Morgunblaðið - 06.12.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Það var mikið um dýrðir í höfuð-
stöðvum Árvakurs þegar keppnin
Jólakakan 2019 fór fram. Matarvefur
mbl.is stóð fyrir keppninni en áhuga-
bakarar sendu inn kökur og kepptu
um glæsilega vinninga. Að sögn dóm-
ara voru gæði kakanna mikil sem og
fjölbreytileikinn og því ljóst að það
var mikið verk fram undan við að
ákvarða sigurvegara. Komu kök-
urnar víða að og sú sem lengst ferð-
aðist kom með flugi frá Egilsstöðum
og í leigubíl frá Reykjavíkurflugvelli.
Dómnefndin var skipuð þungavigt-
arfólki í faginu en formaður dóm-
nefndar var Hafliði Ragnarsson
súkkulaðimeistari en honum til að-
stoðar voru matreiðslumennirnir
Óskar Finnsson og Völundur Snær
Völundarson, Ásdís Ásgeirsdóttir
blaðamaður á Sunnudagsmogganum
og Kristín Sif Björgvinsdóttir, út-
varpskona á K-100. Að sögn Þóru
Kolbrár Sigurðardóttur, umsjónar-
konu matarvefjarins fór þátttakan
fram úr björtustu vonum. „Við rennd-
um blint í sjóinn með þetta en allur
þessi fjöldi kom okkur í opna skjöldu
og hversu fjölbreyttar kökurnar
voru. Dómnefndin tók einmitt tillit til
þess og ég hlakka mikið til að til-
kynna sigurvegarann á morgun á
matarvefnum,“ sagði Þóra.
Þátttaka framar
björtustu vonum
Glæsilegar kökur Gríðarlegur
fjöldi kaka tók þátt í keppninni.
Prúðbúnir í smakkinu Hafliði Ragnarsson, Óskar Finnsson og Völundur
Snær Völundarson áttu ærið verkefni fyrir höndum eins og sjá má.
Áhugabakarar sýndu góð tilþrif
Forsætisráðuneytið leitaði ekki til-
boða í þjónustu sem það keypti af At-
tentus - mannauði og ráðgjöf á tíma-
bilinu frá október 2018 til ágúst 2019,
alls að fjárhæð 2,3 milljónir króna.
Þetta kom fram í svari frá forsætis-
ráðuneytinu. Tilefnið er umfjöllun
blaðsins um tugmilljóna viðskipti rík-
isstofnana við Attentus.
„Sú þjónusta sem ráðuneytið hefur
keypt af umræddu fyrirtæki er á sviði
mannauðsráðgjafar og stjórnenda-
fræðslu. Ekki hefur tíðkast að leita
tilboða þegar slík þjónusta er keypt
enda er þá jafnan verið að leita eftir
þjónustu tiltekinna ráðgjafa vegna
þekkingar þeirra og reynslu og/eða
þeirrar aðferðafræði sem þeir beita
og kenna. Þá eru upphæðir slíkra
þjónustukaupa jafnan langt undir við-
miðunarfjárhæðum laga um opinber
innkaup,“ sagði þar m.a.
Samningar ríkisstofnana um kaup
á þjónustu frá fyrirtækinu Attentus
hafa verið utan rammasamninga við
Ríkiskaup. Halldór Ó. Sigurðsson,
forstjóri Ríkiskaupa, sagði í samtali
við blaðið nýverið að þegar ríkisstofn-
anir keyptu þjónustu utan samnings
væri þeim skylt að leita tilboða frá
minnst þremur aðilum, svo að um
eðlilega samkeppni væri að ræða í
samræmi við lög um opinber innkaup.
Forsætisráðuneytið leitaði
ekki tilboða vegna ráðgjafar
Ekki hefur tíðkast að leita tilboða í mannauðsráðgjöf
Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa
markaða, afhenti Guðrúnu Ragnars,
barnahjúkrunarfræðingi og deild-
arstjóra Rjóðursins, í vikunni
11.071.795 krónur, afrakstur Takk-
dagsins svonefnda, sem haldinn var í
fimmta sinn í ár.
Allar þóknanatekjur vegna við-
skipta dagsins renna þá til góðs mál-
efnis. Auk Fossa markaða tóku
Kauphöllin, Nasdaq Iceland og upp-
gjörsfyrirtækið T plús þátt í deg-
inum með því að fella niður öll gjöld
af viðskiptum Fossa, sem í staðinn
runnu til söfnunarinnar. Auglýs-
ingastofan Tvist gaf vinnu og skart-
gripahönnuðurinn Hildur Hafstein
hannaði armbönd til styrktar átak-
inu.
Í tilkynningu er haft eftir Haraldi
að dagurinn hafi heppnast ein-
staklega vel. „Þegar við kynntum
okkur starfsemi Rjóðursins var ljóst
að gríðarlega öflugt starf er unnið
þar sem snýr að þörfum barna og
fjölskyldna þeirra,“ segir hann.
Rjóður er hjúkrunar-, hvíldar- og
endurhæfingarheimili á vegum
Landspítala fyrir langveik og lang-
veik fötluð börn.
Afhenti styrk Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, og Guðrún
Ragnars, barnahjúkrunarfræðingur og deildarstjóri Rjóðursins.
Styrktu Rjóðrið
Rúmar 11 milljónir króna söfnuðust
á Takk-degi Fossa markaða
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
GOTT
VERÐ
ALLA DAGA
Úlpa
kr. 17.990
Pels
kr. 16.990
Gerið verðsamanburð