar sólskins-
stundir voru fleiri en í ár.
Vantar nú um 28 sólskinsstundir
til að ná öðru sætinu.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
telur ólíklegt að það takist í desem-
ber í ár. »2
Þriðja sólríkasta
árið í borginni
18 dagartil jóla
Jólaleikir eru á
jolamjolk.is
Um 200 manns hafa skráð sig á bið-
lista vegna forsölu nýrra íbúða í
Arnarhlíð á Hlíðarenda.
Hannes Steindórsson, fasteigna-
sali hjá Lind fasteignasölu, segir
stefna í að um 300 manns muni hafa
skráð sig í lok næstu viku.
Vel á annað hundrað íbúðir hafa
selst á reitum E og F á Hlíðarenda
síðan salan hófst síðasta sumar.
Að sögn Hannesar eru nýjustu
íbúðirnar, sem eru á D-reit, í öðrum
gæðaflokki en íbúðirnar sem komið
hafa á markaðinn síðustu mánuði.
Það birtist meðal annars í aukinni
lofthæð, vönduðum innréttingum,
granítplötum á baðherbergjum,
rafmagni í gardínum, Miele-
tækjum og frágangi og hönnun.
Þá hefur hátt hlutfall nýrra íbúða
í Smárabyggð selst í ár. »4
Teikning/Onno
Á leið í sölu Dæmi um útlit fjöl-
býlishúsa á D-reitnum á Hlíðarenda.
Biðlisti eftir
lúxusíbúðum
Arnarhlíð í sölu