Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um síðastliðinn þriðjudag að nýta fjórar milljónir króna af sameigin- legu ráðstöfun- arfé sínu til stuðnings við Hollvinasamtök Óðins, félag vel- unnara hins gamla varðskips. Peningana á að nota til þess að gera sjóklárt, en 27. janúar næst- komandi eru liðin 60 ár frá því skip- ið kom til landsins, þá spánnýtt. Af því tilefni stendur til að ræsa aðal- vélar skipsins, en það hefur ekki ver- ið gert síðan 2006 þegar Óðinn var dreginn í var við Grandagarð og er nú hluti af sýningu Sjóminjasafnsins þar. „Við höfum alltaf sinnt viðhaldi á skipinu sem er í þokkalegu standi. Þetta hefur hins vegar kostað tals- verða peninga og við höfum því reglulega sótt um framlag úr ríkis- sjóði og fengið. Núna þurfum við að fara í meiri viðgerðir, svo sem að koma stjórn- og spilbúnaði skipsins í lag. Í því erum við Óðinsmenn að brasa þessa dagana, en í hópnum eru alls sjö vélstjórar sem flestir voru forðum í áhöfn skipsins,“ segir Ing- ólfur Kristmundsson sem hefur mik- ið starfað á vettvangi hollvinasam- takanna. Í tilefni afmælis skipsins stendur til að sigla skipinu mánudaginn 27. janúar næstkomandi og hugsanlega meira síðar. „Okkur langar til þess að sigla hér eitthvað út á Sundin í tilefni dagsins. En til þess þarf pen- inga til að dytta að ýmsu og fá haf- færnisskírteini. Vonandi gengur dæmið upp,“ segir Ingólfur. Þorskastríðsskip Saga varðskipsins Óðins er merk og löng, en það var upphaflega eitt fullkomasta björgunarskip í Norð- urhöfum. Það kom að góðum notum í þorskastríðunum og við almenna landhelgisgæslu, en einnig þjónustu við afskekktar strandbyggðir þá einkum á veturna. Skipið var í almennri notkun Landhelgisgæslunnar fram yfir aldamót, en ríkið afhenti Hollvina- samtökum Óðins það svo árið 2008 til verndar og varðveislu. Á vegum gamalla varðskipsmanna fær skipið gott viðhald og margir leggja mál- inu lið. Má þar nefna að Alþingi samþykkti nýlega að veita 15 millj- ónir króna á fjárlögum næsta árs. Þá veitir menntamálaráðuneytið ár- legt rekstarframlag til sjóminja- safnsins vegna skipsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grandagarður Óðinn er nú hluti af Sjóminjasafninu og er einn af mörgu eftirtektarverðu í sýningum þess. Veita stuðning til viðgerða á Óðni  Gamla varð- skipið senn 60 ára  Aftur í siglingar Ingólfur Kristmundsson Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Landsvirkjun og Reykjavík Data Center, nýtt hátæknigagnaver í Reykjavík, undirrituðu grænan raf- magnssamning í gær um afhendingu Landsvirkjunar á allt að 12 mega- vöttum til gagnaversins. Gagnaverið er frábrugðið öðrum gagnaverum hérlendis, sérstaklega hvað varðar öryggi og gæði. „Samningurinn hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir okkur. Þarna er- um við að gera stórnotendasamning við Landsvirkjun um raforkukaup til lengri tíma. Þetta er vottaður grænn orkusamningur sem mun hjálpa okkur í markaðssetningu og í þeirri vegferð að sækja okkur viðskipta- vini,“ segir Gísli Valur Guðjónsson, stjórnarformaður Reykjavík Data Center. Mikið lagt upp úr öryggi Gagnaverið mun hefja rekstur snemma árs 2020 en það mun vera staðsett við Korputorg í Reykjavík. Reykjavík Data Center er í eigu Opinna kerfa, Sýnar, Reiknistofu bankanna og Korputorgs. Gísli segir að Reykjavík Data Center skeri sig úr hópi þeirra gagnavera sem hafa starfað hérlend- is hingað til, vegna hæstu öryggis- og gæðastaðla samhliða einstakri staðsetningu gagnaversins í Reykja- vík m.t.t. orku- og gagnatenginga. Í grein sem birtist í Morgun- blaðinu í sumar kom fram að gagna- verið myndi verða hið fullkomnasta og öruggasta á landinu. „Það verður mikið lagt upp úr ör- yggi, áreiðanleika og ekkert verður til sparað þegar kemur að því,“ segir Gísli og bendir á að Reiknistofa bankanna sé fyrsti viðskiptavinur gagnaversins og eðli starfsemi Reikningsstofu bankanna kalli á mjög stífar kröfur er varða meðal annars öryggi og gæði. Náttúruleg kæling kostur Gísli segir að spurn eftir þjónustu gagnavera sé mikil og þá sé Ísland talið vænleg staðsetning fyrir upp- byggingu slíkrar þjónustu. „Eftirspurnin eftir kostum sem byggja á endurnýjanlegri orku, ör- yggi og stöðugleika er mikil. Á Íslandi má finna stöðugt lágt hitastig sem hentar starfsemi gagnavera vel þar sem það myndast mikill hiti við þessa starfsemi sem þarf að eyða mikilli orku í að kæla annars staðar í heiminum. Hérlendis búum við vel með okkar náttúrulegu kælingu, sem er ein af ástæðunum fyrir því að þessi iðnað- ur hefur vaxið hratt undanfarin ár. Við hefðum kannski mátt vera fljótari af stað en við erum að gera okkur gildandi núna og með okkar endurnýjanlegu, grænu orku eigum við að geta tekið sneið af þessum markaði.“ Ljósmynd/Landsvirkjun Samningurinn Framkvæmdastjóri Korputorgs, fulltrúar frá Landsvirkjun og SÝN voru viðstaddir undirritun samningsins. Gísli er hér fyrir miðju. Ekkert sparað í öryggismálum  Stórnotendasamningur við gagnaver Verslanir í Kringlunni söfnuðu alls rúmlega 2 milljónum króna á góðgerðardaginn ,,Af öllu hjarta“ sem fram fór 19. september sl. í Kringl- unni. Dagurinn er verkefni sem Kringlan hleypti af stokkunum fyrir nokkrum árum en í því felst að einn dag á ári gefa verslanir og veitingastaðir hússins 5% af veltu dagsins til góðs málefnis, að því er segir í fréttatilkynningu. Að þessu sinni var dagurinn í Kringlunni helg- aður Foreldrahúsi Vímulausrar æsku, sem safnar fyrir eigin húsnæði fyrir starfsemina. „Samstillt átak verslunareigenda í einni stærstu verslunarmiðstöð landsins áorkar miklu til sam- félagslegs málefnis af þessu tagi auk þess sem fé- lagið fær ómetanlegt tækifæri til kynningar og fræðslu. Söfnunarféð, rúmlega 2 milljónir króna, mun koma félaginu að miklu gagni við að veita sem bestan stuðning til ungmenna í vímuefnavanda sem og fjölskyldum þeirra,“ segir ennfremur í til- kynningu frá Kringlunni. Tvær milljónir til Foreldrahúss Kringlan Framkvæmdastýra Foreldrahúss, Berglind Gunnarsdóttir Strandberg, tekur við ávísun frá Sig- urjóni Erni Þórssyni, framkvæmdastjóra Kringlunnar, og Baldvinu Snælaugsdóttur markaðsstjóra. MSEY | E-Tip hanskarKr. 2.990.-RÍ BAKKI | 100% ullarhúfKr. 1.990 LILY | K KLETTUR | HúfaKr. 2.490.- Angora r. 1.2 sokkar 98. . a -
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.