Morgunblaðið - 06.12.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is
Ég pantaði bíla-
leigubíl í gegnum
Rentalcars.com hjá
Dollar á München--
flugvelli 5.8. 2019 (bók-
unarnr. 720259453). Ég
tók bílinn með fullri
tryggingu. Þegar ég
kom á flugvöllinn 28.8.
2019 fór ég á bílaleig-
una og framvísaði „vo-
ucher“ fyrir bílnum og
staðfestingarskjali um trygginguna.
Maðurinn sem var í afgreiðslunni
sagði mér að þeir ættu ekki bílinn
sem ég átti að fá, en hann myndi út-
vega mér annan sambærilegan.
Hann kom svo stuttu seinna til baka
með lykil að Ford Focus og sam-
þykkti ég það, en þá sagði hann allt í
einu að hann væri of gamall og fór
aftur, en kom skömmu síðar með
lykla að Opel Mokka. Sá bíll var í
sama verðflokki og tókum við hann,
enda kostaði hann okkur ekkert
aukalega. Hinn 10. september kom-
um við til baka og skiluðum bílnum.
Þegar við litum svo á Visa-
reikninginn yfir ferðina sáum við
færslu frá Hertz upp á 80.247 kr. og
könnuðumst ekkert við það því að við
áttum aldrei í viðskiptum við Hertz.
Við höfðum strax samband við
Landsbankann og Valitor. Valitor
fékk afrit af upphaflegum „voucher“
og svo síðar afrit af reikningnum frá
Hertz. Ég fór inn á þjónustuvefinn
hjá Dollar og gat séð
bókunina í upphafi en
síðar þegar ég ætlaði
að skoða hana betur
var hún horfin. Eftir
ítrekuð símtöl og spjall
við þjónustuver
Rentalcars.com og
þjónustuver Dollar
fannst loks nýtt bók-
unarnúmer sem hafði
verið stofnað hjá Hertz
og gat ég loks fengið
afrit af reikningnum
sent á mitt netfang.
Þar kom svikamyllan í ljós. Ég hafði
samband við Valitor og sendi reikn-
inginn með og benti á að þetta væri
falskur reikningur og bað þá að at-
huga málið. Þá varð ég fyrst hissa
því starfsmaður Valitor tók reikn-
inginn sem sönnunargagn um að
málið væri leyst og lokaði því þrátt
fyrir mótmæli mín.
Ég hef alls staðar komið að lok-
uðum dyrum. Það síðasta sem gerst
hefur er að Rentalcars.com greiddi
til baka upphaflega tryggingu að
andvirði 14.656 kr. en ekkert meira.
Ég vil taka það fram að ég og eigin-
kona mín höfum undanfarin 26 ár
flogið með Icelandair til München og
tekið bílaleigubíl hjá ýmsum bíla-
leigum og aldrei lent í öðru eins. Er
það ekki dularfullt að hvorki sé
mögulegt að sjá reikninga á þjón-
ustuvef Dollar (bókunarnr.
720259453 ) eða Hertz (bókunarnr.
299719895)?
Eins og ég og þeir sem ég hef ráð-
fært mig við líta á málið þá er þetta
afar sviksamlegt og engin önnur leið
sanngjörn en að reikningurinn frá
Hertz verði endurgreiddur og ég
greiði aðeins það sem var samið um í
byrjun, „voucher“ að andvirði 41.065
kr. en ekki þær 106.658 kr. sem ég
var látinn borga.
Að lokum vil ég minnast á að ég
óskaði eftir að Rentalcars.com út-
vegaði mér afrit af leigusamn-
ingnum þar sem ég á að hafa sam-
þykkt ný kjör og rándýra tryggingu
eða samtals tvöfalt upphaflegt um-
samið verð. Ég fékk senda illa ljós-
ritaða nótu með allt annarri undir-
skrift en minni og þar að auki frá allt
annarri bílaleigu sem heitir Thrifty
og er útibúið í Malaga á Spáni! Þetta
undirstrikar hversu ömurlega fjar-
stæðukennd öll samskipti hafa verið
í þessu ferli.
Ég get ekki ímyndað mér hversu
margir gefast upp á að sækja rétt
sinn í svona málum en ég læt ekki
svona lagað yfir mig ganga og verð-
ur málið kært til lögreglunnar.
Opið bréf til Landsbankans,
Icelandair og Valitor
Einar Róbert
Árnason » Þetta er afar svik-
samlegt og engin
önnur leið sanngjörn en
að reikningurinn frá
Hertz verði endur-
greiddur.
Einar Róbert Árnason
Höfundur er lífeyrisþegi.
Stór áfangi næst í
þeirri samgöngu-
byltingu sem stefnir í á
leiðinni milli sunnan-
og norðanverðra Vest-
fjarða þegar fara má
um ný göng milli Dýra-
fjarðar og Arn-
arfjarðar á næsta ári
og leiðin styttist um 27
km. Þá verður einungis
eftir að leggja heils-
ársveg úr Arnarfirði um Dynjand-
isheiði í annars vegar Vatnsfjörð og
hins vegar til Bíldudals til að komast
megi á milli Ísafjarðar og Breiða-
fjarðar og þéttbýlisstaðanna á sunn-
anverðum Vestfjörðum á vegum sem
að mestu uppfylla nútímakröfur.
Göng undir Breiðadals- og Botns-
heiði, sem svo eru nefnd, milli Ísa-
fjarðar, Súgandafjarðar og Önund-
arfjarðar hafa tryggt örugga umferð
árið um kring á norðanverðum Vest-
fjörðum og allt til Dýrafjarðar í tæp-
an aldarfjórðung.
Með hinum nýju göngum er hins
vegar hætt við að umferð muni að
mestu leggjast af um Hrafnseyrar-
heiði, sem nú tengir firðina saman,
sem og um hinn fornfræga stað
Hrafnseyri við Arnarfjörð, en leiðin
um hin nýju göng mun næst liggja
um 12 km frá honum. Líklegt má
telja að Hrafnseyri skipi ríkan sess í
hugum þeirra sem láta sig sögu þjóð-
arinnar varða og staðurinn og nafn
hans sé ein táknmynda framfara og
frelsis hennar. Væri mjög miður ef
Hrafnseyri hyrfi að mestu af sjón-
arsviðinu sem hætt er við að geti
orðið ef ekki verður brugðist við.
Um sögu staðarins má rifja upp að
þar bjó til dauðadags 1213 Hrafn
Sveinbjarnarson, héraðshöfðingi og
fyrsti menntaði læknirinn á Íslandi,
sem staðurinn eða Eyrin var síðan
kennd við og nefnd Hrafnseyri eða
Rafnseyri. Um hann segir í Hrafns
sögu Sveinbjarnarsonar „… Alla
menn lét hann flytja yfir Arnarfjörð,
þá er fara vildu. Hann átti og skip á
Barðaströnd. Það höfðu allir þeir
sem þurftu yfir Breiðafjörð. Og af
slíkri rausn Hrafns var
sem brú væri á hvárum
tveggi firðinum fyrir
hverjum, er fara vildi.“
Hann veitti öllum
læknisþjónustu sem til
hans leituðu og tók
aldrei gjald fyrir, segir
einnig.
Sex öldum síðar, eða
17. júní 1811, fæddist á
prestssetrinu Hrafns-
eyri við Arnarfjörð sá
maður sem öðrum
fremur leiddi Íslend-
inga til frelsis og sjálfstæðis, Jón
Sigurðsson, oftast titlaður forseti.
Þar bjó hann og óx úr grasi allt til 18
ára aldurs. Sem flestum ætti að vera
kunnugt var á aldarafmæli hans, 17.
júní 1911, stofnaður Háskóli Íslands
og sama dag árið 1944 stofnað lýð-
veldið Ísland á Þingvöllum við Öx-
ará.
Með hinum nýju göngum er von-
andi að byggð á Vestfjörðum komist
nær því að ná vopnum sínum, sam-
göngur verði tryggari, samgangur
aukist og nafn ganganna verði oft á
vörum íbúa og vegfarenda. Má því
telja mjög við hæfi að kenna þau við
búsetustað Hrafns Sveinbjarn-
arsonar og fæðingar- og uppeld-
isstað Jóns Sigurðssonar, svo mjög
sem þeir stuðluðu báðir að fram-
förum lands og lýðs, og nefna þau
Hrafnseyrargöng. Einnig héldi
þetta nafn við minningunni um leið-
ina um Hrafnseyrarheiði sem göngin
leysa af hólmi.
Eitthvað þurfa samgöngu-
mannvirki að heita (líkt og lands-
lagið) og hafa göngin til þessa verið
kennd við annan af þeim tveimur
meginfjörðum sem þau tengja og
nefnd Dýrafjarðargöng. Dýra-
fjörður er talinn draga nafn sitt af
Dýra nokkrum landnámsmanni.
Einnig hefur sú kenning verið sett
fram að fjörðurinn dragi nafn sitt af
því sem líkist dyrum sem fjöllin
hvort sínum megin fjarðar mynda
(Dyrafjörður). Yfir fjörðinn nokkru
fyrir innan Þingeyri liggur fylling og
brú kennd við fjörðinn og nefnist
Dýrafjarðarbrú.
Engar skráðar reglur gilda um
nafngiftir samgöngumannvirkja
hérlendis en það metið svo að ráð-
herra samgöngumála hafi lokaorðið
ef á reynir. Ekki er vitað til að sér-
stök formleg ákvörðun hafi verið
tekin um þetta nafn á göngin né hver
rök liggja því að baki. Hefur nafnið
fest sig nokkuð í sessi og raunar svo
mjög að bæjarráð Ísafjaðarbæjar
var á fundi sínum í lok október síð-
astliðnum einhuga um að hafna til-
lögu undirritaðs um að leggja til við
ráðherra að nafni ganganna skyldi
breytt og þau nefnd Hrafnseyr-
argöng.
11. október sl. var birt á vef for-
sætisráðuneytisins skýrsla sem
nefnist „Arfleifð Jóns Sigurðssonar
– skýrsla nefndar um inntak, stjórn-
sýslu og miðlun“. Þar er lagt til
„… að flutt verði á Alþingi stjórn-
artillaga um að gerð verði áætlun um
heildstæða nálgun á inntaki, stjórn-
sýslu og miðlun arfleifðar Jóns Sig-
urðssonar. Í því augnamiði verði
starfsemin á Hrafnseyri efld og
stofnaður formlegur samstarfsvett-
vangur þeirra aðila sem nú sinna op-
inberri menningarstarfsemi sem til-
einkuð er ævistarfi og minningu
Jóns Sigurðssonar.“
Það er mat þess sem þetta ritar að
í því fælist lítil fórn og raunar þvert á
móti væri vel til fundið að kenna hin
nýju göng milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar við Hrafnseyri við Arn-
arfjörð og nefna þau Hrafnseyr-
argöng. Væri nafni staðarins og sögu
þannig haldið á lofti og með því á
táknrænan hátt stutt við þá starf-
semi sem lagt er til að þar verði.
Að varðveita sögu sína
Eftir Jónas
Guðmundsson » Í því fælist lítil fórn
og væri raunar þvert
á móti vel til fundið að
kenna ný göng milli
Arnarfjarðar og Dýra-
fjarðar við Hrafnseyri
við Arnarfjörð.
Jónas Guðmundsson
Höfundur er sýslumaður á Vest-
fjörðum.
jonas@snerpa.is
VINNINGASKRÁ
42 9155 17266 29526 38275 48501 58743 70585
52 9167 18814 29621 38660 48537 60315 70716
483 9202 18854 29780 38941 48781 60356 71041
910 9279 19068 30153 38956 49458 60811 71082
1064 10256 19264 30363 38966 49523 60883 71861
1154 10271 20384 30536 39074 49555 61733 72188
1313 10516 20395 30623 39805 50198 61901 72213
1381 10639 20585 30879 40093 50612 61932 72387
1636 10687 22029 31315 40129 50829 62112 72502
1726 10740 22067 31749 40483 51114 62604 72548
1952 11215 22387 31847 40552 51178 63193 72610
2216 11708 22684 31952 40620 51328 63310 72622
2630 11766 22954 32398 40856 51463 63742 72795
2798 11775 23215 32734 40927 51836 63795 72871
2871 11947 23457 32794 41232 51875 63861 73124
2942 12207 23723 33046 41421 51907 64084 73224
3290 12259 24180 33672 42432 51977 64334 73238
3582 12472 24561 33939 42458 52517 64551 73651
3716 12598 24807 33954 42925 52945 64553 74275
3870 12935 25441 34158 43462 53050 64752 75036
3988 13115 25586 34248 44142 53218 64795 75628
4699 13163 26054 34346 44305 53357 65436 76511
5273 13677 26458 34821 44500 53747 66117 76606
5450 13828 26780 35061 44650 53949 66189 76699
5501 13983 26838 35197 44775 54141 68318 76850
5909 14128 26950 35368 44808 54592 68395 77044
5972 14255 26978 35518 45035 54817 68457 78206
6425 14924 27053 35694 45079 54907 68976 78373
6570 15049 27399 36075 45411 55238 69173 78603
6703 15134 27702 36159 46283 55304 69308 78860
7885 15259 28150 36685 46332 55332 69387 79720
8080 15582 28151 36931 46466 55604 69388
8169 15757 28167 37204 46775 55844 69604
8263 16106 28354 37633 47478 56535 70026
8657 16644 28729 37718 47776 57754 70232
8854 16651 29093 37927 48015 57758 70457
8956 17213 29304 38198 48481 58071 70495
230 11260 21942 34277 42227 54536 65605 72973
2949 12407 23189 34418 43715 55368 66783 75342
3780 13317 25240 36971 46309 56239 67117 76234
4080 16902 25387 37336 47068 56402 67436 76598
4648 16946 26251 37443 47205 56653 67795 76754
6956 17663 27204 37473 48150 58180 68144 78086
7916 17828 27217 38186 48334 58992 68833 78162
8082 17960 28242 38615 49169 60196 69162 78675
8272 18037 29332 39090 49541 62286 70470 79437
8782 18046 29610 39166 50004 62575 70515
8977 18120 30760 39680 50304 63799 70953
9013 18456 32442 40252 52740 63835 71412
9244 18770 33301 41554 54401 64886 71910
Næstu útdrættir fara fram 12., 19. & 30. desember 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
6097 45272 46358 51954 56190
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2153 4885 31294 40936 54208 70127
2581 5740 32064 41461 56823 70389
3265 6654 37350 44084 62222 75644
3454 24133 38379 45587 66397 78974
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 3 2 9 3
31. útdráttur 5. desember 2019