Morgunblaðið - 06.12.2019, Page 6
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samkvæmt nýrri hagspá Arion banka
verður 0,3% hagvöxtur í ár.
Bankinn spáði því í mars að lands-
framleiðslan myndi dragast saman um
1,9% í ár. Bankinn lækkaði töluna í
-0,9% í ágúst og í -0,6% í september.
Samkvæmt nýju spánni verður hins
vegar hagvöxtur í ár.
Fjallað er um ferðaþjónustuna.
Bankinn áætlar að erlendum gestum
um Keflavíkurflugvöll muni fækka um
15% í ár en fjölga um 1%, 5% og 4%
árin 2020, ’21 og ’22.
Erna Björg Sverrisdóttir, aðal-
hagfræðingur Arion banka, segir að-
spurð nokkra þætti skýra að bankinn
spái nú hagvexti í ár.
Þróunin verið hagfelldari
Í fyrsta lagi hafi staða efnahags-
mála þróast með hagfelldari hætti
fyrstu 9 mánuði ársins en bankinn
vænti. Í öðru lagi hafi innflutningur
dregist miklu meira saman en bankinn
gerði ráð fyrir. Þannig hafi innflutn-
ingur dregist saman um tæplega 100
ma. króna fyrstu 9 mánuði ársins.
„Þriðja ástæðan er að útflutnings-
vegunum hefur vegnað betur en við
gerðum ráð fyrir. Til dæmis hefur út-
flutningsverðmæti sjávarafurða aukist
um 3% á föstu
gengi fyrstu 10
mánuði árins. Svo
er það ferðaþjón-
ustan en dval-
artími ferðamanna
hefur lengst og
þeir eyða meira á
hvern mann en
áður. Það má því
búast við að tekju-
samdráttur grein-
arinnar verði nokkru minni en við töld-
um í upphafi árs,“ segir Erna Björg.
Breytir ekki stóru myndinni
Hún segir aðspurð að þrátt fyrir
aukin umsvif í fiskeldi sé greinin ekki
orðin nógu stór til að vöxtur þar breyti
stóru myndinni.
Þá segir hún aðspurð að ef flug-
félagið Play verður að veruleika geti
rekstur þess skilað 120 þúsund fleiri
ferðamönnum á næsta ári, eða sem
svarar 25 milljörðum króna í
gjaldeyristekjur. Það breyti heldur
ekki stóru myndinni en geti vegið
þyngra þegar fram í sækir og umsvif
félagsins aukast. Hins vegar sé mikil
óvissa um áformin sem og um mögu-
lega endurreisn WOW air. Loks hafi
atvinnuvegafjárfesting dregist saman
sex ársfjórðunga í röð sem sé mikið
áhyggjuefni.
Spáir nú 0,3%
hagvexti í ár
Arion banki kynnir nýja hagspá
Spá hægum vexti ferðaþjónustu
Erna Björg
Sverrisdóttir
Hagspá Arion
banka til 2022
Nokkrar hagstærðir
5%
4%
3%
2%
1%
0%
Breyting frá fyrra ári (%) 2018 2019 2020 2021 2022
Einkaneysla 4,7% 1,7% 1,6% 3,0% 3,3%
Fjármunamyndun 4,0% -8,2% -0,3% 1,5% 1,1%
Útfl utningur vöru og þjónustu 1,7% -6,2% -0,9% 3,3% 2,5%
Verg landsframleiðsla 4,8% 0,3% 0,6% 2,0% 2,7%
Hagvöxtur 2018-2022
4,8%
2,7%
0,3%
0,6%
2,0%
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Hæstiréttur hefur hafnað ósk
Grímsnes- og Grafningshrepps um
leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar,
sem komst að þeirri niðurstöðu að
hreppnum væri ekki heimilt að
leggja fasteignaskatt á sumarbú-
staði sem eru í útleigu til skamms
tíma, eins og um atvinnuhúsnæði
væri að ræða.
Um var að ræða dóm í máli eig-
enda eins sumarhúss, sem skráðu
það hjá sýslumanni til útleigu í
heimagistingu í allt að 90 daga á ári.
Grímsnes- og Grafningshreppur
taldi slík mannvirki ferðaþjónustu
og lagði á þau hærri fasteignaskatt í
þrjá mánuði á árinu 2017. Fólkið
kærði til yfirfasteignamatsnefndar
sem taldi að húsið ætti að skilgreina
sem sumarhús allt árið þar sem það
fullnægði skilyrðum laga um heima-
gistingu. Sveitarfélagið vísaði úr-
skurðinum til héraðsdóms og áfrýj-
aði svo til Landsréttar. Niðurstaðan
var sú sama og hjá yfirfasteigna-
matsnefnd.
Hreppurinn lýsti þeirri skoðun í
umsókn til Hæstaréttar að úrslit
málsins hefðu verulegt almennt gildi
þar sem í málinu reyni á hvernig
skuli haga álagningu fasteigna-
skatts. Auk þess væri dómur Lands-
réttar bersýnilega rangur. Á það
féllst Hæstiréttur ekki.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sumarhús Mikill fjöldi sumarhúsa er í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Dómur um sumar-
bústaði stendur
Skrifað var í gærmorgun undir
samning um að Heilsugæsla höfuð-
borgarsvæðisins sinni geðheilbrigð-
isþjónustu við fanga í öllum fang-
elsum landsins.
Jafnframt verður stofnað sérhæft,
þverfaglegt geðheilsuteymi fanga í
þessu skyni sem mun starfa með og
styðja við starfsemi heilsugæslunn-
ar í fangelsum. Teymið verður
hreyfanlegt og mun einnig nýta
tæknilausnir á sviði fjarheilbrigðis-
þjónustu til að sinna þjónustunni.
Fulltrúar Sjúkratrygginga Íslands
og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins skrifuðu undir samninginn í
fangelsinu á Hólmsheiði.
Haft er eftir Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra í tilkynn-
ingu að með auknum fjármunum og
því skipulagi sem hér hafi verið
ákveðið verði geðheilbrigðis-
þjónusta í íslenskum fangelsum
færð til þess sem best þekkist. Þessi
niðurstaða sé afrakstur samvinnu
heilbrigðis- og dómsmálaráðuneytis
undanfarna mánuði.
Fjárframlög aukin
Fram kemur í tilkynningunni að
framlög til heilbrigðisþjónustu við
fanga hafi verið aukin umtalsvert á
þessu ári. Alls hafi 55 milljónir
króna sérstaklega verið ætlaðar í
geðheilbrigðisþjónustu og nú hafi
ráðherra ákveðið að auka fjárveit-
inguna í 70 milljónir á næsta ári.
Nefnd Evrópuráðsins um varnir
gegn pyntingum og ómannlegri eða
vanvirðandi meðferð eða refsingu
gerði úttekt á fangelsum hér á landi
í vor. Bráðabirgðaniðurstöður
nefndarinnar bárust ráðuneytum
dóms- og heilbrigðismála í sumar og
komu þar m.a. fram athugasemdir
varðandi fyrirkomulag geðheilbrigð-
isþjónustu við fanga.
Meðal þess sem nefndin lagði
áherslu á var að geðheilbrigðisþjón-
usta innan fangelsa ætti að vera
sambærileg þeirri þjónustu sem
aðrir landsmenn njóta eftir því sem
mögulegt er, að teknu tilliti til sér-
þarfa fanga.
Átak í geðheilbrigðis-
þjónustu við fanga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fangamál Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Páll Winkel fangelsismálastjóri kynna nýjung fyrir fanga.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sinnir þjónustunni í fangelsum
Jólahlaðborð
Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga,
fjölskyldu og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með
úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu.