Morgunblaðið - 06.12.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Gulvestingar hafa mótmælt tillögum Macrons forseta
Frakklands varðandi fyrir-
komulag eftirlauna.
Forsetinn segirþetta umbóta-
tillögur en mót-
mælendur að „um-
bæturnar“ séu hinu
opinbera þókn-
anlegar en almenn-
ingi til bölvunar.
Í viðtölum við helsta forsprakkagulvestinga í vikunni kom
fram að þeir muni ekki geta
haldið sinni baráttu áfram mikið
lengur, enda mjög verið að þeim
þrengt meðal annars með fang-
elsunum og saksókn gegn fjölda
mótmælenda.
En þótt þau uppgjafarorðhljómi hugsanlega vel í eyr-
um forsetans má vera að þau séu
skammgóður vermir. Því nú virð-
ist sem hin skipulagða verkalýðs-
hreyfing hafi tekið við keflinu.
Umfangsmiklar verkfallsaðgerðir
lömuðu í gær stóran hluta Frakk-
lands og eiga aðgerðirnar að
standa til mánudags.
Flestum skólum hefur veriðlokað, auk þess sem sam-
göngukerfi landsins hefur lam-
ast.
Stór hluti hraðlestakerfisins
liggur niðri og um 30% fyrirhug-
aðra ferða Air France í innan-
landsflugi hafa lagst af. Þúsundir
manna mótmæltu í hinum ýmsu
borgum Frakklands í upphafi
andófsins og boðað hefur verið til
tvennra stórra mótmæla í París.
Verkalýðsleiðtogar heita því aðhalda mótmælunum áfram
nema Macron forseti hætti við
áform sín um hækkun eftirlauna-
aldurs og skerðingu launa ella.
Emmanuel
Macron
Umbætur eða árás
STAKSTEINAR
Niðurstöður árlegrar könnunar á
notkun ljósabekkja sýndu að um
11% fullorðinna höfðu notað ljósa-
bekki einu sinni eða oftar á síðustu
12 mánuðum. Er þetta nánast sama
hlutfall og árið áður.
Könnunin hefur verið gerð árlega
frá árinu 2004 fyrir hönd samstarfs-
hóps Geislavarna, Embættis land-
læknis, húðlækna og Krabbameins-
félagsins. Á þessu tímabili hefur
dregið mjög verulega úr notkun
ljósabekkja, að því er kemur fram á
heimasíðu Geislavarna. Árið 2004
höfðu um 30% fullorðinna notað
ljósabekki í einhverjum mæli síðustu
12 mánuði, en frá árinu 2013 hefur
þessi tala verið um 10%.
Geislavarnir segja að notkun
ljósabekkja fylgi aukin hætta á húð-
krabbameini og ráða norrænu
geislavarnastofnanirnar fólki frá því
að nota ljósabekki í nýlegri yfirlýs-
ingu. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) sem
kom út 2017 segir að notkun ljósa-
bekkja til sólbaða í fegrunarskyni
undanfarna áratugi hafi valdið auk-
inni tíðni húðkrabbameina. Einnig
hafi aldur þeirra sem fá slík krabba-
mein í fyrsta sinn lækkað.
18 ára aldurstakmark á notkun
ljósabekkja tók gildi á Íslandi í jan-
úar 2011.
Ljósabekkjanotkun óbreytt milli ára
11% fullorðinna Íslendinga notuðu
ljósabekki á síðustu 12 mánuðum
Ljósabekkur Notkun ljósabekkja
hér á landi er nær óbreytt milli ára.
Akraneskaupstaður hefur ákveðið
að áfrýja til Landsréttar dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur þar sem nið-
urstaðan var að staðið hafi verið með
saknæmum og
ólögmætum hætti
að ráðningu for-
stöðumanns
íþróttamann-
virkja bæjarins á
síðasta ári og öðr-
um umsækjanda
dæmdar miska-
bætur.
Málið snýst um
vægi einstakra
matsþátta við ráðningarferlið, þegar
endanlega var valið úr hópi fjögurra
umsækjenda sem skoruðu hæst.
Akranesbær rökstuddi ráðningu
þess umsækjanda sem ráðinn var
með vísan til frammistöðu hans í við-
tali og til verkefnis sem hann gerði.
Þessir þættir vógu í vinnu bæjarins
70% á móti 30% þeirra þátta sem til-
teknir voru í auglýsingu. Dómurinn
leit svo á að bærinn hefði brotið gegn
réttmætisreglu stjórnsýsluréttar í
málsmeðferð sinni með því að hafa
vægi menntunar, þekkingar, reynslu
og leiðtogahæfni svo lítið sem raun
ber vitni og meta viðtöl og verkefni
svo hátt sem raun varð á.
„Skipting þessi er ómálefnaleg og
gaf auglýsingin ekki til kynna að
vægi annarra þátta en hinna hlut-
lægu væri svo hátt sem raun var á,“
segir í niðurstöðum dómsins. Bær-
inn hafi ekki sýnt fram á að lögmæt
sjónarmið hafi ráðið við ráðninguna.
Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að bærinn hafi staðið með
saknæmum og ólögmætum hætti að
ráðningarferlinu.
Málefnalega staðið að ráðningu
Sá sem höfðaði málið skoraði hæst
í þeim þáttum sem metnir voru út
frá auglýsingu, svo sem menntun og
reynslu. Þó ekki sé þar með sagt að
hann hefði fengið starfið, ef staðið
hefði verið rétt að hæfnismati, voru
honum dæmdar 700 þúsund kr. í
miskabætur og 1.500 þúsund í máls-
kostnað.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjar-
stjóri á Akranesi, telur að mál-
efnalega hafi verið staðið að ráðning-
unni og segir að ákveðið hafi verið að
láta reyna á málið fyrir æðra dóm-
stigi. Nefnir hann sérstaklega að
lögmenn bæjarins telji að dómurinn
sé ekki í takt við álit um ráðningar
sem umboðsmaður Alþingis sendi
sveitarfélögum landsins og fyrri
dómaframkvæmd. helgi@mbl.is
Ólöglega staðið
að ráðningu manns
Akranesbær áfrýjar til Landsréttar
Sævar Freyr
Þráinsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.