Morgunblaðið - 06.12.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Viðhorfskannanir sýna að yfir
90% aðspurðra vilja að á Íslandi sé
í boði fjölbreytt meðferðarstarf,“
segir Valdimar Svavarsson, nýr
framkvæmdastjóri Samhjálpar.
„Mikilvægt er að hluti þessarar
starfsemi sé í höndum einkaaðila
og frjálsra félagasamtaka enda
hafa þau svigrúm til að veita ein-
staklingsmiðaða þjónustu og
bregðast skjótt við þegar nýjar og
óvæntar aðstæður koma upp. Það
er með öðrum orðum mikilvægt að
valkostir í velferðarþjónustu á Ís-
landi séu margir.“
30 meðferðarpláss
í Hlaðgerðarkoti
Valdimar kom til starfa hjá Sam-
hjálp í byrjun nóvember en Vörður
Leví Traustason hafði áður verið
framkvæmdastjóri um langt árabil.
Í Mosfellsdalnum rekur Samhjálp
Hlaðgerðarkot sem er elsta starf-
andi meðferðarheimili landsins.
Húsakostur þar hefur nýlega verið
endurnýjaður að hluta. Þar er
pláss fyrir 30 manns, sem koma í
áfengis- og vímuefnameðferð. Með-
ferðin hefur gefið góða raun og
jafnan er talsverður fjöldi fólks á
biðlista sem vill sækja þessa þjón-
ustu. Þá starfrækir Samhjálp fjög-
ur áfangaheimili á höfuðborgar-
svæðinu, það eru heimili fyrir fólk
sem hefur lokið meðferð og er að
fikra sig aftur út í lífið. Samhjálp
rekur einnig nytjamarkað við Ár-
múla í Reykjavík og kaffistofu við
Borgartún, en þangað sækir fólk í
neyð gjarnan í hádeginu. Að stað-
aldri nýta 60-80 manns langtíma-
úrræði Samhjálpar auk þess sem á
kaffistofuna koma um 180 manns á
degi hverjum.
Félagasamtökin Samhjálp eru 46
ára en þau urðu til vegna þarfar
fólks fyrir aðstoð og stuðning og
eru sprottin út frá starfi hvíta-
sunnukirkjunnar. „Kaffistofa Sam-
hjálpar er skýrt dæmi um mik-
ilvægi starfs okkar. Þangað fáum
við fjölda fólks bæði í morgunmat
og í hádeginu á hverjum degi og
erfitt að svara því hvert þetta fólk
færi ef Samhjálpar nyti ekki við,“
segir Valdimar.
Fordómaleysi og kærleikur
„Það er einstakt að finna hlýhug
fólks og eigenda fyrirtækja sem
hafa reglulega samband og bjóða
fram mat, fatnað, vinnuframlag eða
fjárstuðning,“ segir Valdimar enn-
fremur. „Með aðstoð utan úr sam-
félaginu er mögulegt að styðja not-
endur kaffistofunnar sem allir eiga
það sameiginlegt að vera fátækir
og margir hverjir eiga hvergi höfði
sínu að að halla. Á kaffistofunni er
ekki bara matur heldur er þetta í
mörgum tilvikum eini staðurinn
sem skjólstæðingar okkar upplifa
samfélag þar sem ríkir fordóma-
leysi, kærleikur og vinátta.“
Þverfagleg nálgun í þjónustu
Fram undan er stefnumótunar-
vinna hjá Samhjálp. Þar verður
skoðað með hvaða hætti má gera
enn betur til þess að mæta fólkinu
sem nýtir þjónustu Samhjálpar.
„Sú vinna gengur út á þverfag-
lega nálgun og að samfella sé í
þjónustu, alveg frá því að fólk
kemst fyrst í snertingu við heilsu-
gæslu af einhverju tagi þar til það
er komið aftur út í samfélagið sem
nýtir þegnar,“ segir Valdimar sem
er frá Selfossi og býr þar ásamt
konu og börnum. Hann hefur starf-
að víða á sínum starfsferli en síð-
ustu 10 árin hefur hann lagt
áherslu á verkefni sem snúa að fé-
lagslegum úrbótum fólks. Hann
lærði upprunalega rafvirkjun en er
í dag með BA-menntun í félagsráð-
gjöf frá Háskóla Íslands, meistara-
próf í stjórnun og stefnumótun frá
sama skóla, ICF-vottað mark-
þjálfanám og sérmenntun í áfalla-
fræðum frá Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/Eggert
Stuðningur Valdimar Svavarsson segir einstakt að finna hlýhug fólks. Hann er hér við kaffistofuna í Borgartúni
Margir valkostir séu
í velferðarþjónustu
Valdimar Svavarsson er nýr framkvæmdastjóri Samhjálpar
Eignir íslenskra lífeyrissjóða námu
4.857 milljörðum króna í október-
mánuði og hækkuðu um 46 millj-
arða króna milli mánaða. Þetta
kemur fram í nýbirtum tölum frá
Seðlabanka Íslands.
Samtryggingardeildir lífeyris-
sjóðanna áttu 4.357 milljarða og
séreignardeildirnar 499 milljarða
króna. Innlendar eignir sjóðanna
námu 3.427 milljörðum króna í lok
október og erlendar eignir námu
1.430 milljörðum króna. Á þriðju-
daginn greindi Morgunblaðið frá
því að lífeyrissparnaður Íslendinga
hefði í lok síðasta ársfjórðungs
numið ríflega 5.000 milljörðum
króna. Það sem skýrir mismuninn
milli þeirrar upphæðar og heildar-
eigna lífeyrissjóðanna er að í síðar-
nefndu tölunni er ekki tekið tillit til
lífeyrissparnaðar sem aðrir fjár-
vörsluaðilar varðveita fyrir al-
menning. Lífeyrissjóðirnir eru hins
vegar langstærsti vörsluaðili líf-
eyris hér á landi. Eignir þeirra hafa
aldrei verið meiri en um þessar
mundir.
Eignir sjóðanna jukust um 46 milljarða
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
GLÆSILEGIR „PLUG IN
HYBRID“ TIL SÖLU
AUDI A3 E-TRON, VW GOLF GTE,
VW PASSAT GTE OG M. BENZ E350E
VW PASSAT GTE
PREMIUM
Nýskráður 02/2018, ekinn aðeins 20 Þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur, leðursportsæti
(nudd í bílsstjórasæti), glerþak, dráttarkrókur,
18“ álfelgur ogmikið fleira
TILBOÐ 4.950.000 kr. Raðnúmer 259884
BRUNCH
Allar helgar kl. 11:00-16:00
Amerískar
pönnukökur
Beikon, egg og
ristað brauð
Franskt eggjabrauð
Hafragrautur
Skyr
Omeletta
Big Brunch
Eggs Benedict
Gerðu þér
dagamun og
komdu á
Sólon
Borðapantanir í síma 562 3232