Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 53

Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 53
53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 Stjörnustríð Í gær sýndu Sambíóin rúmlega sjö samfelldar klukkustundir af Stjörnustríðskvikmyndum í tilefni þess að ný Stjörnustríðsmynd, The Rise of Skywalker, er frumsýnd í dag. Eggert Eitt af síðustu verkum þingheims fyrir jólafrí var að samþykkja lög um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um toll- kvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir. Helsta markmið frumvarpsins var að koma úthlut- unarreglum tollkvót- anna í það horf að verð innfluttra landbúnaðarvara gæti lækkað, ís- lenskum neytendum til hagsbóta. Vegna þeirra lagareglna sem gilt hafa hingað til hafa neytendur ekki notið markverðs ábata af inn- fluttum landbúnaðarvörum, jafnvel þó að þær megi í sumum tilvikum flytja inn á lægri tollum en ella. Frumvarpið hafði alla burði til að breyta þessari stöðu, bæði hvað varðar úthlutunaraðferðir og opn- unartímabil tollkvóta fyrir vörur sem hér hefur oft og tíðum skort. SVÞ lýsti yfir stuðningi við frum- varpið þar sem með samþykkt þess hefði verið stigið skref í rétta átt. Þegar leið að því að frumvarpið yrði afgreitt úr þingnefnd, gerðist sá fáheyrði atburður að ellefu fé- lög hagsmunaaðila ályktuðu gegn frumvarpinu. Fyrir utan Bænda- samtök Íslands og ýmis aðild- arfélög þeirra, stóðu að álykt- uninni Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins. Til grundvallar ályktuninni voru færð afar mót- sagnakennd rök, þ.e. að finna þyrfti málinu heppilegri farveg, m.a. til að bregðast við mögu- legum frávikum sem alltaf kunna að koma upp í búvöruframleiðslu, sem háð er veðurfari og öðrum ytri aðstæðum. Neyt- endasamtökin sáu góðu heilli að sér og drógu þátttöku sína í ályktuninni til baka. Þingheimur skákaði í skjóli þessa atburðar og gerði víðtækar breytingar sem taka mjög mið af sér- kröfum innlendra framleiðenda og eru alfarið á kostnað neytenda. Maður hefði nú að fyrra bragði ekki búist við að samtök á borð við Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins sem, í orði kveðnu a.m.k., haldið hafa á lofti sjónarmiðum viðskiptafrelsis og frjálsrar samkeppni, sameinist um að leggja stein í götu frum- varps, sem hafði það að raunveru- legu markmiði að færa íslenskum neytendum ábata upp á fleiri hundruð milljónir króna á ári. Það er til kínverskur máls- háttur sem segir: Það heyrist jafnan meira í því sem þú gerir en í því sem þú segir. Vörslu- menn sérhagsmuna leynast greinilega víðar en margur held- ur. Eftir Andrés Magnússon »Helsta markmið frumvarpsins var að koma úthlutunarreglum tollkvótanna í það horf að verð innfluttra land- búnaðarvara gæti lækk- að, íslenskum neyt- endum til hagsbóta. Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ. Sérhagsmunir fá stuðning úr óvæntri áttÁ útrásarárunum varþað eftirtektarverthvernig stóru fjölmiðl- arnir gegndu hlutverki klappstýra fyrir hina svonefndu útrásarvík- inga. Það þarf ekki ann- að en að skoða fyrir- sagnir, forsíðufréttir eða helstu umfjallanir fjölmiðla frá þeim tíma til þess að átta sig á því að þetta var raunin. Ég hef nefnt það áður að mér er það minnisstætt þegar Davíð Odds- son, þáverandi forsætisráðherra, mótmælti óhófi bankamanna í verki árið 2003 með því að taka sparifé sitt út úr Kaupþing Búnaðarbanka og vitna í iðrun Júdasar þegar sýndar- gjörningur var framkvæmdur í fram- haldinu. Davíð var vegna þessa sak- aður um að leggja bankamenn „í einelti“ á forsíðu Fréttablaðsins. Það er dálítið dapurlegt að hugsa til þess, en sýnir líklega vald fjölmiðla, að þeg- ar bankakerfið svo hrundi – eftir mis- notkun bankamanna sem dómstólar hafa fjallað um og staðfest – var öllu snúið á hvolf og sá sem varaði við var gerður að blóraböggli. Saklausum manni var refsað fyrir eitthvað sem hann ekki aðeins bar enga ábyrgð á heldur hafði með öllum sínum mætti barist gegn. Í þessu samhengi, þar sem norskur jafnaðarmaður hefur gefið út bók, skal það sérstaklega nefnt að þau smánarlög sem sam- þykkt voru í febrúar 2009 eru í raun ígildi pólitísks réttarmorðs sem enn á eftir að gera upp; ranglæti sem enn á eftir að leiðrétta. Ekki var þó látið staðar numið. Í forsetakosningunum 2016 var haldið uppi mjög óeðlilegum fréttaflutningi og afskipti Ríkisútvarpsins af kosn- ingunum mætti taka til sérstakrar skoðunar. Hægt er að benda á að stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu, sem lögum samkvæmt tekur þátt í að móta dagskrárstefnu og megináhersl- ur í starfi Ríkisútvarpsins til lengri tíma, hélt uppi linnulausum og op- inberum áróðri gegn Davíð Oddssyni. Fleira var eftirtektarvert í þeim kosningum, m.a. möguleg notkun gervi- manna á samskipta- miðlum sem var beitt með þeim hætti að þeg- ar eitthvað jákvætt var sagt um Davíð Oddsson og bent var á stað- reyndir, birtust hin og þessi nöfn sem aldrei hafa tekið þátt í póli- tískri umræðu og fylltu athugasemdakerfin af rangfærslum og útúrsnúningi sem var rekjanlegur til fyrrnefnds stjórnarmanns Ríkisút- varpsins. Það var þó annar viðburður sem stóð upp úr árið 2016 og það var „Panamamálið“ svonefnda. Þar fór Ríkisútvarpið mikinn og blekkti þá- verandi forsætisráðherra í viðtal sem hefði aldrei átt að birta enda var stofnað til þess með óheiðarlegum hætti. Ég segi óheiðarlegum því þeir sem að viðtalinu stóðu hafa við- urkennt það að þeir óskuðu eftir við- tali við forsætisráðherra undir því yf- irskini að ræða efnahagsmál. Það hefur einnig verið viðurkennt að við- talið hafi verið margæft með það fyrir augum að veiða forsætisráðherrann í gildru. Arfur eiginkonu forsætisráð- herra var svo gerður að meginefni viðtalsins og hvort hún hefði fyrir áratug hlustað á ráðgjöf bankafull- trúa um að geyma innstæður sínar á erlendum bankareikningi. Innstæð- urnar fékk hún í arf en faðir hennar var mjög duglegur athafnamaður. Lítið var fjallað um þá staðreynd að eiginkonur mega geyma sitt fé, án samþykkis eiginmanna sinna, hvar sem þeim sýnist ef út í það er farið. Mætti segja að flest jafnréttisviðmið hafi verið brotin gróflega í þeirri um- fjöllun. Það var einnig eftirtektarvert að Ríkisútvarpið margítrekaði að eitt- hvað meira og jafnvel stærra yrði upplýst um fleiri þekkta Íslendinga. Væntanlega til þess að gera málið tortryggilegt. Nú fjórum árum síðar liggur það fyrir að ekkert annað eft- irtektarvert var upplýst. Það er því ekki hægt að álykta neitt annað en að Ríkisútvarpið hafi logið að íslensku þjóðinni og að málið hafi verið pólitísk aftaka. Það þarf ekki að eyða mörgum orð- um í hið svokallaða „Klaustursmál“ en þó, þar sem ákveðnir fjölmiðlar hafa rifjað það upp, er vert að benda á að Persónuvernd hefur úrskurðað í málinu og hin raunverulegu fórnar- lömb voru þeir þingmenn sem setið var um. Á þeirra mannréttindum var brotið. Gerandinn – sá sem sat, hler- aði og birti persónulegt samtal þing- mannanna – gerðist brotlegur við lög. Fáir vilja búa í einhverslags eftirlits- ríki þar sem tekin eru upp einkasam- töl og fjölmiðlar fengnir til að birta þau að því virðist í þeim eina tilgangi að smána og kalla fram einelti. Lík- lega er „Klaustursmálið“ eitt það ljót- asta í síðari tíð en ekki vegna þess að fyllirí hafi átt sér stað á ölstofu, en slíkt gerist að jafnaði alloft, heldur frekar það að fjölmiðlar komust upp með eina ferðina enn að hneppa al- menningsálitið í gíslingu. Sporin hræða og það er ekki að ástæðulausu að gapastokkurinn var aflagður. Þegar horft er til baka má sjá að mörg mál sem sett voru upp í æsifréttastíl reyndust önnur en okkur var sagt. Sífellt fleiri spyrja sig hvort stóru fjölmiðlarnir séu orðnir pólitísk vopn í hugmyndafræðilegu stríði um- rótsmanna. Fyrir Alþingi liggja nú tillögur um að leyfa einkareknum fjölmiðlum að teygja sig ofan í vasa hins vinnandi manns. Það er alvarlegt og ekki síður í ljósi þess að með því skapast sú hætta að almenningsálitið endi sem fangi hinna fáu til frambúðar. Eftir Viðar Guðjohnsen » Sífellt fleiri spyrja sig hvort stóru fjöl- miðlarnir séu orðnir pólitísk vopn í hug- myndafræðilegu stríði umrótsmanna. Viðar Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður Fangi hinna fáu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.