Morgunblaðið - 06.12.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar verkefnisins 201 Smári
hafa tekið tilboðum í 84% íbúða sem
þeir hafa sett á markað suður af
Smáralind. Alls eru 112 íbúðir af 133
seldar. Íbúðirnar eru í þremur fjöl-
býlishúsum og koma tvö þeirra til af-
hendingar í nóvember og desember.
Svæðið er skilgreint sem
miðbæjarsvæði í Kópavogi en þar
verða 675 íbúðir þegar hverfið er
fullbyggt eftir þrjú til fjögur ár. Þar
verða um 84 þúsund fermetrar af
íbúðum og at-
vinnuhúsnæði.
Fyrsta húsið
sem kom í sölu
var Sunnusmári
24-28 en salan
hófst í september
2018. Næst komu
Sunnusmári 16-
18 og 20-22 en
húsin fóru í sölu í
apríl sl. Á næstu
dögum fara þrjú fjölbýlishús í sölu,
Sunnusmári 19-21, Sunnusmári 23
og 25. Eitt fjölbýlishúsið sem nú er
að fara í sölu verður ætlað íbúum 60
ára og eldri. Samkvæmt sölusíðu
verkefnisins, 201smari.is, koma síð-
ustu húsin í hverfinu í sölu árið 2023.
Hátt hlutfall fyrstu kaupenda
Fasteignaþróunarfélagið Klasi
stýrir verkefninu fyrir hönd verk-
efnisins 201 Smári.
Ingvi Jónasson, framkvæmda-
stjóri Klasa, segir greiningu félags-
ins benda til að um helmingur þeirra
sem hafi lagt fram tilboð séu 20-40
ára. Þá séu 30% á þrítugsaldri sem
bendi til að fyrstu kaupendur séu
fjölmennir í kaupendahópnum.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar
með tækjum og gólfefnum, tilbúnar
til notkunar. Húsin eru klædd að ut-
an, m.a. með álklæðningu og trefja-
plötum, og með bílakjallara. Að
meðaltali eru um 0,7-0,9 stæði á
hverja íbúð í kjallara. Við það bætast
stæði ofanjarðar og fjöldi bílastæða
er við Smáralind og í Smárunum.
Spurður hvað eftirspurnin eftir
þessum íbúðum segi um fast-
eignamarkaðinn segir Ingvi áhug-
ann benda til að staðestning, stærðir
og verðlagning íbúðanna virðist
henta markaðnum.
Meðalverðið á fyrsta húsinu sem
fór í sölu hafi verið undir 550 þúsund
á fermetra. Samkvæmt upplýs-
ingum frá fasteignasala er það um
100 þúsund kr. lægra en til dæmis í
nýja hverfinu í Efstaleiti og um 150
þúsund kr. lægra en algengt er í ný-
byggingum í miðborg Reykjavíkur.
Verð íbúða er mismunandi eftir
stærð en hlutfall minni íbúða er hátt
en þær kosta færri milljónir.
Byggt í grónu hverfi
„Svo hjálpar staðsetningin til. Það
er byggt í grónu hverfi með alla
þjónustu við höndina. Allt hjálpast
þetta að; sanngjörn verðlagning,
hagkvæmar íbúðir og góð staðsetn-
ing. Að okkar mati eru þetta hag-
kvæmari íbúðir en gengur og gerist
á markaðnum. Við höfum tekið eftir
því að ódýrustu íbúðirnar seljast
hraðast,“ segir Ingvi um söluna.
„Hugmyndin er að nýta rými
íbúða eins vel og hægt er. Gjarnan
eru herbergin minni en opnu og
sameiginlegu rýmin stærri.“
Hann segir aðspurður að almennt
sé markmiðið að selja meginþorra
nýrra íbúða í fjölbýlishúsum á þrem-
ur til sex mánuðum. Verkefnið sé á
áætlun. „Við erum að undirbúa
næsta stóra áfanga í 201 Smára en í
honum verða yfir 270 íbúðir. Jarð-
vinnan er hafin en við vonumst til að
geta hafið framkvæmdir eftir ára-
mót,“ segir Ingvi um næstu skref.
Fram kom í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku að 730 íbúðir hafa selst á
þéttingarreitum í miðborg Reykja-
víkur, á Hlíðarenda og í Efstaleiti.
Allt eru þetta skilgreind miðborg-
arsvæði. Með Smárabyggð hafa því
selst 840 íbúðir á þessum miðborg-
arreitum síðan haustið 2017. Nefna
mætti fleiri svæði, t.d. nýja Linda-
hverfið í Kópavogi.
Hafa selt um 84% íbúðanna
Þegar hafa selst 112 af 133 af nýjum íbúðum í fyrstu fjölbýlishúsunum í Smárabyggð í Kópavogi
Ný hús að koma í sölu Samhliða hafa selst um 730 íbúðir á miðborgarreitum í Reykjavík
Ljósmynd/Klasi
Byggingarsvæðið úr lofti Fjölbýlishúsið fremst á myndinni, Sunnusmári 24-28, fór í sölu haustið 2018.
Ingvi
Jónasson
Nýjar íbúðir
við Smáralind
20-
29
ára
30-
39
ára
40-
49
ára
50-
59
ára
60-
69
ára
70-
99
ára
Sala íbúða í
Sunnusmára 16-28
Fjöldi íbúða í sölu 133
Fjöldi seldra íbúða 112
Fjöldi óseldra íbúða 21
30%
18%
14% 14% 16%
9%
Aldur tilboðsgjafa
Smárahvammsvegur
Smáralind
24-28
23
19-21
25
16-18
20-22
Í SÖLU 2022
Í SÖLU 2023
Í SÖLU 2020
Í SÖLU 2021
Reykjanesbraut
675 íbúðir verða alls í hverfi nu þegar það er fullbyggt
Heimild: 201.is
Mynd: Arkís arkitektar
Ríkisendurskoðun þarf á auknum
fjármunum að halda vegna meira
álags sem verið hefur á störfum
embættisins
vegna skýrslna
sem Ríkisendur-
skoðun hefur
þurft að ráðast í
að beiðni Alþingis
og ráðuneyta.
Þetta er mat rík-
isendurskoðanda
að því er fram
kemur í beiðni til
fjárlaganefndar
Alþingis um
aukafjárveitingu til handa embætt-
inu vegna yfirstandandi árs sem
barst nefndinni í gegnum forsætis-
nefnd Alþingis.
Fjárlaganefnd Alþingis hefur ósk-
að eftir nánari rökstuðningi á beiðni
forsætisnefndar um aukafjárveit-
ingu Ríkisendurskoðun til handa að
því er fram kemur á minnisblaði.
Birt er yfirlit yfir tíu úttektir sem
stofnunin hefur verið beðin um að
vinna á þessu ári og nokkrar úttektir
sem unnið var að eða byrjað var á á
árunum 2017 og 2018.
10 þúsund vinnutímar í ár
Á yfirstandandi ári hafa farið um
10.333 tímar í vinnu við úttektir og
heildarlaun vegna þeirra eru rúmar
72 milljónir kr. Á minnisblaðinu kem-
ur fram að heildartímafjöldi við út-
tektirnar í fyrra var 3.647 og 2.357 á
árinu 2017. Samanlagður kostnaður á
þessum þremur árum er rúmlega 111
milljónir króna samkvæmt yfirlitinu.
Fram kemur að kostnaðurinn felist
í launum starfsmanna að viðbættum
launatengdum gjöldum. Við umfangs-
stærri úttektir er aðkoma stjórnenda
meiri og þá er kostnaður á hverja klst.
sagður vera hærri.
Þarf meira
fé vegna álags
Ríkisendurskoð-
un sendir Alþingi
erindi um annríki
Morgunblaðið/Hari
Eftirlit Skýrsla Ríkisendurskoðunar
um Íslandspóst kostaði 11 m.kr.
Skúli Eggert
Þórðarson
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið: