Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
✝ Páll HeimirPálsson fædd-
ist í Reykjavík 26.
september 1962.
Hann lést á heimili
sínu 24. nóvember
2019. Foreldrar
voru Páll Friðriks-
son, f. 16. maí 1930,
og Susie Bach-
mann, f. 20. febr-
úar 1929, d. 4. októ-
ber 2009. Páll var
kvæntur Bryndísi Skaftadóttur.
Páll Heimir átti dótturina
Unni Anítu, f. 3. júní 1991. Börn
Páls og Bryndísar eru Hrafn
Jökull, f. 11. júlí 2000, Regína
Gréta, f. 4. október 2001 og Páll
Jökull, f. 19. september 2003.
Synir Bryndísar og uppeld-
issynir Páls eru Stefán Birgir, f.
18. janúar 1993, og Benedikt
Arnar, f. 23. febrúar 1995.
Páll var stúdent frá MS. Árið
1996 lauk hann prófi frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum.
Hann stundaði síð-
an framhaldsnám
við Hochschule für
Gestaltung í Offen-
bach, háskólann í
Barcelona og Ecole
Nationale Supér-
ieure d‘Art de Bo-
urges í París. Árið
1999 lauk hann
meistaraprófi í list-
um og prentlist frá
Listaháskóla Ís-
lands.
Páll vann ýmsa vinnu sem
ekki tengdist námi hans þar til
hann hóf störf á verkfræðistof-
unum Höfn og S Sögu. Þar fór
hann strax að vinna að hönnun
þrívíddarlíkana. Mörg undan-
farin ár hefur hann starfað
sjálfstætt á því sviði, mest í
tengslum við verk- og fornleifa-
fræði.
Útförin fer fram frá Háteigs-
kirkju í dag, 6. desember 2019,
og hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku besti pabbi minn.
Alveg frá fyrsta deginum mín-
um í þessum ósanngjarna heimi
til þíns síðasta barðist þú eins og
hetja fyrir mig, litlu Gínuna þína
sem fæddist svo pínulítil og veik,
það lýsir þér best, þú vildir allt
fyrir mig gera.
Ég er rosalega hrædd við lífið
án þín, það hræðir mig mikið að
hugsa til þess að það er enginn
pabbi mér við hlið, besti vinur
minn númer 1, alltaf. En alltaf
þykir mér jafn gott að hugsa til
þess hvað við vorum langbestu
vinir, treystum á hvort annað,
hvað við sýndum hvort öðru
mikla væntumþykju og hvað við
vorum stolt hvort af öðru.
Það hafa fáir kennt mér jafn
mikið og þú, pabbi, þú kenndir
mér á lífið. Margir segja að það
sé enginn fullkominn, en mér
finnst þú fullkomnasti pabbi sem
ég hefði nokkurn tímann getað
fengið. Allt sem þú tókst þér fyr-
ir hendur, hvort sem það var að
vera góður við okkur fjölskyld-
una, veikindin, eða vinnan þín, þú
gerðir það alltaf eins fullkomið
og hægt var, eins og Krummi
segir: það kemst enginn með
tærnar þar sem þú hafðir hæl-
ana.
Ég er svo óendanlega reið við
lífið að hafa tekið þig frá mér, við
áttum eftir að gera og upplifa svo
margt, við fengum bara 18 ár
saman, 18 ár voru alltof lítið fyrir
allt sem við ætluðum okkur að
gera saman.
Elsku pabbi minn, takk fyrir
allt, takk fyrir að vera minn allra
besti vinur og lífsförunautur.
Takk fyrir að kenna mér á lífið,
tilveruna og allt sem fylgir því að
vera til, takk fyrir að kenna mér
að vera besta útgáfan af sjálfri
mér.
Takk fyrir að vera langbesti
pabbi í heimi, ég sakna þín ólýs-
anlega mikið.
Regína Gréta Pálsdóttir.
Elsku pabbi, það er allt svo
tómlegt án þín, án mannsins sem
ég leit allra mest upp til. Þú varst
maður allra eiginleika, þú gast
allt. Þú varst svo sterkur, sama
hvað gekk á þá varstu alltaf
tilbúinn að takast á við það, sama
hvort það var krabbameinið eða
reikningsdæmi sem ég var að
kljást við. Það var ekkert sem þú
gast ekki, það er oft sagt að eng-
inn sé fullkominn en það er bara
ekki rétt, þú varst það. Þú stóðst
alltaf við bakið á okkur og fannst
ekkert mikilvægara en að við
værum glöð. Þú varst kletturinn
sem hreyfðist ekki og stóðst með
stolti yfir fjölskyldunni og pass-
aðir okkur. Þó þú sért í raun og
veru farinn þá ertu samt alltaf
hér hjá okkur og passar upp á
okkur.
Það var svo margt sem við
ætluðum að gera, ég mun gera
það allt og ég veit að þú verður
hjá mér og við gerum það saman,
alveg eins og draumurinn var.
Það var og verður ekkert betra
en þegar þú sagðir: „Þú ert best-
ur, ég er svo stoltur af þér,“
setning sem mun fylgja mér alla
ævi. Setning sem ég gleymi aldr-
ei. Sama hvernig skapi ég var í
þá einhvern veginn gast þú alltaf
komið mér í gott skap með þín-
um fullkomna aulahúmor.
Þú varst ljúfasta og besta
manneskja sem hægt er að
hugsa sér. Það kemst enginn
með tærnar þar sem þú hefur
hælana, þú varst alltaf bestur í
öllu. Það var svo einkennandi
hvað þú elskaðir fólkið þitt mikið
og vildir gera allt fyrir alla. Það
var svo gott að hafa þig hjá mér,
maður fylltist af öryggi og gleði.
Þú ert fyrirmyndin mín, pabbi,
þú gerðir mig að þeim manni
sem ég er í dag og ég vona að ég
geti allavega verið helmingurinn
af því sem þú varst, því það verð-
ur enginn eins og þú. Okkar
tímar saman voru fullkomnir og
ég vildi óska þess að hann hefði
verið lengri, okkar tími kenndi
mér svo margt, eitthvað sem
mun leiða mig áfram í lífinu,
sama hvort það komi að ást, sorg
eða hamingju þá get ég alltaf
hugsað „hvað myndi pabbi
segja“, það er alltaf rétt.
Takk fyrir allt, alla þessa
tíma, öll þessi ráð og allar þessar
minningar sem eiga sér svo stór-
an stað í hjartanu mínu. Ég
sakna þín svo, ég mun alltaf gera
það. Takk fyrir að vera þú, það
er enginn eins heppinn og ég að
eiga þig sem pabba, þú gerðir
mig svo stoltan í gegnum allt, þú
varst svo sterkur. Það er svo
sárt að kveðja en ég veit að þú
situr nú með henni ömmu og
horfir niður á okkur. Hvíldu í
friði, elsku pabbi, pabbi minn. Þú
varst og ávallt verður bestur. Ég
elska þig svo mikið, það er allt
svo tómt án þín. Ég veit að þú
verður þarna þegar minn tími
kemur.
Þinn sonur,
Hrafn Jökull.
Þetta eru búnir að vera erf-
iðustu dagar lífs míns. Ég var að
missa mína hetju, besta vin og
svo stóran part af mér. Ég elsk-
aði pabba minn svo mikið, hann
gat gert allt, sama hvort það var
að laga í mér hjartað þegar mér
leið illa eða bara gera mig glaðan
með einum góðum brandara. Ég
mun sakna þín alltof mikið, ég
mun aldrei gleyma því að pabbi
minn var bestur. Ég gat sagt
honum allt og hann gat sagt mér
allt og við gátum alltaf hjálpað
hvor öðrum, það var eins og við
værum tvíburar, við gerðum allt
saman.
Elsku pabbi, mikið mun ég
sakna þess að heyra þegar ég fer
að sofa: „Palli, þú ert langbest-
ur.“
Þinn sonur,
Páll Jökull.
Elsku pabbi. Ég sit hér enn
dofinn og finnst ég hreinlega
fastur í vondum draumi. Maður-
inn sem fylgdi mér út þetta
snúna og oft ósanngjarna líf er
horfinn á braut. Klettur fjöl-
skyldunnar sem alltaf stóð stað-
fastur hefur misst sína festu.
Þegar ég lít til baka á allt það
dýrmæta sem þú hafðir að
geyma veitir það mér þó mikla
hugarró. Öll listaverkin, vonin
sem þú fylltir okkur öll með þinni
snilld, öll handverkin sem þú
fórst létt með að framkvæma og
hin skilyrðislausa ást sem þú
barst til fjölskyldunnar. Þú skil-
ur eftir þig mikinn lærdóm fyrir
okkur krakkana og góðar lífs-
reglur sem við tökum með okkur
út í lífið. Ég dáist alltaf að þeirri
ást sem þú hefur alltaf borið til
hennar mömmu og virtist stig-
magnast með hverju árinu sem
leið. Það var ekkert sem mömmu
gat dreymt sem þú gast ekki
framkvæmt eða látið verða að
veruleika.
Ástin sem þú barst til okkar
barnanna er það ótrúlegasta sem
ég hef orðið vitni að og mér
finnst orðin „þið eruð best“ enn
fylla gangana á kvöldin.
Þér tókst alltaf að fanga feg-
urðina í sínu besta ljósi og hafðir
svo ótrúlega sýn á allt sem heim-
urinn hefur að geyma. Hvort sem
um ljósmyndir, málverk eða ann-
ars konar tjáningarform var að
ræða lá það hreinlega fyrir þér.
Sterkari mann hef ég ekki
þekkt og baráttuviljinn sem þú
barst í brjósti gegnum veikindin
mótaði þig sem fyrirmynd í mínu
lífi. Pabbi, takk fyrir að kenna
mér að gera öll mín verk með
heilum hug og huga að hverjum
millimetra. Fyrir að veita mér
nýja sýn á heiminn og kenna mér
að elska.
Í mars er litli prinsinn minn
væntanlegur og ætla ég mér að
koma fram við hann nákvæmlega
eins og þú komst fram við litlu
gullin þín. Takk fyrir að móta
mig sem einstakling, sem per-
sónu og kenna mér föðurhlut-
verkið. Ég get ekki beðið eftir
því að leyfa honum að sjá og
kynnast afa og þeim magnaða
karakter sem hann var.
Elsku pabbi, takk fyrir að
leyfa mér að vera þér við hlið
þegar þið mamma genguð í það
heilaga og fyrir að leyfa mér að
vera hjá þér þegar þú fórst. Takk
fyrir upphafið, endalokin og allt
þar á milli. Á betri tíma, á betri
stað mætumst við á ný.
Þinn
Benedikt.
Elsku pabbi minn. Mér finnst
ennþá vera 24. nóvember. Heil
vika af sunnudögum. Dofinn,
reiður, sorgmæddur, sár og stolt-
ur. Allt á sama tíma. Hlátur og
grátur. Þú komst inn í líf mitt
þegar ég var sex ára gamall.
Leðurtöffari. Tagl. L300. Maður
sem hafði séð heiminn. Hvern
hefði grunað áhrifin sem þú hafð-
ir á lítinn orkumikinn strák eins
og mig.
Ég er svo þakklátur, pabbi,
fyrir að hafa fengið að hafa þig í
lífi mínu í 20 ár. Ég mun aldrei
ná að þakka þér fyrir hvað þú
hefur gefið mér mikið. Öll
systkinin mín, allar góðu stund-
irnar, allar vondu stundirnar, allt
sem ég lærði af þér. Ég eiginlega
veit ekki hvar ég get endað þakk-
irnar. En það sem ég er þér
þakklátastur fyrir er ástin sem
þú barst til mömmu. Allt frá því
að þið kynntust fyrst sá ég
glampann sem þú fékkst í augun
þegar þú horfðir á hana. Hún er
þín. Þú ert hennar. Það eru ekki
margir sem ná að finna sinn sálu-
félaga á þessari jörðu pabbi minn
en það gerðuð þið. Ég lærði líka
svo margt af því að sjá hvernig
þú elskaðir mömmu, hvernig þú
komst fram við hana. Þannig
reyni ég að koma fram við Evuna
mína.
Lag sem hefur verið mér hug-
leikið síðustu daga þar sem ég
hef farið í gegnum þennan rússí-
bana af tilfinningum er „Það er
gott að elska“. Það er gott að
elska mann eins og þig. En að
sakna? Það er gott að sakna. Er
það? Veit það ekki enn þá. Stund-
um finnst mér það gott, pabbi,
stundum vont. Oftast vont. En að
sakna segir manni líka að maður
hafi átt eitthvað dýrmætt. Þú
varst, ert og verður mér ætíð
dýrmætur. Sumum finnst ljótt að
segja að einhver sé skrýtin
skrúfa, en þú varst alla vega spes
skrúfa. Mín sérstaka skrúfa.
Við höfum líka hlustað á Time
To Say Goodbye sem þið mamma
spiluðuð í brúðkaupinu ykkar.
Táknrænt. Segja bless við gamla
tíma. Byrja upp á nýtt. Það er
erfitt að hlusta á það. Ég er ekki
tilbúinn til að segja bæ. Vil ekki
verða tilbúinn. Elsku pabbi, ég
vildi að þetta hefði spilast öðru-
vísi. Ég vildi að þú hefðir ekki
orðið veikur. Vildi að við hefðum
haft meiri tíma. Þú opnaðir þig
svo fyrir mér eftir að þú varðst
veikur. Við vorum svo góðir vinir.
Það er svo dýrmætt í dag, pabbi,
að þú skyldir gera það. Opna þig.
Mér finnst þessir sex mánuðir
hafa liðið hjá á einni nanósek-
úndu. Pabbi er veikur. Pabbi er
dáinn. Pabbi, ég get ekki enn þá
sagt þetta upphátt. Það gerir
þetta raunverulegt, ég vil ekki að
þetta sé raunverulegt. Þér fannst
lífið svo fallegt, sást fegurðina í
litlu hlutunum. Blómunum,
grjótinu, fjörunni, mömmu, okk-
ur. Allt var fallegt. En af hverju
er lífið svona ljótt við mig núna,
pabbi? Fyrirgefðu. Ég varð
reiður. Vil ekki vera reiður.
Ég vil að þú vitir að ég er
tilbúinn í hlutverkið sem þú skil-
ur eftir handa mér. Ég man eins
og það hefði gerst í gær hvað þú
sagðir við mig þegar þú komst
með útprentuðu blöðin með því
sem þú vildir að ég vissi áður en
þú færir frá mér. Ég vil líka fá að
segja takk, pabbi. Takk fyrir að
vera stoltur af mér. Takk fyrir að
velja mig sem son, því ólíkt því
sem er vanalega þá hafðirðu val.
Takk fyrir allt sem þú gerðir á
meðan þú varst hjá okkur. Ég vil
líka að þú vitir að ég er stoltur af
þér, að þú hafir verið pabbi minn.
Ég elska þig, pabbi, farðu í
friði. Ég á eftir að gera aðeins
meira hér áður en ég fer en við
sjáumst aftur þegar ég er búinn
og þá get ég sagt þér frá því öllu.
Hlakka til.
Þinn sonur,
Stefán Birgir Jóhannesson.
„Það er fallegt en sorglegt að
vera manneskja.“ Þessi mótsögn
prýðir kærleikskúluna mína sem
ég set upp á aðventunni. Mér
varð hugsað til bróður míns þeg-
ar ég rakst á þessa sönnu mót-
sögn við undirbúning aðventunn-
ar í ár. Það er óhætt að segja að
lífið hafi ekki alltaf farið mjúkum
höndum um hann bróður minn.
En lífið er aldrei annaðhvort eða;
sorglegt eða gleðilegt, svart eða
hvítt. Við lifum og deyjum á gráa
svæðinu. Og hlutskipti okkar
hvers og eins er bæði sorglegt og
fallegt.
Það er óhætt að fullyrða að
mesta gæfa þessa ljúfa drengs
hafi verið að hitta hana Dísu sína
og ganga með henni lífsins veg.
Fallegra samband og vinátta er
vandfundin. Börnin þeirra, dem-
antarnir sex, bera því glöggt
vitni. Hann var kletturinn í lífi
þeirra. Hann var aldrei spar á að
hæla þeim og hvetja. Daglega
sagði hann fjölskyldunni sinni
hversu heitt hann elskaði þau. Ef
þau fóru út úr húsi án þess að
kveðja heyrðist fljótlega lítið
„bling“ úr símanum og við blasti
falleg kveðja. Þau „bling“ frá
pabba munu ekki oftar heyrast,
en þau geta nú yljað sér við öll
hvatningarorðin sem þau geyma.
Það má segja að það hafi orðið
straumhvörf í lífi bróður míns
þegar hann rakst á bókina Al-
kemistann eftir Paulo Coelho.
Hann færði mér bókina með
þeim orðum að nú hefði hann
fundið ró í lífi sínu. Spekin sem
þessi bók hefur að geyma leysti
kvíða- og óróahnútinn í hjarta
hans. Við gátum endalaust velt
fyrir okkur boðskap hennar. Hún
fjallar um mann sem nær tökum
á tilverunni með því að skoða líf
sitt. Í draumi hefur ungur fjár-
hirðir í Andalúsíu fengið að vita
af fjársjóði sem kann að bíða
hans í fjarlægu landi og fullur
eftirvæntingar leggur hann af
stað að leita hans. Það verður
margt á vegi hans og hann upp-
götvar aðra og dýrmætari fjár-
sjóði; þau verðmæti sem búa hið
innra. Þetta er mannbætandi og
hrífandi vitnisburður um gildi
þess að fylgja draumum sínum
og láta hjartað ráða för, eins og
stendur á bókarkápu.
Palli bróðir minn var gríðar-
lega fjölhæfur, sannkallaður
snillingur. Hann gat allt. Hann
teiknaði frímerki sem gefin voru
út, var snillingur í tölvuvinnslu í
þrívídd, málaði, fangaði radd-
bylgju Geirs Haarde þegar hann
bað Guð að blessa Ísland og skar
út í tré með leysi, teiknaði hús,
byggði sjálfur hús og hannaði
legsteininn hennar Susie Rutar,
einstakt listaverk. Ég gæti hald-
ið upptalningunni endalaust
áfram.
Hann átti stóran erlendan
vinahóp í tölvuheiminum og þar
var hann eiginlega í dýrlinga-
hópi. Þeir nefndu hann „St. Pall“.
Þegar Palli var fimm ára taldi
ég tíma vera til kominn að kenna
honum að lesa. Ég útbjó litla
skólastofu í einu horni herberg-
isins og þar varð hann að mæta
daglega í lestrarkennslu. Hann
var fyrst spenntur, en spenning-
urinn rjátlaðist fljótt af honum.
Harm sinn bar hann þó að mestu
í hljóði, mætti daglega í leiðindin
hjá systur sinni og náði frábær-
um árangri.
Hann var sérlega æðrulaus og
faðmaði fast. Palli lét hvorki öf-
und né græðgi halda fyrir sér
vöku. Við Palli bróðir minn mun-
um ekki hringjast á fleiri vor til
að tékka á hvort endurlestur á
Sjálfstæðu fólki Laxness sé haf-
inn, hvort einhver nýr vinkill sé á
sögunni.
Síðustu orðin hans til mín voru
að ekki stæði annað til en að
bretta upp ermar og berjast. Í
nístandi sorg verðum við sem eft-
ir lifum að viðurkenna tapaða or-
ustu. Kletturinn er horfinn og
eftir stendur hnípin fjölskylda og
vinir. Ég mun sakna elsku bróð-
ur míns alla daga.
Regína systir
Meira: mbl.is/andlat
Palli mágur minn lést þann 24.
nóvember um aldur fram. Veik-
indi hans uppgötvuðust í maí síð-
astliðnum. Hann vissi hvert lík-
legast stefndi. Óhætt er að segja
að andlátið hafi borið brátt að.
Fyrr en nokkur hugði. En Palli
var æðrulaus og reiðubúinn og
tók veikindum sínum af mikilli
karlmennsku.
Palli var fjölhæfur svo af bar,
kannski um of. Tölvutækni,
hvers kyns grafík, olíumálverk,
allt handverk lék í höndunum á
honum. Rithöndin var eftir því.
Dóra vinkona hafði eftir Haf-
steini Austmann föður sínum
sem kenndi í Myndlista og hand-
íðaskólanum að hann væri af-
burða listamannsefni. Enda fékk
hann styrk til framhaldsnáms í
Barcelona, París og Frankfurt.
Þrívíddarmódel hans er að finna
á vefslóðinni 3dwarehouse.sketc-
hup.com og bera höfundi sínum
vitni. Ég hvet fólk til að skoða
þau.
Í stjórnmálum vorum við mjög
samstiga. Ég minnist þess ekki
að okkur hafi orðið sundurorða,
hvorki um þau né reyndar annað.
Auðvitað þótti okkur stundum að
flokkurinn okkar mætti fylgja
sjálfstæðisstefnunni fastar.
Fylgja henni, en elta ekki dæg-
urflugurnar eins og stundum vill
bera við. Ekki síst þessa dagana.
Palli var bóngóður og greið-
vikinn. Það kom sér vel fyrir
mann eins og mig sem hefur
Páll Heimir
Pálsson
Sálm. 86.11
biblian.is
Vísa mér veg þinn,
Drottinn, að ég
gangi í sannleika
þínum, gef mér
heilt hjarta, að ég
tigni nafn þitt.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BERGUR BJARNASON
bóndi,
Viðborðsseli í Hornafirði,
lést 21. nóvember.
Útför hans fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 7. desember
klukkan 13.
Ingunn Júlía Ingvarsdóttir
Helga Lucia Bergsdóttir Gunnar Ingi Valdimarsson
Bjarni Ingvar Bergsson Erla Rún Guðmundsdóttir
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
GYLFI HARALDSSON
heimilislæknir,
lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold
2. desember. Útför hans fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 10. desember klukkan 15.
Rut Meldal Valtýsdóttir
Þröstur Freyr Gylfason Una Björk Ómarsdóttir
Guðbjört Gylfadóttir Bjarni Kristinn Torfason
Hreiðar Ingi Þorsteinsson Nue Milici
Rúnar Már Þorsteinsson Sigurbjörg Rutardóttir
Björgvin Þorsteinsson María Eugenia Sambiagio
Þorri, Fróði, Skírnir, Ísabella Laufey,
Benedikt Freyr, Sigrún Rut, Dagur Hrafn,
Anna Leonor, Alex Þorsteinn, Alara Liv