Morgunblaðið - 06.12.2019, Page 40
Reynir Hauksson flamenco-
gítarleikari sem búsettur er á Spáni
er um þessar mundir á landinu og
kynnir á röð tónleika sína fyrstu
sólóplötu sem jafnframt er fyrsta ís-
lenska flamenco-platan en á henni
eru átta frumsamin lög. Reynir kem-
ur fram í Vinaminni á Akranesi í
kvöld og í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar annað kvöld. Hefjast hvorir
tveggja tónleikarnir kl. 20.
Kynnir nýja plötu sína
með flamenco-tónlist
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Umhverfi Afrekssjóðs ÍSÍ tók
stakkaskiptum árið 2016 þegar
ákveðið var að setja mun meira
fjármagn frá íslenska ríkinu í sjóð-
inn. Alls úthlutaði Afrekssjóður ÍSÍ
452,9 milljónum króna til sér-
sambanda á árinu 2019 og hækkaði
upphæðin um liðlega 114 milljónir
króna á milli ára en alls hlutu 27
sérsambönd ÍSÍ styrk á árinu. »34
Styrkir úr Afrekssjóði
ÍSÍ hækkað frá 2016
ÍÞRÓTTIR MENNING
Glitrandi miðbær – Jólahátíð er
yfirskrift tónleika sem Hólmfríður
Jóhannesdóttir mezzósópran,
Victoria Tarevskaia sellóleikari og
Julian Hewlett píanóleikari halda
í Dómkirkjunni í Reykjavík á
morgun, laugardag, klukkan 17.
Á tónleikunum, sem standa í
um fimmtíu mínútur,
flytja þau aríu úr
Jólaóratoríunni eft-
ir J.S. Bach auk ís-
lenskra og banda-
rískra jólalaga.
Þríeykið hefur
á síðustu árum
komið fram á
fjölda tón-
leika hér-
lendis.
Jólalög og aría eftir
Bach í Dómkirkjunni
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sérkennarinn Kristín Arnardóttir
hefur tekið saman og gefið út náms-
efnið „Lærum saman“ ætlað fyrir
fimm til átta ára börn að vinna með
aðstoð fullorðinna heima og eða í
skóla. Í handhægri öskju eru fjórar
sögubækur með myndum eftir
Brimrúnu Birtu Friðþjófsdóttur,
verkefnabók og námsspil í fjórum
spilastokkum. Kaupendur pakkans
fá auk þess aðgang að 56 mynd-
skreyttum hljóðbókum, sem verða
fljótlega aðgengilegar á vef útgef-
enda (laerumsaman.is og steinn.is).
„Útgáfan er ástríða til þess að
láta gott af sér leiða,“ segir Kristín,
sem hefur starfað sem sérkennari í
grunnskóla um árabil, en nýja
námsefnið er sjálfstætt framhald af
fyrri handbókum hennar, Ég get
lesið og Tölur og stærðir í leik og
starfi, sem komu út 2007 og 2011 og
eru ætlaðar fullorðnum.
Eftir að hafa fengið styrk frá
Þróunarsjóði námsgagna og Hag-
þenki fyrir um þremur árum hófst
vinna Kristínar við ritun efnisins.
Hún segist hafa kynnst því hvað
mörg börn komi óundirbúin í skól-
ann og það hafi ýtt undir gerð
námsefnisins. „Ég hef oft óskað
þess að foreldrar kynnu betur að
leika sér að tungumálinu og tölum
og glæða áhugann.“ Hún bætir við
að margt hafi breyst í skólastarfi
með fjölgun nýbúa og að í Kópa-
vogsskóla, þar sem hún starfi, séu
um 40% nemenda í yngstu bekkj-
unum af erlendum uppruna.
Undirstöðuþættir og tenging
Sögubækurnar, sem mynda
grunninn að nýja námsefninu, fjalla
um þrjú systkini á aldrinum fimm
til átta ára. Í verkefnabókinni eru
síðan æfingar, föndur, leikir og spil
fyrir barnið. Í verkefnabókinni og
spilunum eru til dæmis sömu stafa-
bangsar og voru í fyrri bókum
Kristínar. „Þetta er tilvalið efni fyr-
ir elstu hópana í leikskólanum, svo-
nefnda skólahópa, og fyrsta og ann-
an bekk í grunnskólanum,“ segir
Kristín og bendir á að í lok hverrar
sögu í bókunum sé orðsending til
barnanna um eitthvað sem þau geta
gert til þess að æfa sig. „Öll gögnin
tengjast, sögurnar eru kveikjur til
að vekja áhuga og upplýsa, og síðan
er farið í vinnu.“
Hjónin Kristín og Steinn Kárason
gefa sjálf út bækurnar. Sindri
Freyr, sonur þeirra, sér um hljóð-
bækurnar, styðst við teikningar
Brimrúnar Birtu, semur tónlistina
og les inn á myndböndin. Kristín
bendir á að bækurnar séu ekki
lestrarbækur heldur bækur til þess
að lesa fyrir börn. „Myndböndin eru
hugsuð til þess að halda einbeitingu
og athygli barnanna enn frekar.
Þetta styður hvað við annað.“
Kristín leggur áherslu á að pakk-
inn sé fyrst og fremst hugsaður sem
undirbúningur fyrir nám í grunn-
skóla og stuðningur við námið í
fyrstu bekkjum hans. „Ég beini at-
hyglinni að undirstöðuþáttunum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útgáfa Sérkennarinn Kristín Arnardóttir í Kópavogi með kennsluefnið sem er í nýja pakkanum.
Vill láta gott af sér leiða
Kristín Arnardóttir með námsefnið Lærum saman fyrir
börn og fullorðna Sögur til að vekja áhuga og upplýsa
ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS
Heppinn
áskrifandi
hlýtur
að gjöf
Hästens
HERLEWING®
handgert rúm úr
náttúrulegum efnum
að verðmæti 3.225.900 kr.
Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir
góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum
Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum
hæðum eftir að við drögum í áskriftar-
leiknum okkar föstudaginn 20. desember.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að
vinna saman að því að gefa einum heppnum
áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm
frá Hästens.
Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í
Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak.
KAUPTU
ÁSKRIFT
Í SÍMA 569 11
00