Morgunblaðið - 06.12.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
verði ríkið með einokunarrétt í þessu
tilliti en að til skoðunar sé að hleypa
einkaaðilum einnig að borðinu þannig
að þeir geti keypt rafmagn af vind-
orkugarðinum og selt áfram til not-
enda.
P/f Magn stefnir að því að reisa
vindorkugarðinn á svæði sem nefnist
Flatnahagi og er skammt suður af
Þórshöfn, höfuðstað eyjanna. Hann
mun framleiða 64 GWH á ári. Árni
Pétur segir að þetta verkefni sé til
marks um hvernig Skeljungur og fé-
lög honum tengd búi sig undir þau
orkuskipti sem eru við sjóndeildar-
hringinn, bæði hér heima og erlendis.
Orkuskiptin fram undan
„Jarðefnaeldsneytið mun hopa fyrir
öðrum og hreinni orkugjöfum. Við
hyggjumst ekki aðeins taka þátt í
þessari þróun heldur viljum við vera
leiðandi. Þess vegna réðum við fyrir
þremur árum til okkar sérfræðing í
vindorkumálum sem hefur leitt þessa
vinnu fyrir okkar hönd, bæði þegar
kom að útboðinu hjá stjórnvöldum og
einnig annarri undirbúningsvinnu.
Með því höfum við sótt þekkingu inn í
fyrirtækið og byggt áfram upp á
henni.“
Hann segir að það sé þó ekki eina
skrefið sem tekið hafi verið. Þannig
hafi p/f Magn keypt 70% hlut í þjón-
ustufyrirtækinu Demich í fyrra en það
sérhæfir sig í umhverfisvænum hús-
hitunarlausnum í Færeyjum. Það
fyrirtæki hafi m.a. verið leiðandi við
uppbyggingu hitakerfisins í nýju
sjúkrahúsi sem nú er verið að reisa í
Færeyjum.
„Við búum þannig yfir þekkingu
sem nýtist okkur. Núverandi mark-
aðshlutdeild okkar skiptir þar einnig
sköpum. Olíusalan til heimilanna er að
stærstum hluta áskriftarsala og sam-
band okkar við viðskiptavinina er
sterkt. Þess vegna erum við í lykil-
stöðu til að bjóða upp á heildstæða
lausn óháð því hvaða orkugjafa fólk
kýs að nýta sér,“ segir Árni Pétur.
Stefnt að uppsetningu 2021
Spurður út í það hvenær vindorku-
garðurinn verði tekinn í notkun segir
Árni Pétur að það verði sennilega árið
2021. Ekki muni takast úr þessu að
koma vindmyllunum upp næsta sum-
ar.
„Útboðið tafðist og það hefur áhrif á
áætlanir okkar. Þá þurfa að vera kjör-
aðstæður þegar vindmyllurnar eru
settar upp. Í hæstu stöðu ná spaðarnir
í 200 metra hæð þannig að það er ekki
hægt að setja þetta upp á hvaða tíma
sem er. Nú er þetta orðið of knappt
fyrir framleiðanda búnaðarins.“
Lífeyrissjóðir með aðkomu
P/f Magn stendur þó ekki eitt að
þessu verkefni og segir Árni Pétur að
það hafi verið mikilvægt að kalla fleiri
að borðinu.
„Við kynntum þetta fyrir lífeyris-
sjóðum í Færeyjum og fengum mjög
jákvæð viðbrögð. Niðurstaðan varð sú
að tveir sjóðir ákváðu að koma að
verkefninu með okkur, Liv 1 og Liv 2.
Þeir eiga 60% í verkefninu og okkar
hlutur er 40%.“
Möguleg tækifæri á Íslandi
Sem stendur hefur Skeljungur ekki
uppi áform um að blanda sér í sam-
keppni um raforkuframleiðslu á Ís-
landi. Árni Pétur segir að þekkingin
sé hins vegar til staðar og því haldi
fyrirtækið öllum möguleikum opnum.
„Við sjáum talsverðan samgang
milli p/f Magns og Skeljungs, m.a. í
þjónustunni við sjávarútveginn. Það
er ekki útilokað að hið sama geti gerst
þegar kemur að raforkuframleiðsl-
unni.“
Leiða orkuskipti í Færeyjum
P/f Magn, dótturfélag Skeljungs, byggir vindorkugarð í Færeyjum 18.000 heimili í Færeyjum
þurfa að skipta út olíukyndingu Annað dótturfélag Skeljungs með aðkomu að byggingu sjúkrahúss
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Dótturfélag Skeljungs í Færeyjum,
p/f Magn, haslar sér nú völl á nýjum
sviðum í tilraun til þess að tryggja
hlutdeild sína í orkuskiptum á eyjun-
um. Þannig vinnur
fyrirtækið nú að
því að byggja upp
vindorkugarð sem
ætlunin er að taka
í gagnið árið 2021.
P/f Magn hefur
mjög sterka stöðu
á olíumarkaði í
Færeyjum og
nemur markaðs-
hludeild þess um
50% þegar kemur
að sölu á olíu og þjónustu til húshit-
unar.
Í dag koma 85% þeirrar orku sem
nýtt er til húshitunar í Færeyjum frá
jarðefnaeldsneyti.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skelj-
ungs, segir að p/f Magn hafi séð tæki-
færi í því þegar stjórnvöld í landinu
settu á laggirnar verkefnið 2030 sem
miðar að því að stærstur hluti orku-
notkunar heimila og bílaflota Færeyja
eigi árið 2030 að koma frá endurnýj-
anlegri orku.
Stórt í sniðum
„Ef þær áætlanir eiga að ganga eft-
ir þurfa um 18 þúsund fjölskyldur að
skipta úr olíukyndingu yfir í raf-
magn,“ segir Árni Pétur. Hann bendir
á að í Færeyjum séu ekki sömu tæki-
færi til nýtingar jarðhita og fallvatns
til raforkuframleiðslu og hér á landi og
því hafi vindorkan orðið fyrir valinu.
„Stjórnvöld í Færeyjum stefna að
því að vera með að minnsta kosti með
tvo vindorkugarða. Í því skyni efndu
þau til útboðs um uppbyggingu og
rekstur slíks garðs í sumar og þar
varð Magn hlutskarpast. Ríkið hefur
svo skuldbundið sig til þess að kaupa
alla þá orku sem þar verður fram-
leidd.“
Árni Pétur segir að sem stendur
Árni Pétur
Jónsson
Tækifæri í orkuskiptum í Færeyjum
Staðan í dag Verkefnið á Flatnahaga
85% orku koma
frá jarðefnaeldsneyti
2,2 milljarða kr. heildarfjárfesting
70-80%
lánsfjármögnun
40% eignarhlutur Magns og
60% eignarhlutur
færeyskra lífeyrissj óða
300 m.kr. fjárfesting
Magns að hámarki
18.000 fjölskyldur þurfa að skipta
2x meiri olíunotkun í Færeyjum en á
Íslandi m.v. höfðatölu
Húshitun að langstærstu leyti með olíu
Ekki sömu tækifæri
til nýtingar á
jarðhita og fallvatni
eins og á Íslandi
64 gígavatt-stunda
árleg fram-
leiðslugeta
Sölusamningur
á föstu verði til
ríkisins
Útskipti
Áætlanagerð og útskipti
á eldri búnaði
Búnaður og uppsetning
Sala og uppsetning á búnaði
fyrir orkuskipti
Sala og framleiðsla
Stór hluti orkunnar verður
framleiddur af Magni
Áskrift
Eitt gjald fyrir alla þjónustu
Eftirlit og viðhald
Sala á varahlutum og
viðhaldsþjónusta
Nýir tekjumöguleikar sem alhliða orku- og þjónustuaðili
400v
Heimild: Skeljungur, fjárfestakynning
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
6. desember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.27 121.85 121.56
Sterlingspund 158.11 158.87 158.49
Kanadadalur 91.26 91.8 91.53
Dönsk króna 17.962 18.068 18.015
Norsk króna 13.177 13.255 13.216
Sænsk króna 12.705 12.779 12.742
Svissn. franki 122.63 123.31 122.97
Japanskt jen 1.1148 1.1214 1.1181
SDR 166.83 167.83 167.33
Evra 134.22 134.98 134.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.525