Morgunblaðið - 19.12.2019, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
Thora@mbl.is
Hamborgarhryggur
Hamborgarhryggur um 2-2,5 kg
1 l vatn
4 msk. púðursykur
1 tsk. Dijon sinnep
1 tsk. tómatsósa
3 msk. rjómi
3-4 ananassneiðar
Byrjið á því að útbúa gljáann með
því að sjóða saman púðursykur, sinn-
ep, tómatsósu og rjóma. Leyfið að
bubbla aðeins og lækkið svo hitann og
hrærið þar til sykurinn er uppleystur.
Hellið 1 l af vatni í ofnskúffu neðst í
ofninum og stillið hitann á 150°C.
Setjið hamborgarhrygginn á ofn-
grind, penslið 1 x með gljáanum.
Stingið kjöthitamæli inn í hann miðj-
an og komið grindinni fyrir í ofninum
fyrir ofan skúffuna með vatninu.
Penslið hryggin einu sinni til tvisvar á
meðan hann er í ofninum á þessum
tíma.
Eldið hrygginn með þessum hætti
þar til kjarnhiti sýnir um 55°C og
hækkið þá hitann í 210°C, setjið an-
anassneiðarnar ofan á og penslið aft-
ur eina lokaumferð með gljáa. Eldið
þar til kjarnhiti sýnir 67°C og leyfið
þá hryggnum að standa í að minnsta
kosti 15 mínútur áður en hann er
skorinn í sneiðar.
Ef þið eigið ekki kjöthitamæli er
gott að miða eldunartíma við 45 mín
til klukkustund á hvert kíló, lengri
tíma
Sósa
2 skalottlaukar
2 msk. smjör
1 pk Toro Brun Saus
1 pk Toro Saus til Steg
500 ml rjómi
350 ml vatn
1 msk. fljótandi svínakraftur
1 tsk. rifsberjasulta
Saxið laukinn smátt og steikið upp
úr smjöri við miðlungshita þar til
laukurinn mýkist.
Hellið vatni og rjóma út í pottinn
og pískið duftinu úr báðum sósupökk-
unum saman við.
Hitið að suðu og hrærið reglulega í
allan tímann.
Bætið krafti og sultu saman við og
leyfið sósunni að malla þar til annað
er tilbúið og hrærið reglulega í á með-
an.
Veislumáltíð
Berglindar
Hamborgarhryggur mun leika aðalhlutverk á ansi
mörgum heimilum á aðfangadag og því eins gott að
vera með á hreinu hvernig á að elda hann. Hér er
uppskrift frá hinni einu sönn Berglindi Hreiðars sem
stendur í ströngu nú fyrir jólin enda er hún höfundur
hinnar rómuðu Veislubókar sem þykir einstaklega vel
heppnuð og svo auðvitað afskaplega gagnleg. Berg-
lind er ekkert að tvínóna við hlutina og hér er hún
með frábæra uppskrift að hamborgarhrygg og sósu
sem á eftir að bræða einhver hjörtu.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Glæsileg veislumáltíð Berglind kann þá list framar flestum að galdra fram gómsætar veislur.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Mikilvægasti hluti máltíðarinnar Það er fátt sem skiptir meira máli en sós-
an og þessi uppskrift er alveg hreint frábær.
Bókin sem öllu bjargar Það eru fá-
ir flinkari í veisluhaldi en Berglind
og í Veislubókinni deilir hún sínum
allra bestu ráðum og uppskriftum.
Bökunarkeppni matarvefsins, Jóla-
kakan 2019, fór fram á dögunum í
fyrsta skipti og var þátttaka framar
björtustu vonum. Matarvefurinn
þakkar öllum sem sendu inn kökur
hjartanlega fyrir og við munum á
næstu dögum og vikum birta upp-
skriftir að kökum sem tóku þátt og
þóttu framúrskarandi. Ljóst er að
keppnin er komin til að vera og við
hlökkum til að gera enn betur á
næsta ári. Sigurvegarinn var
Sandra Dögg Þorsteinsdóttir sem
bakaði köku sem kemst í sögubæk-
urnar. Um var að ræða tveggja
hæða köku sem hún kallaði brodd-
geltina þrjá. Sandra hlaut að launum
150 þúsund króna gjafabréf frá
Heimsferðum, KitchenAid-hrærivél,
50 þúsund króna gjafakort í Hag-
kaupum, veglega gjafakörfu frá Til
hamingju og 10 þúsund króna gjafa-
bréf frá veitingastaðnum GOTT.
Sandra var að vonum ánægð með
úrslitin en uppskriftin verður birt á
matarvef mbl.is innan tíðar.
Morgunblaðið/Eggert
Sælir sigurvegarar Sandra Dögg Þorsteinsdóttir ásamt meðbökurum sín-
um, Berglindi Eik sem er sex ára og Emilíu Björk sem verður tveggja ára
þann 30. desember næstkomandi.
Kökudrottningin
fór klyfjuð út
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur
kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem
henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt
þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg