Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 36
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
„Kórinn er orðinn rúmlega 20 ára
gamall og hefur ekki gefið út plötu
áður og okkur fannst tímabært að
búa til svona minningu,“ segir Ey-
rún Jónasdóttir, stjórnandi Vörðu-
kórsins sem sendi nýverið frá sér
hljómdiskinn Bara að hann hangi
þurr en það er Fermata hljóðritun
sem gefur út.
Vörðukórinn er blandaður kór
sem samanstendur af félögum frá
Suðurlandi og spurð segir Eyrún að
þema plötunnar eigi sterka skír-
skotun í þá staðreynd. „Okkur lang-
aði að gera eitthvað með tengingu í
okkar svæði. Það eru meðal annars
tvö lög eftir Árnesinga,“ segir Ey-
rún og bendir á að textar við tvö lög
á plötunni séu samdir af kórfélögum.
„Svo tengist þetta svolítið okkar
störfum og lífi.“
Æfa í uppsveitum Árnessýslu
Nokkuð langt ferli er að baki
plötunni en fyrstu upptökur fóru
fram í mars 2017. „Við tókum þetta
upp í þremur lotum á þremur árum.
Það er mín reynsla að við upptökur
fer mikil vinna í gang og það þarf að
undirbúa lögin mjög vel. Með þetta
í huga er farið í upptökur og þá er
alveg nóg að taka upp sex lög á ein-
um degi,“ segir Eyrún en 17 lög eru
á plötunni.
Kórinn æfir einu sinni í viku yfir
vetrartímann og má segja að æf-
ingatímabilinu sé stjórnað af sauð-
burði og réttum. „Við hefjum æf-
ingar á haustin eftir réttir, það er
óskrifuð regla. Það er yfirleitt um
miðjan eða í kringum 20 september
og æfum við út apríl og þá er ein-
mitt að byrja sauðburður hjá flest-
um.“
Flestir kórfélagar búa í Árnes-
sýslu, bæði uppsveitum hennar og á
Selfossi. „Síðustu ár hafa bæst við
nokkrir Rangæingar svo þetta er
aðeins að dreifast meira,“ segir Ey-
rún en æfingar fara fram til skiptis
á Flúðum, Árnesi og í Brautarholti.
Þar sem hjartað slær
Eins og áður sagði mótast þema
plötunnar af lífi og störfum kór-
félaga og þar er titillagið engin
undantekning. Bændur glíma oft
við veðrið og vona alla jafna „að
hann hangi þurr“ þegar heyskapur
er stundaður. „Svo ef hlustað er á
textann þá er, þegar líður á lagið,
svolítið grín í þessu líka. Að kallinn
hangi þurr þegar hann er búinn að
fá útborgað. En auðvitað er það hitt
sem skiptir mestu máli,“ segir Ey-
rún og hlær.
Hún segir marga bændur í kórn-
um. „Og fólk sem er uppalið á þessu
svæði þar sem hjartað slær á þess-
um vígstöðvum.“
Vörðukórinn á Suðurlandi hefur
gefið frá sér sína fyrstu hljómplötu
Tengja plötuna við sitt heimasvæði
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stjórnandinn „Við hefjum æfingar á haustin eftir réttir, það er óskrifuð regla,“ segir Eyrún Jónsdóttir.
Sauðburður
og réttir ráða
Kórinn Vörðukórinn hefur gefið út sína fyrstu plötu sem tekin var upp í þremur lotum frá vori 2017. Flestir kór-
félagar búa í Árnessýslu, bæði uppsveitum sýslunnar og á Selfossi, og þar á meðal eru allmargir bændur.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mest seldu fjórhjól
á Íslandi síðastliðin 4 ár!
Verð frá
1.480.000
með vsk.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is