Morgunblaðið - 19.12.2019, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
„Óveðrið kom í veg fyrir að við gæt-
um afhent styrkinn 10. desember,
sem er dagurinn okkar, en þá lauk
16 daga vitundarvakningu okkar
gegn kynbundnu ofbeldi,“ segir
Ingibjörg Jónasdóttir forseti Sorop-
timistasambandsins á Íslandi, en
sambandið afhenti í gær veglegan
styrk til Byggingarfélags Kvenna-
athvarfsins til byggingar íbúðarhúss
fyrir skjólstæðinga athvarfsins.
„Þetta verða ríflega fimm millj-
ónir, en endanleg upphæð er ekki al-
veg komin fram því konur í klúbb-
unum okkar eru enn að safna,“ segir
Ingibjörg og bætir við að vitundar-
vakningin gegn kynbundnu ofbeldi
hafi farið fram með fjölbreyttum
hætti. „Við roðagylltum byggingar,
létum lýsa þær upp með appelsínu-
gulum lit, til dæmis Hörpu í kjölfar
ljósagöngu með UN Women-
hópnum sem við tökum þátt í. Kon-
urnar í Keflavík voru mjög duglegar
að fá fyrirtæki til að lýsa upp bygg-
ingar í appelsínugulum lit, Isavia,
kirkjur, bankar og sjúkrahús og
fleiri fyrirtæki. Akureyri var með
ljósagöngu við upphaf átaksins 25.
nóvember sem tileinkaður er barátt-
unni gegn kynbundnu ofbeldi. Á
Austurlandi var farið í ljósagöngu,
basar var haldin í Mjóddinni í
Reykjavík og svo mætti lengi telja,“
segir Ingibjörg og bætir við að þær
Soroptimistasystur séu að hugsa um
að vera með átak og vitundarvakn-
ingu aftur á næsta ári og safna fyrir
Kvennaathvarfið.
„Af því það er ekki nóg að styrkja
bygginguna, við þurfum líka að
styrkja starfið hjá Kvennaathvarf-
inu, því konurnar þar vinna sér-
staklega gott og mjög mikilvægt
starf. Við höfum hug á að sameinast
í átakinu að ári með öðrum sam-
tökum sem vinna að því að styrkja
konur og stúlkur sem verða fyrir
kynbundnu ofbeldi og einnig karla
að sjálfsögðu, því þeir eru líka að
stíga fram sem fórnarlömb ofbeld-
is.“
Soroptimistasamband Íslands er
hluti af Evrópusambandi Soroptim-
ista. Íslenskir soroptimistar eru um
600 talsins í 19 klúbbum víðs vegar
um land. Fyrsti íslenski klúbburinn
var stofnaður árið 1959. Soroptim-
istar hvetja til aðgerða og skapa
tækifæri til að breyta lífi kvenna og
stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi
og alþjóðlegu félaganeti.
Roðagylltu heiminn og
styrktu Kvennaathvarfið
Soroptimistasystur vinna gegn kynbundnu ofbeldi
Alþjóðasamtök
» Soroptimistar eru alþjóða-
samtök fyrir vinnandi konur í
öllum störfum.
» Markmið Soroptimista er
stuðla að heimsmynd þar sem
konur og stúlkur ná í samein-
ingu fram því besta sem völ er
á, bæði sem einstaklingar og
sem hópur.
Morgunblaðið/Eggert
Afhending Gleði ríkti þegar Soroptimistar afhentu styrkinn í gær. F.v. Eygló Harðardóttir, Ingibjörg Jónasdóttir
forseti Soroptimistafélags Íslands, Sigrún Ása Sigmarsdóttir og Sigþrúður Guðmundsdóttir frá Kvennaathvarfinu.
Rúnar Örn Jó-
hönnu Marinós-
son og Rebecca
Scott Lord, úr
grínistahópnum
Fyndnustu mínar,
halda jólaviðburð
í Þjóðleikhús-
kjallaranum í
kvöld kl. 20. Við-
burðurinn nefnist
einfaldlega „Jóla-
glaðningur Re-
beccu & Rúnars“. Húsið verður opn-
að kl. 19.30.
„Góðir gestir mæta og verða með
atriði, það verður sungið, leikið á
hljóðfæri, lesnar jólasögur, ný hátíð-
armyndbandsverk verða flutt, gjafir
búnar til og margt margt fleira. Kík-
ið inn og eigið með okkur notalega
kvöldstund til að fagna komu
jólanna,“ segir í tilkynningu um við-
burðinn.
Auk Rúnars og Rebeccu koma
fram leikararnir Örn Árnason og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, sem ætlar
að baka á sviðinu. Drengurinn Feng-
urinn ætlar að spila splunkuný jóla-
lög, svo fátt eitt sé nefnt.
Jólasögur,
söngur og
tónlist
Gleði í Þjóðleik-
húskjallaranum
Ólafía Hrönn mun
baka á sviðinu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ný slökkvistöð er risin á Hellu og
verður hún tekin í gagnið næsta vor.
Verktakinn Bjarni Sverrisson af-
henti stjórn Brunavarna Rang-
árvallasýslu bs á þriðjudag nýtt
glæsilegt húsnæði að Dynskálum 49
á Hellu þar sem starfsemi Bruna-
varna Rangárvallasýslu á Hellu
verður í framtíðinni. Verktakinn
hafði hengt lyklana að húsinu við lít-
inn slökkviliðsbíl sem hann afhent
slökkviliðsstjóra með tilþrifum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ágústi Sigurðssyni, sveitarstjóra
Rangárþings ytra, er slökkvistöðin
nýja nú tilbúin til fullnaðarfrágangs.
Útboð á þeim verkhluta hefur verið
auglýst og skal skila inn tilboðum
fyrir 21. janúar 2020. Útboðið miðar
við að heildarverklok verði 15. maí
2020 en um er að ræða fulln-
aðarfrágang þar sem á neðri hæð
hússins verður tækjasalur auk
snyrtinga og á efri hæð starfs-
mannarými og skrifstofuaðstaða.
„Þetta verður algjör bylting fyrir
brunavarnir í héraðinu,“ segir Ágúst
en nýja stöðin leysir af hólmi eldri
aðstöðu sem er barn síns tíma og al-
gjörlega ófullnægjandi miðað við
þarfir samfélagsins í dag að sögn
sveitarstjórans. Nýja stöðin er ríf-
lega þrjú hundruð fermetrar að
stærð auk millilofts.
Tónlist í gömlu slökkvistöðinni
Sveitarstjórn Rangárþings ytra
ákvað í síðustu viku að ganga að til-
boði Brunavarna Rangárvallasýslu
bs og kaupa gömlu slökkvistöðina á
Hellu þegar hún losnar. Rangárþing
ytra á þegar efri hæð þeirrar bygg-
ingar og þar er til húsa Tónlist-
arskóli Rangæinga. Að sögn Ágústs
er ekki búið að taka endanlega
ákvörðun um nýtingu gömlu stöðv-
arinnar en vel þykir koma til greina
að stækka aðstöðu Tónlistarskólans
og koma upp litlum tónleikasal og
bættu kennslurými á neðri hæðinni.
Það eru sveitarfélögin þrjú í Rang-
árvallasýslu sem eru eigendur
byggðasamlagsins um brunavarnir
þ.e. Rangárþing ytra, Rangárþing
eystra og Ásahreppur.
„Algjör bylting
fyrir brunavarnir
í héraðinu“
Ný slökkvistöð á Hellu afhent til
fullnaðarfrágangs Tilbúin næsta vor
Stór stund Slökkvistöðin afhent síðasta þriðjudag. Frá vinstri á mynd fyrir
utan húsið: Anton Kári Halldórsson, stjórnarmaður í Brunavörnum Árnes-
sýslu, Hjalti Tómasson, formaður stjórnar, Bjarni Sverrisson verktaki, Leif-
ur Björnsson slökkviliðsstjóri og Guðmundur Gíslason stjórnarmaður.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
DESEMBER
TILBOÐ
Gerðu vel við þig, eða einhvern
semþér þykir vænt um, þessi jól
15%
afsláttur
NÚNA
af gjafabré
fum
hjá okkur
Laserlyfting
Gelísprautun
HydroDeluxe
15-20% afsláttur:
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2