Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Ómissandi á
jólaborðið
Reyktur
og lax
Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir, Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og 10-11.
„Í upphafi var Orðið
og Orðið var hjá Guði
og Orðið var Guð. Hann
var í upphafi hjá Guði
... Og orðið varð hold,“
skrifar Jóhannes guð-
spjallamaður, „og hann
bjó með oss, fullur náð-
ar og sannleika.“ (Jóh.
1.14.) Þetta er holdtekj-
an, inkarnasjónin. Hér
er engin vandskilin
guðfræði, engin vafningasöm heim-
speki. Kristindómurinn heldur því
fram, að þetta sé svona og engan veg-
inn öðruvísi.
Öll þau trúarbrögð og heimspeki-
kerfi, sem gera lítið úr hinu efnislega,
eru í besta falli hæpin. Þegar Móse
var staddur hjá þyrnirunnanum, sem
stóð í ljósum loga og brann þó ekki,
var honum sagt að draga skó sína af
fótum sér því að staðurinn, sem hann
stæði á, væri heilög jörð (2. Mós. 3.5).
Holdtekjan (þegar hið skapandi orð
Guðs varð hold í piltbarninu í jötunni í
Betlehem) þýðir að öll jörðin er heil-
ög, af því það er ekki aðeins að Guð
hafi skapað hana, heldur gekk hann
um á henni, borðaði og svaf og starfaði
og þjáðist og dó – á henni. Sá boð-
skapur, sem kirkjan á að flytja veröld-
inni, hlýtur æ og ævinlega að vera
fagnaðarerindið um frelsarann; boð-
skapurinn unaðslegi um endurreisn
hins fallna manns í Jesú Kristi.
Þetta fagnaðarerindi er þau gleði-
legu tíðindi, sem herma frá frelsun og
endurlausn manneskjunnar, bæði hér
og í komandi heimi, og er það gjöf
Guðs í Jesú Kristi til syndugra, já
glataðra manna. Syndin er sjúkdóm-
ur, sem er sekt, og sekt, sem er örlög.
Og mesta bölvun synd-
arinnar er fólgin í því,
að hún gerir oss blind á
sjálfa sig, þannig, að vér
sjáum hana ekki, kom-
um ekki auga á hana.
Að frelsast er að taka
á móti fagnaðarboð-
skapnum í trú. Trúin er
að taka við tilboði fagn-
aðarerindisins í hlýðni,
auðmýkt og þökk, en
fagnaðarerindið er sá
gleðilegi boðskapur að
Guð hafi frelsað oss
glataða menn frá synd og dauða og
gefið oss frelsið að óverðskuldaðri
gjöf. Trúin er vegferð syndugs manns
frá skírn til dauða í von um upprisuna.
Í trúnni megum vér treysta því, að líf-
ið nýja, hið fullkomna og syndlausa líf,
sem Kristur færir með fyrirgefningu
sinni, á að rísa upp á efsta degi. En
það gamla og synduga og uppreisnar-
gjarna líf, sem vér höfum örvað og
glætt með synd vorri og sjálfsréttlæt-
ingu, það á aftur á móti að deyja og
verða jarðað í kirkjugarðinum.
Jerúsalem verður ný Jerúsalem,
sem stígur niður af himni frá Guði,
búin sem brúður er skartar fyrir
manni sínum (Op. Jóh. 21.2). Lík-
ömum vorum er sáð forgengilegum,
en þeir rísa upp óforgengilegir (I.
Kor. 15.42).
Gleðileg jól!
Jól
Eftir Gunnar
Björnsson
Gunnar Björnsson
Höfundur er pastor emeritus.
siragunnar@simnet.is
»Kristindómurinn
heldur því fram, að
þetta sé svona og engan
veginn öðruvísi.
Gegn uppbyggðum
vegi á illviðrasömu og
snjóþungu svæði í 530
m hæð um Öxi hefur
þurft aðeins eina grein
til að andstæðingar Fá-
skrúðsfjarðar- og
Norðfjarðarganga
bregðist hinir verstu
við þegar greinarhöf-
undur hefur áður varað
við því að erfitt sé að
treysta þessari leið
milli Berufjarðar og Skriðdals.
Nú sannast það sem fyrr var sagt
að krafan um hindrunarlausan heils-
ársveg yfir Öxi er byggð á pólitískum
falsrökum sem stuðningsmenn Axar-
vegar tefla gegn Dýrafjarðargöngum.
Allur málflutningur um að Vegagerð-
in geti tryggt svo góðar vegasam-
göngur alla vetrarmánuðina í 530 m
hæð, á stystu leiðinni milli Djúpavogs
og Egilsstaða, er úr tengslum við
raunveruleikann. Svona þvælast
stuðningsmenn Axarvegar fyrir til að
afskræma allar staðreyndir um þær
framfarir sem orðið hafa í jarðganga-
gerð á undanförnum árum.
Í Berufirði þykir engum það for-
svaranlegt að sprengja burt klettana
uppi í brattri fjallshlíðinni fyrir ofan
Beitivelli og Háuöldu. Þangað á þessi
vegur, sem Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra hefur nýlega lof-
að Djúpavogsbúum, ekkert erindi.
Nógu mikil er slysahættan í brekk-
unum þar sem núverandi vegur ligg-
ur í 17% halla. Hvort sem hann verð-
ur endurbyggður eða nýr vegur
lagður í brekkunni, fyrir neðan Mið-
hjalla og Mannabeinahjalla, hverfur
slysahættan aldrei. Í brattri fjalls-
hlíðinni mæla andstæð-
ingar Norðfjarðarganga
með þessari fram-
kvæmd sem Skipulags-
stofnun neitar að sam-
þykkja.
Skynsamlegra væri
fyrir stuðningsmenn
Axarvegar, sem berjast
fyrir því að Djúpivogur,
Fljótsdalshérað, Egils-
staðir, Seyðisfjörður og
Borgarfjörður eystri
verði á einu samfelldu
atvinnusvæði, að klára
dæmið strax með tvenn-
um veggöngum inn í Breiðdal, sem
tekin yrðu úr Berufirði og Skriðdal,
þegar þeir kæra sig ekkert um greið-
ar, hagkvæmar og nútímalegar sam-
göngur við stóra Fjórðungssjúkra-
húsið, í Neskaupstað. Áhugavert er
fyrir talsmenn framtíðarinnar að leita
svara við þeirri spurningu hvers
vegna erindrekar fortíðarinnar voru
svo veruleikafirrtir að krefjast þess í
mars 2003 að hætt yrði við Almanna-
skarðs- og Fáskrúðsfjarðargöngin.
Allt fjármagnið sem fór í þessi veg-
göng vildu andstæðingar jarðgang-
anna frekar fá í hindrunarlausan
heilsársveg yfir Öxi. Þeirri kröfu vís-
aði Vegagerðin til föðurhúsanna. Þá
reiddust stuðningsmenn Axarvegar
þegar fyrrverandi þingmenn Austur-
lands sögðu þeim fyrir 16 árum að út-
boð Almannaskarðs- og Fáskrúðs-
fjarðarganga stæðu óhögguð.
Viðbrögðin frá stuðningsmönnum
Héðinsfjarðarganga á Austfjörðum
komust strax í fréttirnar þegar Davíð
Oddsson, þáverandi forsætisráð-
herra, gerði rétt með því að tilkynna í
fjölmiðlum í febrúar 2003 óvænt þá
ákvörðun stjórnvalda að flýta fram-
kvæmdum við veggöngin undir Al-
mannaskarð vegna slysahættunnar,
sem of margir flutningabílstjórar
höfðu áhyggjur af. Fullyrðingar um
að fjármunum í jarðgöng á Austfjörð-
um hafi verið stolið frá Öxi eru fölsk
skilaboð og í hróplegri mótsögn við
góða blaðamennsku. Þessi vinnu-
brögð nota erindrekar fortíðarinnar
til að skaða samgöngumál fjórðungs-
ins, sem hafa alltof lengi verið í mikl-
um ólestri. Í öllum þessum rang-
færslum sem notaðar eru gegn
Norðfjarðargöngum og slæmu
ástandi í samgöngumálum suður-
fjarðanna kemur skýrt fram að
stuðningsmenn Axarvegar eru úr
tengslum við raunveruleikann.
Kröfuna um flutning stóra Fjórð-
ungssjúkrahússins frá Neskaupstað
til Egilsstaða fá þeir aldrei sam-
þykkta án þess að Norðfirðingar setji
hnefann í borðið. Eltingaleikurinn við
snjólétt svæði, hlýnandi veðurfar
næstu áratugina og hindrunarlausan
heilsársveg um Öxi er vonlaus og
snýst alltaf upp í leik kattarins að
músinni. Hvergi er hægt að tryggja
svo góðar vegasamgöngur, í 530 m
hæð á stystu leiðinni milli Egilsstaða
og Djúpavogs. Til þess hefur Vega-
gerðin engan tækjabúnað. Loforð um
að hindrunarlaus heilsársvegur á
þessu snjóþunga og illviðrasama
svæði spari 700-800 milljónir króna á
hverju ári fást aldrei.
Illt er að eiga við Vegagerðina og
fjárveitingavaldið, sem telja óhjá-
kvæmilegt að berja í borðið til að
forðast kostnaðinn við samfelldan
snjómokstur á þessum farartálma og
slysahættuna í brekkunum upp úr
Berufirði. Hugmynd sveitarstjóra
Djúpavogs um einkaframkvæmd á
Öxi er vitlaus. Fækkum strax snjó-
þungum fjallvegum.
Snjóþyngsli á Öxi
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
» Fækkum strax snjó-
þungum fjallvegum.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.