Morgunblaðið - 06.12.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Stjórnvöld beggja vegna Atlantsála beina
nú í æ ríkari mæli sjónum að því hvernig
stóru samskiptanetmiðlarnir Facebook og
Google nota persónuupplýsingar sem þau
afla um notendur sína.
Þannig tilkynnti talsmaður framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins í byrjun vik-
unnar að hafin væri frumrannsókn á því
hvernig þessi tvö fyrirtæki söfnuðu per-
sónuupplýsingum og ynnu úr þeim.
Talsmaðurinn sagði að sendur hefði verið
út spurningalisti til að afla upplýsinga um
það hvernig Facebook og Google með-
höndluðu persónuupplýsingar. Rannsóknin
beindist að því að upplýsa hvernig upplýs-
ingunum er safnað, unnið úr þeim, þær
notaðar og breytt í söluvöru, hugsanlega til
að nýta í auglýsingar. En bæði þessi fyrir-
tæki hafa nýtt persónuupplýsingar til að
byggja upp auglýsingafyrirtæki sem afla
hundraða milljarða dala tekna.
Ekki kom fram hverjir hefðu fengið
þennan spurningalista en um er að ræða
skref sem gæti síðar leitt til formlegrar
rannsóknar.
Evrópusambandið hefur á undanförnum
árum sektað Google þrívegis fyrir að mis-
nota markaðsráðandi stöðu sína. Margr-
ethe Vestager, sem fer með samkeppn-
ismál í framkvæmdastjórn ESB, lýsti því
yfir árið 2016 að góðar gætur yrðu hafðar
á netfyrirtækjum, sem safna persónu-
upplýsingum, svo sem Facebook, Google og
WhatsApp.
Nú er Vestager orðin varaforseti nýrrar
framkvæmdastjórnar og hefur yfirumsjón
með eftirliti með stafrænni starfsemi auk
þess sem hún fer áfram með samkeppn-
ismál. Hún hefur þegar látið hefja rann-
sókn á því hvort notkun netverslunarinnar
Amazon á upplýsingum frá óháðum smásöl-
um brjóti gegn samkeppnisreglum.
Reutersfréttastofan, sem skýrði fyrst frá
frumrannsókn ESB á Google, segir að
gögn sýni að sú rannsókn beinist fyrst og
fremst að leitarsíðum fyrirtækisins í ein-
stökum löndum, auglýsingum á netinu,
auglýsingum sem beinast að þjónustufyr-
irtækjum og upplýsingum sem safnað er
um innskráningu og netvafra.
Ekki eins og olía
Nick Clegg, aðstoðarforstjóri Facebook,
var spurður um rannsóknina á blaða-
mannafundi í Brussel í vikunni en svaraði
ekki spurninginni beint heldur sagði að Fa-
cebook sætti rannsókn um allan heim.
Hann sagði jafnframt, að sögn AFP-
fréttastofunnar, að rannsakendur ESB
yrðu að hafa opinn huga þegar fjallað væri
um upplýsingar.
„Maður heyrir oft að upplýsingar séu
eins og olía en það er langt því frá,“ sagði
Clegg. „Það er ekki hægt að dæla upplýs-
ingum upp úr jörðínni og nota sem elds-
neyti sem brennur upp. Upplýsingar eru
óendanlega sundurgreinanlegar og óend-
anlega deilanlegar. Það er bæði hægt að
deila upplýsingum og geyma þær sam-
tímis.“
Talsmaður Google sagði í tölvupósti til
AFP að fyrirtækið myndi áfram eiga sam-
skipti við framkvæmdastjórnina og aðra
um þetta mikilvæga svið starfsemi fyrir-
tækisins.
Facebook tilkynnti á mánudag að not-
endur þjónustu fyrirtækisins á Írlandi
gætu nú með auðveldum hætti flutt myndir
og myndskeið í Google Photos, sem eru í
eigu keppinautarins. Sagði Facebook að
þessi þjónusta yrði síðar í boði í öðrum
löndum, væntanlega á fyrri hluta næsta
árs.
Stóru netfyrirtækin í skoðun
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að frumrannsókn sé hafin á því hvernig stóru samskipta-
netmiðlarnir safna og nýta persónuupplýsingar notenda Gæti leitt til formlegrar rannsóknar
AFP
Facebook Bás Facebook á vörusýningu í Shanghai í Kína. ESB hefur hafið frumrannsókn á því
hvernig Facebook og Google afla og nýta persónuupplýsingar.
TM, Síðumúla 24, 108 Reykjavík · 515 2000 · tm.is
TM hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við fyrirhugað hlutafjárútboð sem fram
fer dagana 9.-12. desember 2019. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 9. desember
kl. 12:30 í höfuðstöðvum Arion banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík.
Í útboðinu hyggst TM hf. bjóða til sölu 93.750.000 nýja hluti í TM, eða sem samsvarar um 13,8% af útgefnu hlutafé
félagsins. Markmið útboðsins er fjármögnun á kaupum TM á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf.
Heildarsöluandvirði útboðsins er áætlað nema 3,0 milljörðum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem
boðnir eru til sölu í útboðinu.
Útboðið nær til nýrra hlutabréfa í félaginu og skiptist í tvennt:
1. Forgangsréttarútboð til hluthafa í TM
2. Almennt útboð til íslenskra fjárfesta
Bæði forgangsréttarútboðið og almenna útboðið lúta reglum laga nr.
108/2007 um verðbréfaviðskipti varðandi almenn útboð. Í auglýsingu þessari
er hugtakið “útboð” notað sem samheiti um útboðin tvö.
Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 32,0 kr.
á hlut eða sem samsvarar 9,1% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa TM á
Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 3. desember 2019.
Forgangsréttarhafar að hinum nýju hlutum TM eru þeir aðilar sem skráðir eru
hluthafar TM kl. 17:00 (GMT) þann 12. desember 2019 og þeir aðilar sem
fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín og tilkynnt hafa um framsalið fyrir
þann tíma samkvæmt reglum útboðsins.
Arion banki hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu.
Helstu skilmálar útboðsins:
Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu
Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr.
Tekið verður við áskriftum á vef Arion banka hf. (www.arionbanki.is/
tm-utbod) frá 9. desember 2019 kl. 10:00 (GMT) til 12. desember 2019
kl. 17:00 (GMT)
Fjárfestar hafa heimild til að bæta við áskrift sína eða fella hana niður á
útboðstímabilinu
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega 13.
desember 2019
Eindagi kaupverðs er áætlaður 17. desember 2019
Áætlað er að hin nýju bréf verði tekin til viðskipta og afhent þann 18.
desember 2019
Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Arion
banka í síma 444-7000 milli kl. 09.00 og 16.00 dagana 9. desember til
12. desember 2019 og tölvupóstfanginu tm-utbod@arionbanki.is
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar um TM, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má
finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 4. desember 2019 og birt er á
www.tm.is/fjarfestar.
TM HLUTAFJÁRÚTBOÐ - OPINN KYNNINGARFUNDUR