Morgunblaðið - 19.12.2019, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Snorra,“ segir Guðrún. Aðeins var
grafið í hluta bæjarhólsins, vegna
þess hvað búið var að raska miklu.
Svo var hluti svæðisins látinn bíða
seinni tíma, ef áhugi myndast á því
síðar að kanna meira.
Unnið var að uppgreftri og rann-
sókn á bæjarhólnum á vegum Þjóð-
minjasafns Íslands á árunum 1998
til 2007 að viðbættri rannsókn á
staðnum þar sem kirkjurnar stóðu
áður fyrr. Kirkjurannsóknin var
gerð fyrir fé úr Kristnihátíðarsjóði.
Markmið rannsóknanna var með-
al annars að kanna hvenær byggð
hófst í Reykholti og hvenær kirkja
var fyrst reist.
Guðrún segir að tekist hafi að
aldursgreina elstu byggð frá því um
1000. Kirkja hafi sömuleiðis verið
byggð fljótlega eftir kristnitöku.
Minjar fundust um átta kirkjubygg-
ingar frá því um 1000 til ársins 1886
að Reykholtskirkja var byggð á nýj-
um stað, „gamla kirkjan“ sem enn
stendur. Kirkjan er talin hafa verið
úr timbri fram til siðaskipta að torfi
var bætt við, hlaðið utan á timb-
urveggina.
Hús að erlendri fyrirmynd
Húsin sem voru í Reykholti á 12.
og 13. öld voru öðruvísi en þekkist
annars staðar á landinu. Í stað hefð-
bundins skála frá fyrri tíð voru
komin stök hús, væntanlega timb-
urhús. Guðrún telur að þau geti ver-
ið að erlendri fyrirmynd. Tekur þó
fram að samanburð vanti hér innan-
lands því ekki hafi verið nóg rann-
sakað. Ýmis önnur mannvirki bendi
til þess að staðurinn hafi verið
byggður upp af miklum efnum, svo
sem jarðgöng út að Snorralaug og
vísbendingar um virki í kringum
bæinn. Sá sem stóð fyrir þessum
framkvæmdum, hvort sem það var
Snorri eða einhver annar, hefur haft
aðgang að timbri og miklum mann-
skap til vinnu.
Nefnir Guðrún sérstaklega at-
hyglisverða notkun hveravatnsins.
Það var leitt í stokk í laug sem nú
er kölluð Snorralaug og gæti hafa
verið í sömu mynd allt frá dögum
Snorra. Enn merkilegri eru að
hennar mati gufustokkar frá hvern-
um Skriflu inn í hús á bæjarhólnum.
Ekki er hægt að ganga úr skugga
um hvort gufan hefur verið notuð til
hitunar eða til annarrar starfsemi
svo sem í brugghús eða baðhús eða
til að verka skinn eða þæfa ull. Lík-
legt er að Snorri hafi verið með rit-
stofu og hefur þurft mörg skinn
sem hráefni í handrit. Stokkurinn
bendir til áhrifa frá Noregi eða
Danmörku þar sem vitað er um
dæmi þess að heitt loft hafi verið
leitt um stokka til upphitunar. Það
eru aftur talin áhrif frá Rómverjum.
Snorri var vel tengdur Noregi, eins
og kunnugt er.
Við rannsóknina var stuðst við
frásagnir Sturlungu um umsvif
Snorra í Reykholti. „Þetta eru ólík-
ar heimildir, lýsingar úr ritum og
fornleifar, og ekki auðvelt að tengja
þær beint saman. Samt er þetta
fyrsta tilraun til að nota samtíma-
heimildir til samanburðar við upp-
grafnar minjar,“ segir Guðrún.
Breyttist eftir staðamálin
Guðrún tók þátt í alþjóðlegri og
þverfaglegri rannsókn sem nefnd
var Reykholtsverkefnið. Hún segir
að hópurinn hafi í sameiningu reynt
að varpa nýju ljósi á staðinn á tíma
Snorra. „Á 14. öld breyttist margt.
Fyllt var upp í jarðgöngin og húsin
fóru að taka á sig mynd hefðbund-
inna torfhúsa með bæjargöngum
eins og varð ráðandi byggingarform
hér á landi. Í samstarfi við sagn-
fræðinga er sett fram sú kenning að
þetta hafi gerst í kjölfar staðamál-
anna síðari þegar kirkjan náði full-
um yfirráðum yfir kirkjustöðum af
höfðingjum. Prestar hafi þá hvorki
haft áhuga né efni á að halda við
þessum íburðarmiklu byggingum í
Reykholti og ekki talið þörf á jarð-
göngum,“ segir Guðrún.
Rímar við frásagnir Sturlungu
Miklar framkvæmdir voru í Reykholti á 12. og 13. öld og ríkmannlega staðið að málum
Guðrún Sveinbjarnardóttir segir ekki hægt að fullyrða að Snorri Sturluson hafi staðið fyrir þeim
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verkefnisstjóri Guðrún Svein-
bjarnardóttir fornleifafræðingur
leitaði fornleifa frá tímum Snorra
Sturlusonar í Reykholti og varð
nokkuð ágengt.
Teikning/Þórhallur Þráinsson
Tilgáta Teikning af bæjarþorpinu og kirkjunni í Reykholti, eins og húsin gætu hafa verið á tímum Snorra, grund-
vallast aðeins að hluta á því sem grafið var upp. Myndin er úr bók Guðrúnar, birt með leyfi Snorrastofu.
Guðrún Sveinbjarnardóttir,
doktor í fornleifafræði, er Borg-
firðingur í föðurætt en Reykvík-
ingur í móðurætt og ólst upp í
Reykjavík. Faðir hennar er frá
Hurðarbaki í Reykholtsdal. Þar
á hún sumarbústað og hefur því
miklar tengingar við Reykholts-
dal og Reykholt.
Guðrún fór til framhaldsnáms
í London og hefur verið búsett
þar síðan. Þar hefur hún verið
við kennslu í sínum gamla
skóla, University College Lond-
on (UCL), og tekið að sér ýmis
verkefni þar og á Íslandi. Reyk-
holtsrannsóknin er eitt stærsta
verkefnið sem hún hefur stýrt.
Ættuð úr
Borgarfirði
FORNLEIFAFRÆÐINGUR
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Miklar framkvæmdir hafa verið í
Reykholti í Borgarfirði á 12. og 13.
öld. Þar voru stök timburhús og rík-
mannleg, gufa var leidd í þau til
upphitunar eða einhverrar starf-
semi og jarðgöng út í Snorralaug.
Vísbendingar eru um virki í kring-
um bæinn. Margt af þessu rímar við
frásagnir Sturlungu um Snorra
Sturluson en Guðrún Sveinbjarn-
ardóttir fornleifafræðingur sem
stjórnaði fornleifarannsóknum í
Reykholti telur sig ekki geta fullyrt
að þessi miklu umsvif hafi verið á
vegum Snorra.
Fornleifauppgröftur hófst í Reyk-
holti nálægt lokum níunda áratugar
síðustu aldar. Rannsókninni lauk
formlega nú í vetur með málþingi
um lok Reykholtsverkefnisins sem
haldið var í Snorrastofu og útgáfu
bókar á íslensku, Reykholt í ljósi
fornleifanna, sem Guðrún ritaði. Þar
eru niðurstöðurnar, sem áður hafa
birst í bókum á ensku, teknar sam-
an og þótt hún sé fræðileg er reynt
að hafa hana aðgengilega fyrir al-
mennt áhugafólk.
Bær og kirkja frá því um 1000
Snorri Sturluson hefur allan tím-
ann verið miðdepill rannsókn-
arinnar og upphaf hennar má rekja
til umræðna um að minnast þess ár-
ið 1991 að þá voru 750 ár liðin frá
vígi Snorra í Reykholti 1241. En
fleiri bjuggu í Reykholti, eins og
Guðrún vekur athygli á, og rann-
sóknin leiddi í ljós ýmis sannindi um
byggingasögu staðarins.
„Þegar við komum fyrst á staðinn
gerðum við okkur ekki miklar vonir
um að finna lítið skemmdar eða
óskaddaðar leifar. Búið var að
byggja mikið á bæjarhólnum. Þegar
héraðsskólahúsið reis um 1930 var
ekkert verið að spá í fornminjar.
Það kom okkur því skemmtilega á
óvart hvað mikið var þarna undir,
meðal annars minjar frá tíma
Gefðu slökun í jólagjöf
Líkamslögun
25%afslátturaf gjafakortum
Gjafakortin fást í
likamslogun.is/vefverslun
Nýbýlavegur 8 (Portið) 200 Kópavogur | sími 777 6000 | likamslogun.is