Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Sóttvarnalæknir er andvígur áform-
um umhverfisráðherra um að af-
nema starfsleyfi og skráning-
arskyldu fyrir brennur,
almenningssalerni, daggæslu í
heimahúsum og gæludýraverslanir.
Frumvarp ráðherrans um breyt-
ingar á lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir, þar sem þessi
stefna er mörkuð, er nú til umfjöll-
unar á Alþingi og hafa athugasemd-
ir sóttvarnalækn-
is við það fyrir
hönd embættis
landlæknis verið
birtar á vef
þingsins. Fram
kemur að sótt-
varnalæknir er
ósammála mati
ráðuneytisins um
mörg atriði í
frumvarpinu.
Varðandi
brennur bendir sóttvarnalæknir á
að mönnum hafi á undanförnum
misserum orðið æ betur ljós sú
hætta sem fólki, einkum með und-
irliggjandi heilsufarsvandamál, stafi
af loftmengun af völdum bruna.
Starfshópur þriggja ráðuneyta vinni
að tillögum um hvernig draga megi
úr þessari mengun um áramót, þeg-
ar hún er mest, og sé líklegt að
hann leggi til ýmiss konar takmark-
anir til að minnka áhættu fyrir
heilsu almennings. Það skjóti
skökku við að fella niður leyf-
isskyldu á sama tíma og megi telja
líklegt að það geti leitt til aukinnar
og hættulegri mengunar vegna
mögulegra breytinga á því efni sem
brennt er, stærð brennanna og stað-
setningu þeirra frá íbúabyggð.
Hefta þarf útbreiðslu sýkla
Þá segir sóttvarnalæknir að
hreinlæti á almenningssalernum á
fjölförnum stöðum sé gríðarlega
mikilvægt til að hefta útbreiðslu
allra sýkla. Bendir hann á að fyrir
tveimur árum hafi starfshópur heil-
brigðisráðherra lagt fram tillögur til
að sporna við útbreiðslu sýkla-
lyfjaónæmis og þar hafi sérstaklega
verið hvatt til þess að bæta hrein-
lætisaðstöðu á ferðamannastöðum.
Mikilvægi hreinlætis
Enn fremur segir sóttvarnalækn-
ir að mikilvægt sé að allur aðbún-
aður og hreinlætisaðstaða í dag-
gæslu í heimahúsum sé eins góður
og völ er á. Börn séu á fyrstu mán-
uðum ævinnar viðkvæm fyrir alls
konar sýkingum sem geti reynst
þeim erfiðari en eldra fólki.
Loks segir í umsögn sóttvarna-
læknis að í vestrænum samfélögum
sé vaxandi hætta á dreifingu ýmissa
smitsjúkdóma milli manna og dýra.
Gæludýrabúðir hér á landi selji í
mörgum tilfellum dýr sem hingað
hafi verið flutt frá framandi löndum
og geti borið með sér ýmsa smit-
sjúkdóma. Aðbúnaður og hreinlæt-
isaðstaða þessara dýra í gælu-
dýrabúðum séu mikilvæg til að
koma í veg fyrir útbreiðslu sýkinga.
Fyrsta umræða um frumvarpið
var 3. desember og að henni lokinni
var því vísað til umfjöllunar í um-
hverfis- og samgöngunefnd Alþingis
þar sem það er nú.
Hörð ádeila á stjórnarfrumvarp
Sóttvarnalæknir gagnrýnir áform um niðurfellingu ýmissa starfsleyfa og afnám skráningarskyldu
Afleiðingin gæti orðið meiri mengun og aukin útbreiðsla sýkla, sýkinga og ýmissa smitsjúkdóma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrettándabrenna Sóttvarnalæknir er undrandi á því að brennur eigi ekki að vera leyfis- og skráningarskyldar.
Þórólfur
Guðnason
Salerni Hreinlæti er mikilvægt til
að hefta útbreiðslu sýkla.
Megintilgangur breytinga á lög-
um um hollustuhætti og meng-
unarvarnir er einföldun reglu-
verks með því að fækka
flokkum starfsemi sem er
starfsleyfis- eða skráning-
arskyld. Er þetta gert með hlið-
sjón af stefnu ríkisstjórnarinnar
um einföldun regluverks í þágu
almennings og atvinnulífs að
því er Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra
sagði við fyrstu umræðu frum-
varpins á Alþingi 3. desember.
Samkvæmt frumvarpinu mun
41 flokkur starfsemi sem nú er
starfleyfis- eða skráningarskyld
ekki vera það lengur.
„Við mat á því hvort starf-
semi skuli vera háð starfsleyfi
eða skráningu var byggt á
áhættumati af viðkomandi
starfsemi. Þannig er lagt til að
sú starfsemi sem skorar hátt í
áhættumati verði áfram starfs-
leyfis- eða skráningarskyld en
sú starfsemi sem skorar lágt
verði ekki háð starfsleyfis- eða
skráningarskyldu,“ sagði Guð-
mundur Ingi.
Vill einfalda
regluverkið
UMHVERFISRÁÐHERRA
Morgunblaðið/Ómar
Regluverk Deilt er um áform ráð-
herrans að einfalda kerfið.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Innbrotsþjófur hefur herjað á fjölda
bygginga Háskóla Íslands síðustu
þrjá mánuði, brotið þar upp hurðir og
glugga, brotist inn á skrifstofur
starfsfólks og stolið nýjum fartölvum,
flökkurum og myndavélum. Þetta
staðfestir Björn Magnússon, deildar-
stjóri rekstrar fasteigna HÍ, í samtali
við Morgunblaðið en tilkynning um
innbrotin var send starfsfólki og
nemendun skólans í vikunni.
Einn grunaður í málinu
Rannsóknarlögreglan sem sér um
málið hefur að sögn Björns einn
grunaðan um innbrotin og sjálfur
hefur hann grun um að þjófurinn hafi
verið einn að verki.
Segir hann þjófinn hafa þrætt nán-
ast allar byggingar háskólans. Hon-
um hafi þegar tekist að brjótast inn í
Stapa, Gimli, Odda, Læknagarð,
Nýja-Garð og í Öskju.
Björn segir að oftast séu augljós
ummerki um innbrot þar sem þjóf-
urinn hafi verið að verki.
„Í Nýja-Garði braut hann upp
hurðina og rúðuna og komst þannig
inn. Í Læknagarði spennti hann upp
glugga og sparkaði upp hurðunum á
skrifstofunum,“ segir hann.
Björn segir þjófinn afar vandlátan,
hann steli til að mynda aðeins nýleg-
ustu fartölvunum. Kveðst Björn vona
að innbrotunum linni yfir hátíðirnar
og staðfestir að ákvörðun hafi verið
tekin um að hafa sólarhringsvakt á
öllu háskólasvæðinu í jólafríinu.
„Það er bara ömurlegt að þetta
skuli vera svona. Við erum búin að
vera tiltölulega laus við svona í mörg,
mörg ár. Það hefur bara ekki verið
neitt um svona. Svo byrjar þetta bara
allt í einu,“ segir Björn.
„Vonandi er þetta bara búið og
maður getur fengið fín jól án þess að
það sé hringt í mann að nóttu til.“
Braut upp hurðir
og rúður HÍ
Stelur aðeins nýlegustu fartölvunum
Morgunblaðið/Ómar
Innbrot Oft hefur verið brotist inn í
HÍ á síðustu þremur mánuðum.
m.
Getur sagað járn, ryðfrítt stál, aðra
málma, gifs, trefja/plastefni og keramík.
POWERSTATE™ mótor 20.000 RPM.
REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 33.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 FCOT
Fjölnota hjólsög
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888