Morgunblaðið - 06.12.2019, Síða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Sundkappinn Anton Sveinn
McKee hefur farið mikinn á EM í
sundi í 25 metra laug sem fram fer í
Glasgow í Skotlandi þessa dagana.
Anton kom fjórði í mark í 200 metra
bringusundi í gær á tímanum 2:02,94
mínútur og var Íslendingurinn ein-
ungis sjö hundraðshlutum úr sek-
úndu á eftir Þjóðverjanum Marco
Koch sem hafnaði í þriðja sæti. Ant-
on Sveinn setti hins vegar nýtt Ís-
landsmet með tíma sínum í úr-
slitasundinu og bætti þar með
Íslandsmetið sem hann hafði sett um
morguninn í undanrásum í 200
metra bringusundi. Þetta var fimmta
Íslandsmetið sem hann setur á EM
en á miðvikudaginn þríbætti hann Ís-
landsmetið í 50 metra bringusundi.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir
hafnaði í 34. sæti í 100 metra skrið-
sundi á EM í sundi í 25 metra laug
sem fram fór Glasgow í Skotlandi í
gær. Snæfríður synti á tímanum
55,25 sekúndur sem dugði ekki til
þess að komast áfram í undanúrslit.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir hafn-
aði í 47. sæti á tímanum 56,03 sek-
úndur. Þá keppti Jóhanna Elín einnig
í 50 metra flugsundi í gær og hafnaði
hún í 27. sæti. Kristinn Þórarinsson
hafnaði svo í 50. sæti af 62 kepp-
endum í 100 metra baksundi.
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
Jónsdóttir er í 56.-67. sæti á fjórum
höggum yfir pari eftir fyrsta hring
sinn á lokamóti Evrópumótarað-
arinnar sem fram fer á Vipingo
Ridge-vellinum í Kenía. Valdís byrjaði
afar vel og var á samtals þremur
höggum undir pari eftir fyrstu ellefu
holurnar. Þá fór að halla undan fæti
og fékk hún þrjá tvöfalda skolla og
tvo skolla á síðustu sjö brautunum
og lék á samtals 76 höggum. Valdís
er níu höggum á eftir Juliu Engström
frá Svíþjóð sem er í fyrsta sætinu á
fimm höggum undir pari.
Úrvalsdeildarlið Stjörnunnar,
Tindastóls og Vals tryggðu sér öll
sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni
karla í körfuknattleik, Geysisbikars-
ins, í gær. Stjarnan vann stórsigur
gegn Reyni Sandgerði í Garðabæ,
123:59, og Tindastóll lagði Álftanes á
Sauðárkróki, 91:55. Þá lögðu Vals-
menn Breiðablik að velli á Hlíð-
arenda, 97:81, í spennandi leik.
Pólskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að Ísland myndi mæta Póllandi í
vináttulandsleik karla í knattspyrnu í
Poznan 9. júní næsta sumar. Ef Ís-
land kemst á EM 2020 fer þessi leik-
ur fram viku áður en liðið myndi
mæta Portúgal í fyrsta leiknum í
Búdapest.
Brighton gerði sér lítið fyrir og
vann Arsenal 2:1 á útivelli í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Neal Maupay skoraði sig-
urmarkið á 80. mínútu en áður hafði
Adam Webster komið Brighton yfir
og Alexandre Lacazette jafnað fyrir
Arsenal. Þá vann Newcastle góðan
útisigur á Sheffield United, 2:0.
Enska knattspyrnufélagið Everton
skýrði frá því í gærkvöld að knatt-
spyrnustjóranum Marco Silva hefði
verið sagt upp störfum. Kornið sem
fyllti mælinn var 5:2 tap Gylfa Þórs
Sigurðssonar og félaga gegn Liver-
pool í fyrrakvöld. David Moyes, sem
stýrði Everton í ellefu ár, hefur verið
orðaður við endurkomu á Goodison
Park.
Norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik, undir stjórn Þóris Her-
geirssonar, vann Angóla 30:24 í loka-
keppni heimsmeistaramótsins í
Japan í gær og hefur unnið alla fjóra
leiki sína. Emile Arntzen var marka-
hæst með 6 mörk. Norðmenn mæta
Hollandi í lokaumferð riðlakeppn-
innar í dag en bæði lið eru komin
áfram og fara saman í milliriðil þann-
ig að leikurinn hefur mikla þýðingu
fyrir framhaldið hjá báðum. Holland
burstaði Serbíu, 36:23, í gær.
Eitt
ogannað
AFREKSSJÓÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Afrekssjóður ÍSÍ úthlutaði 452,9
milljónum til sérsambanda á þessu
ári og hækkaði upphæðin um lið-
lega 114 milljónir á milli ára. Um-
hverfi Afrekssjóðs tók stakkaskipt-
um árið 2016 þegar ákveðið var að
setja mun meira fjármagn frá rík-
inu í sjóðinn.
Framlag ríkisins er 400 milljónir
og hefur hækkað á hverju ári síðan
2016 eins og lagt var upp með.
Einnig kemur fjármagn frá Ís-
lenskri getspá til Afrekssjóðs.
27 sérsambönd ÍSÍ hlutu styrk
vegna verkefna á árinu og er heild-
arkostnaður verkefna þeirra tæpar
1.350 milljónir króna samkvæmt
ársskýrslu sjóðsins.
Afrekssjóður ÍSÍ styrkir að með-
altali um þriðjung kostnaðar við af-
reksstarfið en sérsamböndin öfluðu
tekna fyrir um tvo þriðju upphæð-
arinnar.
HSÍ fékk langmest
Handknattleikssamband Íslands
fékk mest fjármagn úr Afrekssjóði
ÍSÍ á árinu sem senn er á enda.
HSÍ fékk tæpar 68 milljónir á
árinu og fékk umtalsvert meira en
þau sérsambönd sem næst koma.
Fimleikasambandið fékk næstmest
eða 46,5 milljónir. Körfuknattleiks-
sambandið fékk tæpar 44 milljónir
og Frjálsíþróttasambandið rúma
41 milljón.
Upphæðirnar frá ríkinu eru allt
aðrar en fyrir 2016. Sé farið sjö ár
aftur í tímann þá fékk Afreks-
sjóður ÍSÍ tæpar 35 milljónir á
fjárlögum 2012. Nú fá sex sér-
sambönd meira en 35 milljónir úr
Afrekssjóði fyrir starfsemina árið
2019.
Fram kemur í skýrslunni að
áætlað sé að úthluta sömu heildar-
upphæð á næsta ári og gert var í ár
eða 450 milljónum. Opnað hefur
verið fyrir umsóknir fyrir árið 2020
en sérsamböndin þurfa að senda
ítarlegar upplýsingar til ÍSÍ í
tengslum við úthlutun. Fram kem-
ur í skýrslunni að í fyrra hafi ÍSÍ
farið að kalla eftir ýmsum upplýs-
ingum frá sérsamböndunum. Má
þar nefna lykiltölur um þátttöku,
umfang verkefna, aldur og kynja-
skiptingu og fleira.
Skipt í þrjá flokka
Starfsemi Afrekssjóðsins og
áherslur eru í takti við niðurstöður
nefndar sem skilaði af sér skýrslu
og tillögum í mars 2017. Nefndin
var sett á laggirnar vegna þess
aukna framlags sem ákveðið var að
setja í sjóðinn árið 2016.
Sérsamböndunum er skipt í þrjá
afreksflokka: A/Afrekssérsambönd,
B/Alþjóðleg sérsambönd og C/
Þróunarsérsambönd. Átta sér-
sambönd eru í A-flokki árið 2019.
Auk þeirra fjögurra sem mest
fengu og voru nefnd hér að framan
eru það einnig Sundsambandið,
Golfsambandið, Íþróttasamband
fatlaðra og Knattspyrnusambandið.
KSÍ fær ekki úthlutað úr Afreks-
sjóði þar sem sambandið er sjálf-
bært en svo kann einnig að vera að
KSÍ hafi ekki sótt um styrk úr Af-
rekssjóði að þessu sinni. Nefndin
lagði til árið 2017 að sérsambönd
sem væru sjálfbær myndu ekki fá
úthlutað úr Afrekssjóði þar sem
megnið er opinbert fé. KSÍ var eina
sjálfbæra sambandið að mati nefnd-
arinnar en þar var nefnt að GSÍ og
ÍF gætu fallið undir þá skilgrein-
ingu í framtíðinni.
Kostnaður jókst á milli ára
Ef skoðaður er kostnaður þeirra
sambanda sem eru í flokkunum
þremur eru upphæðirnar á þessa
leið: Kostnaður Afrekssérsam-
banda var tæpar 876 milljónir en
þar er KSÍ ekki talið með. Kostn-
aður Alþjóðlegra sérsambanda var
tæpar 370 milljónir. Kostnaður
Þróunarsérsambanda var 104 millj-
ónir. Heildarkostnaður sér-
sambanda að frátöldu Knattspyrnu-
sambandinu hækkaði um liðlega
15% á milli áranna 2018 og 2019.
Rétt er að taka fram að kostnaður
getur verið mjög breytilegur á milli
ára þegar kemur að afreksíþrótt-
um. Stórmót eins og Ólympíuleikar,
Paralympics, heimsmeistaramót og
Evrópumót hafa þar mikið að segja.
Lítil átök um fyrirkomulagið
Í skýrslunni segir að „góð sátt sé
um fyrirkomulagið“ eins og það sé
og breytingarnar á reglugerðinni
frá 2017 hafi gengið vel.
Styrkir úr Afrekssjóði ÍSÍ til sérsambanda
Sérsamband Úthlutun 2018* Alls 2019 **
BLÍ Blaksamband Íslands 10.077.681 11.800.000
BSÍ Badmintonsamband Íslands 9.623.554 11.600.000
BTÍ Borðtennissamband Íslands 1.350.000 2.200.000
DSÍ Dansíþróttasamband Íslands 6.653.602 8.900.000
FRÍ Frjálsíþróttasamband Íslands 27.700.000 41.400.000
FSÍ Fimleikasamband Íslands 36.000.000 46.500.000
GSÍ Golfsamband Íslands 27.350.000 37.900.000
HRÍ Hjólreiðasamband Íslands 1.250.000 3.600.000
HSÍ Handknattleikssamband Íslands 51.600.000 67.900.000
ÍF Íþróttasamband fatlaðra 20.149.338 30.300.000
ÍHÍ Íshokkísamband Íslands 9.200.000 12.600.000
ÍSS Skautasamband Íslands 1.450.000 1.500.000
JSÍ Júdósamband Íslands 6.763.426 9.500.000
KAÍ Karatesamband Íslands 4.724.170 6.700.000
KKÍ Körfuknattleikssamband Íslands 36.777.770 43.900.000
KLÍ Keilusamband Íslands 4.478.912 7.500.000
KRA Kraftlyftingasamband Íslands 13.433.697 15.600.000
KSÍ Knattspyrnusamband Íslands 0 0
LH Landssamband hestamannafélaga 3.550.000 7.300.000
LSÍ Lyftingasamband Íslands 1.750.000 2.000.000
SÍL Siglingasamband Íslands 523.650 1.000.000
SKÍ Skíðasamband Íslands 18.250.000 19.000.000
SKY Skylmingasamband Íslands 7.200.000 9.500.000
SSÍ Sundsamband Íslands 26.860.397 37.600.000
STÍ Skotíþróttasamband Íslands 8.878.375 10.700.000
TKÍ Taekwondosamband Íslands 1.351.195 2.300.000
TSÍ Tennissamband Íslands 1.307.480 2.300.000
ÞRÍ Þríþrautarsamband Íslands 1.028.159 1.800.000
Samtals 339.281.406 452.900.000
*Fyrirvarar eru í samningum og kröfur um að styrkir séu nýttir í ákveðin verkefni. Þegar uppgjör verkefna ársins
liggja fyrir kemur í ljós hvort hluti styrkveitinga verður felldur niður eða hvort öll upphæðin komi til greiðslu.
**Staða ársins miðað við 22. nóvember 2019 en felldir hafa verið niður styrkir að upphæð 10.018.594 til sérsam-
banda af þeirri upphæð sem var úthlutað til þeirra vegna verkefna ársins 2018. Eru niðurfellingar vegna þess að
ekki var farið í verkefni sérsambanda eða umfang þeirra var minna en í áætlunum.
Áætlað að úthluta aftur
450 milljónum 2020
Handknattleikssambandið fékk hæstu upphæð úr Afrekssjóði ÍSÍ
Framlög úr Afrekssjóði eru um þriðjungur tekna sérsambandanna innan ÍSÍ
Morgunblaðið/Eggert
Reynd Karen Knútsdóttir er leikstjórnandi handboltalandsliðsins.
Morgunblaðið/Ómar
Tókýó Anton Sveinn McKee er kominn inn á næstu Ólympíuleika.