Morgunblaðið - 06.12.2019, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Zumba
Gold 60+ kl.10.30. Hreyfisalurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkams-
ræktartæki, lóð og teygjur. Aðventubingó kl. 13.30, spjaldið kostar
250 krónur, veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í
síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Leik-
fimi með Hönnu kl. 9-9.45. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl.13.
Línudans kl. 13.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-
15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535 2700.
Boðinn Vöflukaffi kl. 14.30-15.15. Línudans fellur niður.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Jólagleði Bólstaðarhlíðar kl. 17.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi Rósu kl. 10.15 í setustofu.
Dalbraut 27 Jólabingó kl. 14 í bókastofu. Allir í jólapeysum og með
jólasveinahúfur.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Thai Chi kl. 9 Boccia kl. 10.15. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistar-
námskeið kl. 12.30. Jólapeysudagurinn. Koma í peysu, eða jóla-
sveinahúfu eða bara einhverju jólatengdu. Skemmtun kl. 14. Bjarni
Harðar les úr bók sinni. Tónmenntaskóli Reykjavíkur spilar nokkur lög.
Jólaglögg og piparkökur. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Boccia kl. 10.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30.
Handaband kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl.
14.30-15.30. Jólahlaðborð Vitatorgs hefst kl. 18. Nánari upplýsingar í
síma 411 9450. Verið öll hjartanlega velkomin.
Garðabæ Dansleikfimi Sjál. kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.
Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhv. opin kl. 14-17,
allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna-
kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um
hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu 10.30-11.15. Bókband m/leiðb. kl. 13-
16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 Félagsvist.
Gullsmára Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8-12. Kl. 10.30 línudans.
Kl. 13. Bridge. Kl. 13.30 Boccia.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jólabasar kl. 10-15.30. Hádegismatur alla
virka daga kl. 11.30-12.20. Bridge í handavinnustofu kl. 13. Jólabingó
kl. 13.15.
Selfoss Ringó í Vallskóla kl.10.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í sal-
num kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut kl. 13. Kaffi á eftir. Spilað í
króknum kl. 13.30 og bridge í Eiðismýri kl. 13.30. OG STJARNAN SKÍN
er heiti Jólatónleika SELKÓRSINS sem haldnir verða sunnudaginn 8.
desember í Seltjatnatneskirkju kl. 16. Kaffi og konfekt eftir tónleika.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4, sunnu-
dagskvöld 8. desember kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og
njótum.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Vinsælu Smoothease
buxurnar okkar eru
komnar aftur.
Ein stærð sem gengur fyrir
stærðir S-XL. Saumlausar,
teyjanlegar og einstaklega
mjúkar.
Verð 2.450,- stk
Tilvalið í jólapakkann
8.900,-
4.900,-
4.900,-
8.900,-
10.900,-
www.frusigurlaug.is
Glæsileg vefverslun
- Frí póstsending -
Virkir dagar: 10 – 18
Laugardagar: 11 - 16
MJÓDD | S. 774-7377
MERINO
ULLARFÖT
ÞUNN & ÞÆGILEG
Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Vantar þig starfsfólk?
hagvangur.is
✝ Guðrún MaríaÞórdís Snæ-
björnsdóttir fædd-
ist á Hellissandi 2.
febrúar 1933. Hún
lést á dvalar- og
hjúkrunarheim-
ilinu Gråsten á Suð-
ur-Jótlandi 20. nóv-
ember 2019.
Foreldrar hennar
voru Kristín E.
Jónsdóttir, f. 2.
ágúst 1891, d. 21. júlí 1963, og
Snæbjörn Þorláksson, f. 7. ágúst
1884, d. 19. október 1974. Albróð-
ir Guðrúnar var Auðunn Svein-
björn, f. 4. ágúst 1936, d. 31. maí
2018. Systir sammæðra var
Magnea Hólmfríður Sörensdóttir,
f. 7. janúar 1921, d. 7. júlí 1995.
Systkini samfeðra voru: Ásthild-
ur Gyða Snæbjörnsdóttir, f. 6.
febr. 1911, d. 29. jan. 1914, Helga
Ragnheiður Snæbjörnsdóttir, f. 3.
júlí 1913, d. 10. febr. 2000, Krist-
ófer Sigvaldi Snæbjörnsson, f. 6.
maí 1918, d. 1. okt. 1997, og Þor-
lákur Ólafur Snæbjörnsson, f. 23.
des. 1921, d. 8. mars 2009. Guð-
rún ólst upp í Túnbergi á Hellis-
sandi ásamt Auðuni og Magneu.
Börn Guðrúnar eru: Ari, f. 24.
júní 1956, d. 19. júní 1990. Faðir
hans var Ingólfur Árnason, f. 4.
des. 1921, d. 7. ágúst
1993. Með fyrri manni
sínum Emil Samúel
Richter, f. 26. jan.
1931, d. 8. jan. 2000,
átti hún fjögur börn:
1. Guðrún Perla, f. 21.
júlí 1960, d. 2. febr.
2014. 2. Þorsteinn, f.
20. maí 1962. 3. Valur,
f. 2. júní 1963; kona
hans er Teresa Maria
Wielgosz, f. 16. ágúst
1973. 4. Kristinn, f. 13. nóv. 1964;
kona hans er Sigríður María
Gísladóttir, f. 25. febr. 1967. Þau
Guðrún og Emil skildu. Seinni
maður Guðrúnar var Grétar
Birgis, f. 21. febr. 1929, d. 4. sept.
1981. Barnabörn Guðrúnar urðu
ellefu og barnabarnabörnin eru
orðin fimm.
Guðrún fluttist ung til Reykja-
víkur og starfaði hjá Land-
símanum. Guðrún lauk námi sem
sjúkraliði árið 1982 og vann í Há-
túni 10B, Hafnarbúðum og á
Landakotsspítala. Einnig vann
hún við póstútburð um tíma. Guð-
rún bjó lengst af í Reykjavík. Ár-
ið 2007 fluttist hún til Danmerkur
og settist að á Suður-Jótlandi þar
sem tveir sona hennar búa.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Ég kynntist Guðrúnu, eða Mor,
eins og við kölluðum hana, árið
1990, þegar við Kristinn, yngsti
sonur hennar, fórum að stinga sam-
an nefjum. Við áttum því samleið í
nærri 30 ár. Við höfum átt margar
góðar stundir saman, bæði í Garða-
stræti hjá henni, Jörfabakka hjá
okkur Kristni og síðar hér í Dan-
mörku. Mor var jú kjarnakona.
Líf hennar var ekki sérlega auð-
velt í byrjun, en sem einstæð móðir
kom hún samt fimm börnum til
manns með elju og vinnusemi. Hún
fór í sjúkraliðanám komin á miðjan
aldur, geri aðrir betur. Dugleg
hannyrðakona var hún, ein af ger-
semunum sem hún prjónaði er sá
fallegasti skírnarkjóll sem ég hef
augum litið. Ég held að öll barna-
börnin hafi verið skírð í honum og
að minnsta kosti tvö af langömmu-
börnunum. Guðrún var frábær
móðir, tengdamóðir, amma og
langamma. Við áttum margar góð-
ar stundir saman, það voru margar
pönnukökurnar og annað gott sem
Mor eða amma G eins og börnin
okkar kölluðu hana, bauð upp á
þegar við birtumst hjá henni í
Garðastræti. Oft var spilaður kani
og önnur afþreying, spjallað og
hlegið mikið. Mor var einstaklega
fyndin og stundum alveg óvart
komu þvílíkir gullmolar frá henni
sem seint gleymast. Við Kristinn og
börnin fluttum svo búferlum til
Danmerkur 2004 en það leið ekki
langur tími þar til Mor kom á eftir
okkur eða 2007.
Við öll söknum hennar mjög mik-
ið. Ég er einstaklega þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast þeirri eð-
alkonu sem hún var og að hafa feng-
ið að sinna henni síðustu vikurnar
og sérstaklega síðustu dagana sem
við höfðum hana hjá okkur. Megi
mín ástkæra tengdamóðir, Guðrún
María, Mor, amma G., Lilla, hvíla í
friði.
Ástarkveðja,
Sigríður María.
Þau systkinin mamma, Maggý,
Guðrún, Lilla eins og við kölluðum
hana alltaf, og Auðunn ólust upp í
Túnbergi á Hellissandi. Þau fóru öll
til Reykjavíkur á vit ævintýranna,
Auðunn í nám í Vélskóla Íslands,
mamma og Lilla í leit að vinnu. Á
Hellissandi var litla vinnu að hafa.
Lilla og mamma unnu báðar á
Landssímanum. Fróðlegt er að spá
í fjölda símstöðva sem voru á Ís-
landi á sinni tíð. Samkvæmt bók
Ásthildar G. Steinsen, Stelpurnar á
stöðinni 1901 – 1991 I og II, telst
mér til að þær hafi verið 118 talsins,
dreifðar um allt land. Afgreiðsla var
handvirk, samband gefið við núm-
er. Fylgst var með lengd símtala og
kallað „viðtalsbil“ eftir vissan tíma.
En viðtalsbil var tímaeining, notuð
fyrir langlínusamtöl og mörg við-
talsbil þýddi dýrt símtal.
Viðtalsbil kemur fyrir í hinu
fræga dægurlagi: Bella símamær:
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
er ekki alveg fædd í gær.
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
hún kann á flestum hlutum skil, og kallar:
viðtalsbil.
Fjöldi „stelpnanna“ sem unnu á
þessum símstöðvum var mikill.
Heimasími var ekki sjálfsagður um
miðja síðustu öld. Oft var hringt í
gegnum símstöðvar og fólk jafnvel
sótt heim til sín. Það þurfti því
margar Bellur til að sinna símstöðv-
unum. Við nútímafólkið, með far-
símana okkar, eigum kannski erfitt
með að ímynda okkur þessar að-
stæður og öll þau handtök og mann-
skap sem þurfti til að afgreiða sím-
töl.
Það var gaman að fara með Lillu
frænku í bæinn rétt fyrir jólin þeg-
ar ég var lítil. Við skoðuðum útstill-
ingargluggana í Liverpool á Lauga-
vegi og leikfangaúrvalið þar,
ljósaskiltið á Vogue-búðinni á
Skólavörðustíg, skærin sem opnuð-
ust og lokuðust og jólasveinana sem
hreyfðust í glugganum í Ramma-
gerðinni í Hafnarstræti. Fyrir litla
telpu var þetta mikið ævintýri og
töfrum líkast.
Á þessum tímum tíðkaðist að
sauma upp úr gömlum flíkum. Ég
eignaðist forláta kápu sem var
saumuð upp úr gamalli kápu af
mömmu og sem hafði verið vent
eins og það var kallað. Mamma og
Lilla lögðu þar báðar hönd á plóg og
nýja kápan var virkilega flott.
Lilla var mjög handlagin, prjón-
aði, saumaði út og hafði fallega rit-
hönd. Á þessum tíma söng Lilla í
kór og spilaði á gítar, örugglega
Bella símamær.
Guðrún var hógvær í allri fram-
komu og nægjusöm. Hún var mjög
falleg kona og sést það glöggt á
myndum sem til eru af henni frá
ýmsum tímum.
Ég hitti hana síðast dagpart árið
2018, á heimili Kristins og Siggu
Maju á S – Jótlandi þar sem þau
tóku afskaplega vel á móti okkur.
Þá var Elli kerling farin að taka
sinn toll. Lilla var orðin mjög mög-
ur og átti erfitt með að muna at-
burði og fólk en hafði mjög gaman
af því að skoða gamlar myndir frá
Hellissandi. Það var ánægjulegt að
fá þetta tækifæri til að hitta hana og
fyrir það er ég þakklát.
Gerður Guðmundsdóttir.
Guðrún María Þórdís
Snæbjörnsdóttir