Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.isÁgúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is
ViðskiptiStefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lífeyrisgreiðslur sem fólk sem bú-
sett er á Norðurlöndunum fær frá
Íslandi eru undantekningarlaust
skattskyldar og skattlagðar hér á
landi. Reglur tvísköttunarsamninga
sem Norðurlöndin hafa gert með sér
kveða á um að lífeyrisgreiðslur eru
alltaf skattlagðar í landinu þar sem
lífeyririnn er greiddur.
Mikið er um tilflutning fólks á
milli landa, ekki síst innan Norður-
landanna og frá Íslandi til suður-
hluta Evrópu. Samkvæmt upplýs-
ingum embættis ríkisskattstjóra er
talsvert spurt um skattlagningu líf-
eyrisgreiðslna í þessu samhengi.
Ekki skattlagt tvisvar
Ísland hefur gert tvísköttunar-
samninga við 45 lönd. Slíkir samn-
ingar eru gerðir til að komast hjá því
að sömu eignir og tekjur verði skatt-
lagðar í tveimur löndum. Kveðið er á
um hvar megi skattleggja tilteknar
eignir og tekjur og hvort landið hef-
ur skattlagningarréttinn. Alltaf er
miðað við skráð lögheimili.
Í öllum tvísköttunarsamningum
sem stjórnvöld hafa gert við erlend
ríki er samið um skattlagningu líf-
eyristekna en samkvæmt upplýsing-
um frá ríkisskattstjóra er skattlagn-
ingarrétturinn mjög mismunandi
eftir samningum. Þar getur skipt
máli í hvaða landi viðtakandi lífeyris
er búsettur, í hvaða landi lífeyrir er
greiddur og um hvers konar lífeyri
er að ræða. Þannig gilda ekki alltaf
sömu reglur um greiðslur frá al-
mannatryggingum, almennum líf-
eyrissjóðum eða mismunandi opin-
berum lífeyrissjóðum. Því þarf að
skoða ákvæði hvers samnings til að
sjá það hvar skattlagningarrétturinn
liggur.
Öðruvísi reglur gilda um Spán
Sem dæmi má nefna að þeir sem
eru heimilisfastir og skattskyldir á
Spáni greiða skatta af lífeyristekjum
þar, samkvæmt tvísköttunarsamn-
ingi Íslands og Spánar. Á þetta við
um lífeyri frá Tryggingastofnun og
almennum lífeyrissjóðum. Fái þeir
lífeyri frá lífeyrissjóðum opinberra
starfsmanna eða sveitarstjórna er
hann hins vegar skattlagður á Ís-
landi.
Eina skýra reglan er á milli Norð-
urlandanna þar sem ríkin hafa sam-
einast um einn tvísköttunarsamning:
Lífeyristekjur frá Íslandi til fólks
sem búsett er á Norðurlöndunum
eru undantekningarlaust skattlagð-
ar hér. Það sama gildir ef tvískött-
unarsamningur hefur ekki verið
gerður við ríkið sem lífeyrisþegi er
búsettur í, lífeyrisgreiðslurnar eru
skattlagðar hér á landi.
Lífeyrir er skattlagður hér
Skattur er greiddur af lífeyrisgreiðslum í greiðslulandinu þótt fólkið búi í öðrum
ríkjum Norðurlanda Fyrirkomulagið er flóknara vegna samninga við önnur ríki
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sólarströnd Margir vilja nýta lífeyrinn þar sem ódýrara er að lifa.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í Reykjavík stefnir í að árið verði
það þriðja sólríkasta frá upphafi
mælinga, á eftir árunum 1924 og
2012. Þetta upplýsir Trausti Jóns-
son veðurfræðingur.
Summan yfir árið stendur nú í
1559,1 stund, segir Trausti. Metið er
1630,6 sólskinsstundir (1924) og
næst er svo 1587,1 stund (2012). Það
vantar því 28,1 stund til að annað
sæti náist. Það hefur gerst fjórum
sinnum á rúmum 100 árum að sól-
skinsstundir hafi verið fleiri en 28 í
desember, segir Trausti. Flestar
voru þær 2010, 31,8, 30,2 árið 1976,
29,2 árið 2009 og 29,1 árið 1981.
„Það er heldur ólíklegt að þetta
gerist nú – fyrstu þrír dagarnir hafa
verið sólarlausir með öllu,“ segir
Trausti. Fram undan er dimmasti
tími ársins og sólin á lofti í skamma
stund. Í desember í fyrra mældust
aðeins 10,4 sólskinsstundir í
Reykjavík og enn færri á Akureyri,
0,3.
Hvað hlýindi snertir mun árið
2019 koma vel út. Í yfirliti á vef Veð-
urstofunnar má sjá að meðalhiti í
Reykjavík fyrstu 11 mánuði ársins
var 6,3 stig. Er það 1,6 stigum ofan
meðallags áranna 1961 til 1990 en
0,4 stigum ofan meðallags síðustu
tíu ára. Meðalhitinn raðast í 6. til 7.
sæti á lista 149 ára sögu mælinga. Á
Akureyri var meðalhiti mánaðanna
ellefu 4,8 stig. Það er 1,1 stigi ofan
meðallags áranna 1961 til 1990 en
-0,2 stigum undir meðallagi síðustu
tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 25.
sæti á lista 139 ára mælinga.
Úrkoma í Reykjavík hefur verið
11% umfram meðallag og 15% um-
fram meðallag á Akureyri, þrátt
fyrir að nýliðinn nóvember hafi ver-
ið nær úrkomulaus þar í bæ.
Árið 2019 óvenjusólríkt
Morgunblaðið/Hari
Góðviðri Börn busla í Nauthólsvík.
Hlýindi hafa
einkennt árið
Jarðvinna vegna nýs meðferðar-
kjarna Landspítalans er langt kom-
in. Klöppin hefur verið sprengd og
grjótið flutt til í landfyllingu í
Sundahöfn, austan Laugarness.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf.
(NLSH), segir jarðvinnu ÍAV
ganga samkvæmt áætlun. Fyrir-
tækið sé aðalverktaki vegna jarð-
vinnu við meðferðarkjarna og
gatnagerðar á svæðinu. Áformað
sé að ljúka jarðvinnunni eftir um
fjóra mánuði.
„Þeir eru einnig að vinna að
grunni bílakjallarans sem verður
undir Sóleyjartorginu og er verkið
samkvæmt áætlun. Það er gert ráð
fyrir að þeir séu búnir með öll verk
í aprílbyrjun en þá hefjist upp-
steypan,“ segir Gunnar.
„Forval vegna uppsteypunnar
stendur til 16. desember og það er
gert ráð fyrir því að í upphafi árs
2020 verði framkvæmt lokaútboð á
grunni niðurstöðu forvalsins.“
Grunnur
spítalans er
langt kominn
Morgunblaðið/Eggert
Jón Bjarki Bents-
son, aðalhagfræð-
ingur Íslands-
banka, segir
bankann gera ráð
fyrir að gengi
krónu haldist
stöðugt næstu
ársfjórðunga.
„Við höfum séð
krónuna hrista af
sér tíðindi sem
ýmsir hefðu kannski haldið að
myndu hreyfa töluvert við henni.
Það hefur gengið á ýmsu í ár. WOW
air fór í þrot og birst hafa fréttir af
erfiðleikum Icelandair sem ættu að
hafa áhrif svo nokkuð sé nefnt.
Mergur málsins er hins vegar sá
að gjaldeyrisflæðið er nokkuð sterkt
og stöðugt. Þeir aðilar sem eru hvað
stórtækastir í gjaldeyrisviðskiptum
haga líka sínum viðskiptum eftir því
hvar krónan er stödd miðað við ein-
hvers konar þyngdarpunkt á þessu
ári sem virðist liggja í kringum 140
krónur á hverja evru,“ segir Jón
Bjarki um markaðinn. Menn telji
jafnvægi ríkja í genginu.
Gengisáhrifin voru komin fram
Tilefnið er umfjöllun í Morgun-
blaðinu í gær um áhrifin af falli
WOW air í samanburði við spá
Reykjavík Economics. Fram kom að
spá RE um að krónan myndi gefa
eftir við fall WOW hefði ekki ræst.
Af þessu tilefni hafði sérfræð-
ingur í gjaldeyrismálum samband
við Morgunblaðið. Taldi hann mark-
aðinn þegar hafa verið búinn að
verðleggja óvissuna í ferðaþjónust-
unni inn í gengi krónu þegar flug-
félagið hætti starfsemi.
Jón Bjarki tekur aðspurður undir
þetta. „Væntingar um áhrif á gjald-
eyrisflæðið urðu ekki mikið svartari
við fall WOW air eða vandræði Ice-
landair með Max-þoturnar,“ segir
Jón Bjarki um þessa áhrifaþætti.
Þá hafi það haft töluverð áhrif á
gengi krónu í ár að innflutningur
dróst saman við áfallið í ferðaþjón-
ustunni. Jafnframt hafi innlendir
neytendur í auknum mæli ferðast
innanlands í stað þess að fara í utan-
landsferð. Það spari líka gjaldeyri.
Til upprifjunar fór evran í um 110
kr. í júní 2017 en svo lækkaði gengið.
Evran kostaði um 123 kr. fyrir
tveimur árum en fór upp fyrir 130
kr. í september í fyrra. Nú kostar
hún 134 kr. baldura@mbl.is
Horfur
á stöðugri
krónu
Hefur hrist af sér
áföll í hagkerfinu
Jón Bjarki
Bentsson
Ten Points Pandora
26.990 kr.
Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is