Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
70 ára Sigurður er
fæddur og uppalinn
í Reykjavík og býr í
Mosfellsbæ. Hann
er fyrrverandi sölu-
og markaðsstjóri.
Maki: Ólöf Skúla-
dóttir, f. 1947, fyrr-
verandi ríkisstarfsmaður.
Börn: Skúli Örn, f. 1975, og Lára
Gró Blöndal, f. 1978. Áður átti Ólöf
Brynju, f. 1964. Barnabörnin eru
sjö.
Foreldrar: Guðmundur Guðmund-
arson, f. 1920, d. 2009, heildsali,
og Gróa Helgadóttir, f. 1917, d.
1988, píanókennari og húsmóðir.
Sigurður Ingi Blöndal
Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt verkið virðist erfitt skaltu ekki
bakka. Lífið gengur sinn vanagang. Allt of
oft sættum við okkur við hluti sem eru ekki
nógu góðir, breytum þessu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú færð hugmynd að því hvernig
mögulegt er að treysta fjárhagslega fram-
tíð þína. Ýmis ljón eru á veginum en þú
munt yfirstíga hindranir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú leggur þig fram við að leysa
vandamál í sambandinu. Ástin sigrar allt.
Sumir lyfta ekki litla fingri heima fyrir, því
þarf að breyta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki er ósennilegt að þú lendir í úti-
stöðum við einhvern í dag. Enginn er full-
kominn og heimurinn ferst ekki þótt eitt-
hvað þurfi að bíða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nýr félagsskapur eða tengsl munu
koma þér að gagni um ókomna tíð. Hugsun
þín er í hálfgerðri móðu núna, skiljanlegt í
ljósi aðstæðna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nánustu sambönd þín ganga betur
en þau hafa gert í langan tíma. Einhver fell-
ur af stallinum sem þú hafðir viðkomandi á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að vera ekki of smámuna-
samur/söm. Það nennir enginn að vera ná-
lægt þér ef þú heldur uppteknum hætti. Þú
gengur með fyrirtæki í maganum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Varastu að taka allt trúanlegt
sem þér er sagt um aðra. Gefðu þér tíma til
að skoða tilfinningar þínar og það sem þú
glímir við.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er rétti tíminn til þess að
ganga frá samningum. Láttu neikvæðni
annarra ekki draga úr þér því þú veist hvað
þú þarft að gera.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú leggur þig fram við að gera
heimili þitt huggulegra á næstunni. Ein-
beittu þér að fjölskyldunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er sannleikskorn í því að
hálfnað er verk þá hafið er. Ævintýrin halda
áfram að elta þig og þú munt fara í
skemmtilega reisu fljótlega á næsta ári.
19. feb. - 20. mars
FiskarMundu að hafa gaman. Börn eru
einkar einlæg og samband við þau er sér-
staklega gefandi. Þú færð grænt ljós á
framkvæmdir.
tímarit og gefið út nokkrar bækur.
Þá hefur hún hlotið marga innlenda
og erlenda samkeppnisstyrki til vís-
indastarfa, m.a. frá sænsku og
norsku vísindaráðunum.
Guðrún hefur mikinn áhuga á öllu
sem tengist heilsu og líðan barna og
foreldra þeirra og hefur unnið að því
að bæta þekkingu til að geta betur
sinnt þörfum þeirra og hefur í því
samhengi unnið að úrbótum í þeim
efnum og tók m.a. þátt í að stofna
Umhyggju, félag til stuðnings veik-
um börnum og foreldrum þeirra, var
í stjórn í nokkur ár. Hún er einn af
stofnendum fagdeildar barnahjúkr-
unarfræðinga í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga og sat í stjórn
þess um alllangt skeið og vann þar
m.a. að stofnun Rjóðursins sem er
hjúkrunar- og hvíldarheimili fyrir
langveik og fjölfötluð börn.
Guðrún hefur verið virk í starfi
KFUM og KFUK og starfað mikið
sem sjálfboðaliði í stjórnum þeirra
félaga á Íslandi og sérstaklega í
prófessor við Dalhouse-háskólann í
Nýja Skotlandi í Kanada og áður við
University of North Carolina, Cha-
pel Hill í Bandaríkjunum þar sem
fjölskyldan hefur tíðum dvalið.
Guðrún hefur skrifað fjölda vís-
indagreina í virt alþjóðleg og innlend
G
uðrún Kristjánsdóttir
fæddist 6. desember
1959 í Sigurhæðum,
gamla prestssetrinu í
Ólafsfirði, og bjó þar til
fimm ára aldurs. Hún var svo eitt ár
í Reykjavík, á Öldugötu, og fór það-
an sex ára til Uppsala í Svíþjóð og
bjó þar til 16 ára aldurs.
Guðrún var í grunnskóla í Upp-
sölum, Kvangärdets skola, Nanna
skola, Heidenstamsskolan og svo í
Menntaskólanum í Reykjavík og
varð stúdent 1979. Hún nam eitt
misseri við Johannelunds teologiska
högskola í Uppsölum og lauk undir-
búningsnámi í siðfræði, og trúar- og
lífsskoðunarfræðum, lauk BS í
hjúkrunarfræði frá HÍ 1983, MSc
1986 og sérfræðinámi í Barna- og
fjölskylduhjúkrun frá Boston Uni-
versity og Boston Children’s Hospit-
al, Shriners Hospital og Brigham
and Women’s Hospital í Boston í
Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi
frá Norræna Heilbrigðisháskólanum
í Gautaborg í Svíþjóð 1996.
Guðrún hefur starfað sem hjúkr-
unarfræðingur í Boston og við Land-
spítalann og sérstaklega Barnaspít-
ala Hringsins og síðan 2005 sem
forstöðumaður fræðasviðs barna-
hjúkrunar. Hún var ráðin lektor í
barnahjúkrun við námsbraut í
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
1986, síðan dósent og árið 2000 pró-
fessor og varð þá fyrsti prófessorinn
í hjúkrunarfræði við HÍ.
Guðrún starfaði sem ritstjóri nor-
ræna vísindatímaritsins The Nordic
Journal of Nursing Research (Vård i
Norden) um sjö ára skeið og hefur
setið á ritstjórnum nokkurra fag- og
vísindatímarita. Hún hefur einnig
ritrýnt fjölda vísindagreina í tímarit-
um um rannsóknir í hjúkrunarfræði
og i öðrum heilbrigðisvísindum. Hún
hefur verið andmælandi við doktors-
varnir í nokkrum háskólum á Norð-
urlöndum og verið í rannsókna-
samstarfi við fræðimenn víða um
heim.
Guðrún er gestaprófessor við Há-
skólann í Lundi í Svíþjóð og tengdur
sumarbúðunum í Vindáshlíð í Kjós.
Á árum áður var hún virk í æsku-
lýðsstarfi innan sænsku kirkjunnar
og síðar Íslensku þjóðkirkjunni og
fór m.a. sem æskulýðsfulltrúi henn-
ar á Lúterska heimssambandsþingið
í Búdapest sumarið 1984.
Körfuboltinn var á yngri árum
mikið áhuga mál og varð hún nokkr-
um sinnum Íslands- og Reykjavík-
urmeistari með KR. Guðrún hefur
mikið gengið á fjöll og hefur unun af
útivist en einnig tónlist. Hún lærði á
þverflautu til grunnprófs við Komm-
unala musikskolan í Uppsölum á ár-
unum 1967-1975 og spilaði í blást-
urssveit og í sinfóníuhljómsveit
skólans í fjögur ár.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Rúnar
Vilhjálmsson, f. 14.12. 1958, prófess-
or í félagsfræði. Þau eru búsett í
Vesturbænum í Reykjavík. For-
eldrar hans eru hjónin Vilhjálmur
Einarsson, fv. skólastjóri, f. 1934, og
Guðrún Kristjánsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur og prófessor í hjúkrunarfræði – 60 ára
Fjölskyldan Guðrún og Rúnar ásamt börnum sínum, tengdabörnum, barnabörnum og Kristjáni Búasyni, föður
Guðrúnar, í tilefni af 30 ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna fyrir tveimur árum.
Fyrsti prófessorinn í hjúkrunar-
fræði við HÍ árið 2000
Deildarforseti HÍ Guðrún að út-
skrifa fyrsta íslenska doktorinn í
ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands,
en útskriftin fór fram árið 2009.
50 ára Sigrún er
fædd og uppalin í
Kópavogi en býr í
Ólafsvík. Hún er
stuðningsfulltrúi í
grunnskólanum í
Ólafsvík. Sigrún er í
Soroptimistafélagi
Snæfellsbæjar.
Maki: Hjörtur Ragnarsson, f. 1968, sjó-
maður frá Rifi.
Börn: Rakel Sunna, f. 1996, Selma Mar-
ín, f. 1999, og Eyrún Embla, f. 2005.
Foreldrar: Petrína Haraldsdóttir, f. 1948,
húsmóðir, og Þórður Kristjánsson, f.
1944, fyrirverandi lagerstarfsmaður. Þau
eru búsett í Kópavogi.
Sigrún
Þórðardóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í